

Hæ, hæ. Maður dauðöfundar ykkur á að vera þarna úti í hitanum. Þessir drengir stækka ekkert smá hratt, glæsilegir!!. Vonandi gengur ykkur vel þarna úti;-)
Kærar kveðjur Maríanna og co.
Vá hvað þú ert flinkur að klifra Þórir!! Duglegur alveg að verða 2ja ára:) flottar sumarmyndir, værum sko alveg til í smá af sólinni ykkar;)
Helga
Klifur-Þórir er bara sætur. Ekkert smá montinn að komast upp, er auðvitað búin að horfa alltof oft á eftir stóru strákunum að príla þarna upp...
Hæhæ, kíki hérna reglulega. Gaman að geta fylgst með ykkur í fjarska:) Flottar myndirnar ykkar;)
Knús:*
Er að hugsa til ykkar:o)
xxx
Alltaf jafn gaman að skoða myndir af ykkur.
Kveðjur og kossar til ykkar allra frá afa og ömmu
fullt af skemmtilegum sumarmyndum - það er augljóst að það er mikið um að vera hjá ykkur. Hlakka mikið til að koma til ykkar en held að 3 vikur verði bara ekki nóg! elska ykkur endalaust.
Knús og kyss ykkar Líney
Kvitt kvitt... ekkert smá margar skemmtilegar myndir. Greinilegt að þið hafið það gott í sólinni í Svíaríki :o)
Puss&kram á línuna
Bryndís og co
Hæ hæ hæ sæta fjölskylda, Yndislegar myndir og strákarnir orðnir svo stórir. Það fer greinilega mjög vel um ykkur úti.
Hafði það dúndur dúndur gott
kossar og knús
Sigrún
Það er ekkert smá mikið sumar hjá ykkur, æðislegar myndir.
Langar stundum að fara með Stefán til ykkar í smá heimsókn, það er svo margt sem Þórir er að gera á myndunum sem ég sé þá alveg fyrir mér bralla saman. En vonandi fyrr en varir - xxx
vá frábærar sumarmyndir - takk fyrir okkur :) þið eruð nú ótrúlega flottir "Emilar" og Þórir bara farinn að æfa sig að kafa og læta ;) værum svo svakalega til í að fá að klípa smá í ykkur og knúsa... Mömmu og pabba líka - en látum okkur myndirnar nægja - flettum bara milljón og einu sinni í gegnum þær ;)
Hæ hæ, rosa flottar myndirnar :) Endalaust gaman að skoða svona flottar myndir af svona flottum strákum :) Knús á ykkur af fimmunni.
Yndislegar myndir!! Við brosum bara við hverja mynd!!
Knús og kossar og saknaðarkveðjur
XXX
Hæ sætu bræður, allt of langt síðan við kíktum hingað :( En nú ver að róast hjá familíunni fljótlega og þá kíkjum við daglega ;)
Það er greinielga alltaf nóg að gera hjá ykkur líka. Sendum margar kossa og knús til ykkar.
Erla, Jónas, Katrín Anna og Emilía Helga
Voum bara að hugsa til ykkar og skoða af ykkur myndir :)
Kíki reglulega, bara svo að þið vitið af mér:o) Það er orðið ótrúlega girnilegt veðrið hjá ykkur. Það er búið að vera frekar leiðinlegt veður hér, í gær voru t.d. trampólínin að fjúka um allan bæ. Sumarið er samt á næsta leiti (vonandi). Þið hafið það greinilega gott og allir eru að dafna vel. Sakna ykkar samt alltaf og hugsa mikið til ykkar. Take care ykkar Erna
xxx
Við sökknum ykkar :). Bogi(skólastjóri sem er núna ) að hætta, nýr skólastjóri næsta haust.
Sælir Kæru Frændur. :) Gaman að skoða myndirnar af ykkur. Rosalega eruð þið heppnir að geta verið í stuttbuxum, á Íslandi er ennþá hálf kalt, stundum 10 gráður ekki oft. Þegar frænka er að ná í moggan snemma á morgnanna er stundum 2 gráðu frost.
Agnesi Söru fannst rosalega gaman að skoða öll dýrin sem þið eruð búin að taka myndir af. Ég held að hana hafi langað til að vera hjá ykkur. kveðjur til ykkar frá nönu frænku og Co.
Æðislegar myndir!! Greinilega endalaust gott að hafa ömmu og afa í heimsókn! Þau eru einmitt eina fólki sem maður væri alveg til í að hafa bara alltaf í heimsókn:)
Fæ næstum tár í augun að geta ekki komið til ykkar... er endalaust að spekúlera hvernig ég eigi að komast með þá til ykkar því Smári verður svo busy í sumar.. en engin útkoma:/ Er samt eiginlega búin að ákveða að um leið og ég fæ stundakrá þá panta ég flug í vetrarfríinu:)
Knús og kossar frá okkur... og hér er sko einn göngugarpur:)
þið eruð æði - get ekki annað sagt... langar mikið til að vera hjá ykkur núna...
XXX
Hæhæ
Langar að skoða myndir :-) Má ég það?
Hæ. Flottar myndirnar af ykkur. Þið eruð bara að stækka og stækka, Nú eru lömbin farin að koma í sveitinni og S´tjáni frændi og Ólafía að passa þau. Þau eru voða sæt og skemmtileg (lömbin sko). Hlökkum til að hitta ykkur, hvenær sem það verður nú. Knús og kossar til ykkar allra, líka mömmu og pabba, frá okkur öllum.
Eru þið ekki að grínast með góða veðrið??? Á meðan þið spókið ykkur um í stuttbuxum og pilsum þá horfi ég á leifarnar af snjósköflunum í flíspeysu!!! Honum er greinilega misskipt hitanum...
Flottar myndir af ykkur og Fróða fannst ljónin rosaleg, vildi gjarnan fá fimm svona í fjárhúsin! Getið þið nokkuð bjargað honum um slíkt? Hann bauð lömbin sín í staðin...
Kveðja úr Öxarfirðinum
Þið eruð náttúrulega bara sætastir :-)
XXX
Sælir sætu snúðarnir mínir! Það er alltaf jafn gaman að skoða myndir af ykkur og hugsa til þess að með hverjum deginum sem líður styttist í að við hittum ykkur. Hittum afa og ömmu áðan og þau sögðu okkur sögur af ykkur - hittum þau svo aftur á eftir í kaffi og þá fáum við að heyra meira .. þau voru svo ánægð með ferðina og ég veit að þau sakna ykkar líka mikið. Bið að heilsa - sendi knús og kyss ykkar Líney
Þið eruð svoooo sætir. Sendum knús á línuna.
Erla og co.
Oh en gaman að sjá þessar vormyndir af ykkur, kæru vinir. saknaðarkveðjur út í Lundinn,
Kristín og Kristnesingarnir
Hæ sætu vinir okkar!!
Hér erum við mæðginin komin á fætur fyrir allar aldir! Ætlum sko ekki að missa af neinu af þessum degi:) Yndislegt veður er við samt bara ennþá inni á náttfötunum.
Æðislegt að sjá nýjar myndir af ykkur... söknum ykkar svo!!
Hafið það sem allra best
koss og knús
æ þið - ég hefði sko alveg viljað 100 myndir í viðbót ;) þið eruð æði... bíð svo bara eftir texta ;)
xxx