

hæhæ og takk fyrir að senda mér leyniorðið. Ekkert smá gaman að sjá myndirnar af ykkur öllum, rosalega fallegir drengir með æðislega falleg nöfn.
Ég sé ykkur kannski í sumar, verð að kíkja vestur það er svo langt síðan ég hef komið
sjáumst, Hallveig og Björn Ingi
Kíktum aðeins á ykkur og ekkert smá duglegir og flottir strákar. Æðislegar snjómyndirnar, minnir mann mikið á þegar við vorum svo miklu minni. Knús úr borginni
Halló töffarar...
...vá ekkert smá flottar nýju myndirnar af ykkur. Og þið að verða svo stórir svona rétt eins og við enda erum við næstum því allir jafn gamlir..ekki satt!
Þið eruð alveg geggjað flottir tvíburar...
Stubbaknús á liðið
Tvíbbalingarnir Tristan Þór og Sveinn Rúnar
mamma sendir líka kveðju
dí hvað þið eruð orðinir stórir strákar - finnst þið hafa stækkað og þroskast helling síðan við vorum hjá ykkur ... bara næstum orðnir unglingar! neeei sem betur fer langt í það ;)
knúsukossar
SAS, BPR + MÝB
æ við bíðum og bíðum og bíðum ... knús familía ;)
hæhæ, var bara að rápa á barnalandi og datt inn á síðu um Dýrafjarðarbörn. Varð að kvitta fyrir mig, og Þórey til hamingju með drengina og brúðkaupið, væri gaman að hitta þig einhverntímann.
kveðja Hallveig og Björn Ingi
Hæhæ...takk fyrir kvittið. Alltaf gaman að fá ykkur í heimsókn. Eigum reyndar alveg eftir að fá ykkur hingað til Akureyrar en vonandi verður það fljótlega....það er algjört möst fyrir tvíbbalingana að hittast
Hafið það gott
Tristan Þór og Sveinn Rúnar
Mamma biður að heilsa
Sælir frændur!
'Eg væri allveg til í að fá leyni orðið til að geta skoðað myndirnar ykkar á síðuni. Það er allt gott að frétta af mér,hlakka til að sjá ykkur í sumar bið að heilsa öllum kveðja frá Miami :o)
Hæ guttar. Hvenær er næsta ferð í höfuðborgina? Ég hlakka svo mikið til að sjá ykkur næst. Sendi flugkossa og knús alla leið til Þingeyrar. Ykkar vinkona Katrín Anna.
Bara að kíkja við. Hlakka mikið til að sjá ykkur og var að skoða myndir af ykkur hjá Stefáni Frey síðan á jólamótinu. Úff hvað maður er farinn að fá mikla heimþrá...
Knús og milljón kossar í viðbót.
Hæ, ætlaði að kíkja á myndir en það var allt loklok og læs....
Þið eruð svo duglegir og sætir :) Hlakka til að sjá ykkur í Febrúar þá kem ég og Andri Blær að gera alla fína fyrir Þorrablót :) og takk aftur fyrir spóluna í Videoið það bjargaði Jólunum :) Kveðja Birna
Heil og sæl
Voða eru menn orðnir stórir. Þeir fara bara að ná mér í hæð. En annars er allt gott að frétta hér úr Rvk.Nýji vinur ykkar er enn í bakstri,en það fer nú að styttast í þetta allt saman. Vonandi sjáumst við sem fyrst.
kossar og knús
Sigrún G og ofvirki kúlubúinn.
Gleðilegt nýtt ár það er gaman að sjá hvað þið eigið flotta síðu .Kær kveðja: Jóna frænka .
Alltaf jafn yndislegt að skoða síðuna ykkar. knús Gunnhildur.
Gleðilegt ár elskurnar, flottar myndir. Nógu erfitt var að ná jólamyndum af einum, örugglega mjög erfitt að ná að þeim tveimur.
Knús til ykkar allra
Sælt veri fólkið.
Hjálp. Ég er búin að gleyma lykilorðinu hjá ykkur ; o ( Spurning hvort það sé meðgangan eða bara alzheimer light ! Annars gleiðilegt ár og takk fyirir það liðna. Hér í litlu gulu hænunni eru allir sprækir eftir veikindin yfir hátíðirnar. Kúlan orðin enn meiri kúla o.s.frv. Endilega heyrumst við tækifæri.
Kiss og knús
Sigrún G og co
XXX
Bara að kvitta fyrir innlitinu. Alltaf gaman að skoða nýjar myndir af ykkur. Knús úr borginni
hæ hæ Valur Örn og Ernir Elí ,flott síða hjá ykkur og ég bið að heilsa mömmu ykkar og pabba ykkar. Og vonandi höfðu þið það mjög gott með fjölskylduni yfir jólin og vona að ykkur og fjölskylu ykkar dafni vel um þetta ár en hlakka til að sjá ykkur kær kveðja Elín Björg Ragnarsdóttir
Hæ hæ og gleðilegt ár!
Rosalega eru flottar nýju myndirnar ykkar! Þið eruð orðnir svo stórir og greinilega voðalega duglegir!
Það væri nú gaman að hittast á árinu :)
Kveðja, Guðmundur og Jón Ingi
Gleðilegt ár og það allt. Vorum að kíkja á ykkur.... alltaf flottir.
kveðja Friðbjörn og mamma
Takk fyrir allar kveðjurnar. Gleðilegt ár og alles, hlakka til að hitta ykkur þegar við komum heim. Knús úr borginni
Sælir vinir mínir. Mikð eruði flottir og ég var líka svona spennt yfir flugeldunum, ekkert hrædd! Risa knús Kaja pæja
Kæra fjölskylda, gleðilegt ár og takk fyrir stundirnar á árinu. og takk fyrir kortið, rosalega flott. kveðja, elsa og maggi
Gleðilegt ár kæru vinir, gaman að kíkja á jólamyndirnar ykkar,þið eruð svei mér dugleg að taka myndir, verð að fara að taka mig á. Hafið það gott, kveðja Kristín og Co
var að spá í að fá lykilorðið..á nefniæega tvær dömur (tvíbura) og langar svo að skoða að ra tvíbura...
Sara
Gleðilegt ár kæru vinir. Við eigum vonandi eftir að hittast á þessu ári. Það yrði alveg frábært. Glæsileg mynd af brúðhjónunum...og ykkur líka. Þið eruð alveg frábær
Bestu kveðjur héðan
Díana og co
Hæ hæ litla sæta fjölskylda og gleðilegt ár. Alveg æðislegar allar jólamyndirnar. Vonum að þið hafið það sem best. Hvenær komið þið svo næst í höfuðborgina? Hlakka svo mikið til að sjá ykkur og nú geta Katrín Anna og strákarnir loksins leikið almennilega saman og jafnvel spjallað.
Gleðilegt árið !!! Við hlökkum ekkert smá til að hitta ykkur á morgun eða á eftir ef það verður flogið - það er svo leiðinleg spá :( en við komum þegar við komum og hlökkum mikið til. Guðjón er sko búinn að pakka fötum í tösku og fullt af dóti - en móðirin er nú ekki viss um að það gangi alveg upp og búin að yfirfara farangurinn. Knús til allra, sjáumst Líney og co.
Sæl Þórey og til hamingju með þessa tvo sætu stráka (meina þrjá). Rakst á síðuna þegar ég var að kíkja hjá henni Eyrúnu Hörpu. Gaman að sjá hvað þú blómstrar og allt gengur vel. Orðinn kennari og allt :)
Kær kveðja,
,,gamli" kennarinn þinn Gyða Björk Jónsdóttir