

Elsku Þórir Hrafn okkar, hjartanlega til hamingju með 2ja ára afmælið. Orðin svo stór og duglegur. Við hlökkum til að geta knúsað þig eftir nokkra daga. Vonum að þú hafir það alveg rosa gott í dag stubbur með allri fjölskyldunni. Góða skemmtun í afmælinu.
Knús og kossar á ykkur öll í tilefni dagsins - xxx
Til hamingju með daginn þinn elsku Þóririnn okkar Hrafn. Við elskum þig endalaust og hlökkum mikið til að knúsa þig á sunnudaginn... eigðu góðan 10 ára afmælisdag ;)
XXX
Sirrý, Binni, Margrét og Íris
Innilega til hamingju með daginn Þórir Hrafn.
Frábært að sjá hvað ykkur líður vel í Svíþjóð og hvað strákarnir eru orðnir stórir
Knús og kram frá Kópavoginum
Elsku Þórir Hrafn, til hamingju með 2 ára afmælið ;) Hafðu það rosalega gott í dag. Biðjum að heilsa fólkinu þínu ;)
Knús frá Aarhus
Bylgja Dögg og Rakel Talía
Elsku Þórir Hrafn innilega til hamingju með afmælið. Mikið ertu orðinn stór strákur. Hafðu það nú gott í dag og við biðjum að heilsa, hlökkum til að sjá ykkur öll þegar þið komið heim frá Íslandi.
Hafið það gott elskurnar og knús á ykkur öll.
Bestu kveðjur Herborg, Beggi og Milla.
Elsku Þórir til hamingju með daginn, hver veit nema það verði bökuð kaka hér heima í tilefni dagsins. Hlökkum ógó mikið til að hitta ykkur, Gréta er orðin rosalega spennt.
Knús
Þið eruð alveg að fara að koma.
Veieieieieieieieieieiei!!!!!!!!!!
Gaman að koma "heim" úr útilegu og finna hér fullt af skemmtilegum myndum. Sætir eru golfstrákarnir, kjólastrákarnir og hoppukastalastrákarnir. Sætastir sætastir sætastir.
Allir á B-46 biðja að heilsa
Til hamingju með daginn ykkar í gær strákar. Þið voruð sko ekki gleymdir eftir símtalið ! Margrét talaði um ykkur langt fram á nótt og Íris söng 'afmæli í dag' eftir kvöldmatinn líka... söknuðum þess að geta ekki knúsað ykkur af alvöru ... í fyrsta sinn! Margrét er líka svo spennt að verða 5 ára - af því hún verður næst 5 ára í fjölskyldunni ;) Svo langaði hana til þess að sýna ykkur leiktækin sem eru komin í bústaðnum 'okkar' - róla, rennibraut og sandkassi - þar gistum við í nótt....
stórt knú sí kotið ykkar frá okkur
xxx
Sirrý, Binni, Margrét og Íris
Hæ hæ sætu þið öll. Búin að skoða nýju myndirnar en reyndi að halda mér á mottunni með kvittið ;) Langaði bara að óska afmælisdrengjunum til hamingju með afmælið, hafið það ofur gott í dag stóru strákar. Gangi ykkur vel að læra hjóla án hjálparadekkja. Knús og kossar héðan frá Íslandi til ykkar.
Herborg, Beggi og Milla.
Elsku bestu Valur og Ernir til hamingju með 5 ára afmælisdaginn ykkar. Erum búin að fá okkur ís í tilefni dagsins. Hefðum viljað kíkja á ykkur en við hittumst fyrr en seinna, við finnum það á okkur. Gréta reyndi að hringja en þið hafið verið að halda upp á daginn. Elskum ykkur í kaf bestu kveðjur frá Þingeyrinni
Til hamingju með daginn stóru strákar - 5 ára ... VÁÁÁ Hafið það sem allra best í dag - sendum knús og kyss til ykkar.
Afmæliskveðjur
Arnór Már, Guðjón Már, Líney Björg og Atli Már
Elsku Valur Örn og Ernir Elí, til hamingju með 5 ára afmælið. Vonandi verður dagurinn góður og þið njótið hans í botn:)
Kveðja frá Íslandi,
Rakel Talía og co.
Hjartanlega til hamingju með 5 ára afmælin ykkar elsku Valur Örn og Ernir Elí. Gaman að heyra aðeins í ykkur áðan. Vonum að þið hafið það rosa gott í dag.
Til hamingju með 5 ára afmælisdaginn sætu bræður.
Ég var að flétta í gegnum myndirnar og þær eru æðislegar, sérstaklega úr Astrid garðinum.
Hlökkum til að mæta í veislu á laugardaginn.
Afmæliskveðjur af ellefunni.
Til hamingju með daginn 22.júlí elsku frændur. Er búið að breyta lykilorðinu, eruð þið til í að senda mér á dagny@valitor.is svo ég geti haldið áfram að fylgjast með ykkur..
Sælar elskurnar, mikið er gaman að skoða allar þessar nýju myndir hjá ykkur. Búin að missa mig og kommenta við örugglega aðra hverja mynd ;) Sakna ykkar rosa mikið, er bara ein í sveitinni og veit ekki alveg hvað ég á af mér að gera svona barnlaus. Milla fór til Mýrar í dag og þá fékk Milla að sjá "sveitina" þeirra Vals og Ernis. Hafið það gott og hlakka til að sjá ykkur. Knús og kossar héðan úr sveitinni minni ;)
HÆ allir saman.
ótrúlegt hvað tíminn flýgur, strákarnir orðnir svo stórir og hárprúðir. Innilega til lukku með útskriftina og áframhald
Knús og kossar frá okkur öllum á stöðinni
Eyrún og co
Vá hvað þeir eru orðnir stórir strákar.. frábærar myndir og svo gaman að skoða og sjá ykkur fallega fólkið í Svíðþjóð.
knús og kram frá okkur öllum/.
Vóhh hvað menn fullorðnast hratt í Svíaríki.
Vona að þið hafið það gott
bkv. Auður
Vá hvað þið eruð orðnir stórir!! Og ekkert smá flottir & fallegir :)
Æðislegar myndir og gaman að skoða.
Bestu kveðjur frá okkur öllum
Díana & fam
Lífið er greinilega gott í Svíþjóð. Allir stækka, stækka, stækka og hafa það greinilega rosalega gaman.
Ég sem ætlaði bara rétt að stelast að kíkja á nokkrar myndir í vinnunni ;) búin að sitja hér annsi lengi.
Hlakka til að komast heim og sína strákunum á heimilinu.
Jesús minn hvað þeir eru orðnir stórir, það er nú ekki svo langt síðan þú settir inn myndir ;-) Mér finnst þeir án gríns alveg vera 8 ára eða eitthvað, dí....eins gott að við förum að safna fyrir heimsókn út næstu 2 árin svo maður missi nú ekki alveg af lestinni! Þórir Hrafn fylgir þeim sterkur á eftir og er hann nú alger krúttbomba. Hafið það sem allra best og vonandi náum við að negla ykkur í eins og einn dag á meðan þið heimsækið klakann. Við gætum kannski hittst á Brú og tjaldað á Borðeyri áður en þið farið Vestur að hitta familínua???? ;-)
Knús í hús og þúsund kossar
Elskum ykkur
Æði erum sko búnar að skoða myndirnar í bak og fyrir. Mamma/amma er að reyna að setja inn myndir á fésið til þess að þið getið séð hvernig þvottahúsinu miðar ;)
frábærar myndir og gott að geta skoðað ykkur
Pabbi/afi og Binni biðja að heilsa (stelpurnar eru sofandi svo þær fá ekki að vera með! ;))
XXX
Sirrý og mamma/amma
Æði myndir!!! gaman að skoða:)
Er að bíða eftia að fá heimilisfangið á sms þá fer pakkinn af stað:)
Knús og kossar
H
Mikið er gaman að skoða þessar björtu og fallegu myndir, yndislegir drengir sem þið eigið. Hafið það sem allra best!
Kveðja, Irena
Alltaf gaman að skoða myndirnar af ykkur.. Greynilega nóg að gera og brjálað stuð :D
Kveðja af eyrinni fögru
Jovina, Hrafnhildur og Lára
miss you - lovjú
XXX frá Þingeyri
Maður verður bara að segja að maður saknar ykkar þegar maður skoðar myndirnar, alltaf svo gaman að fletta í gegn. Þið bræður eruð svo sniðugir í ykkar daglegu störfum :) Þórir ekkert smá klár að klifra og mátti sko vera montin þegar á tindinn (efri koju) var komið ;) Knús og kossar til ykkar allra.