

hæ sætu bræður - eruði ekkert að verða búnir í Reykjavíkinni ;)
knús frá okkur til ykkar :*
Góðan daginn bræður og foreldrar,
Fengum lykilorðið hjá Sigga afa ykkar gegn því að kvitta fyrir komuna!
Flottar myndir og skemmtileg lesning fyrir okkur verðandi tvíburaforeldra.
Kveðja frá Ísafirði,
Hulda og Halldór
Halló fallegu drengir:)
Mamma fór í smá tvíburaleik um daginn og vá hvað henni fannst það snúið verkefni. Þið eigið mjög duglega foreldra að hennar mati. Og rosalega er mamma ykkar flott með svona dökkt og sítt hár.
Kveðja Jódí
okkur hlakkar svooo til að koma vestur til ykkar - risa knús, lítið knús og annað stærra...
XXX
Halló töffarar ...
Sakan ykkar mikið og hlakka mikið til að hitta ykkur eftir ... bara nokkra daga !!!
Bið að heilsa og stórt knús
ykkar Líney
Hæ hæ
Gaman að sjá allar flottu myndirnar. Komst því miður ekkert í heimsókn í stuttu Vestfjarðarheimsókninni sl. helgi. Sé ykkur vonandi sem allra fyrst. Glæsilegir frændur með nýju klippinguna, Kristófer ekkert smá ánægður með þetta, allir í stíl.
Knús til ykkar
Dagga og co.
Það er alltaf jafn tómlegt eftir að þið farið. Hlakka til að sjá ykkur fljótlega.
kossar og knús
vá takk fyrir fullt af skemmtilegum myndum - þið eruð svo flottir :)
hlakka mest til að hitta ykkur... eftir viku og nokkra daga ;)
knús til gömlu og eldri gömlu...
XXX
Gott að fá ykkur heim aftur. Flottar myndir af ykkur. Verst að við erum að fara í frí, en við hittumst þá bara í kringum afmælisdaginn ykkar.
Knús frá okkur
Takk fyrir síðast ... alltaf jafn gaman að kíkja á myndir af ykkur og hlakka mikið til að koma vestur eftir rétt rúma viku.
Bið að heilsa. Kveðja Líney
Hæhæ sætu strákar, alltaf jafn flottir :) Nú er Agnar Tumi bara í sveitinni fyrir norðan hjá afa sínum og ömmu. Það er nú dálítið skrítið að hafa engan lítinn gaur hjá sér, hvernig væri það ef þeir væru tveir ;).
Kveðja
Silla
Halló, halló og takk fyrir alla helgina ... Það er farið að sakna ykkar nú þegar - Guðjón sagði um leið og hann vaknaði "verður Þórey ekki marga, marga daga lengur í Reykjavík", Arnór "langar Val" "Valur" (yfir báða drengina Ernir + Valur) og auðvitað myndi húsmóðirin á bænum vilja vera með ykkur eins og skugginn!!!
Flottar myndir af flottu fólki!
Kveðja og knús
Líney og fjölskylda
xxx
Hæ hó.
Þið eruð ekkert smá sætir. Til hamingju með herbergið. Hlakka til að sjá ykkur í borginni.
Stórt knús,
Sigrún
XXXX
Knús frá okkur til ykkar. Endalaust sæt, og þið strákar eruð æði pæði, þið eruð svo duglegir
bara við að kíkja...
knúúúús
Hæ vildi kasta kveðju á sætu fjölskylduna :) gaman að skoða myndböndin og flottu myndirnar. Vona að ég nái að hitta ykkur fljótlega! (Verð fyrir vestan 30.-7. júlí) Kossar og knús Bryndís
Hæ gaman! Mikið af skemmtilegum myndum af bræðrunum. Til hamingju með nýja herbergið ykkar strákar, mikið hafið þið það gott að þurfa ekki að sofa lengur inni hjá pabba og mömmu :)
Kærar kveðjur úr borginni, Kristín, Gurrý og Sverrir
Hæ hó jibbý jei og jibbí jei. Það er kominn 17. júní.
Vona að þið hafið það gott í dag elsku prinsar.
Kossar og knús til mömmu,pabba, ömmu og afa
Hæ hæ
Bara rétt að kvitta fyrir innlitið :-)
Þið eruð ekkert smá duglegir og flottir strákar!! Líka gaman hvað mamma ykkar er dugleg að uppfæra síðuna. Einhver hérna megin sem mætti taka sér það til fyrirmyndar :)
Hafið það rosa gott!
Kveðja, Guðmundur og Jón Ingi
Halló sætustu prinsar í öllum heiminum.
Fullt af nýjum og geggjað flottum myndum. Þær eru æði - auðvitað af því að þið eruð æði.
Gunnar er í Vestmannaeyjum og þar er vont veður. Það er sko hægt að vera veðurtepptur á fleiri stöðum en fyrir Vestan. Vona samt að ég fái hann heim í dag.
kossar og knús á línuna xxx
æ enn hvað það var gaman að skoða fullt fullt af myndum - rúmin eru svaka fín - frænka sá líka glitta í hvítlakkað borð;) rosa flott :)
gott að þið eruð ánægðir með Petruna - passið hana vel, frænka veit það :)
svo verður mamma ykkar að vera dugleg að taka myndir næsta mánuðinn því frænka á eftir að koma OFT að skoða - þegar hún fær heimþrá!...
knús til ykkar allra og vonandi batnar öllum sem fyrst :*
kv. Sirrý, Binni og Margrét Ýr
Halló fjölskylda og takk fyrir síðast - við söknum ykkar MIKIÐ og hlökkum þvílíkt til að hitta ykkur næst ... eftir tæpar tvær vikur!!!
Flottar myndir af flottum strákum - og mikið fjör á bænum.
Stórt knús og hafið það sem allra best - biðjum að heilsa.
Kveðja Líney og fjölskylda
Sælir ömmustrákar,
gaman að heyra í ykkur í kvöld í símanum.
Flottar myndir af ykkur og frændum ykkar, hlakka til að hitta ykkur á morgun.
Kveðja frá Nönu, Daníel og litlu frænku
knús og kossar frá
Möggu ömmu sem er stödd í Reykjavík
Blessaðir snillingar, hvað segiði þá?
Fer ekki að styttast í Reykjavíkur för hjá ykkur bræðrum, mæta á víkings- völlinn og svona ? Það þarf nú að fara að kynna ykkur fyrir aðalliðinu í Reykjavík.
Annars bið ég að heilsa, og upp með brosið
Kv. Þobbi frændi
Hæ hó
Þið eruð alltaf jafn flottir. Hlakka til að sjá ykkur sem fyrst. Hann Guðni vinur ykkar er alveg að ná ykkur hann er orðin svo mikill klumpur. Þið verðið að kyssa og knúsa mömmu og pabba frá mér.
Dúndur kveðjur frá das Kapital,
Sigrún Guðnad. og allir hinir grislingarnir
XXXX
hæhæ yndislegu prinsar gaman að lesa söguna af ykkur og til hamingju með nýjustu frænkuna ykkar hún er alveg himnesk...eins og þið öll eruð...!! knús og kram úr hinum endanum á götunni okkar/ykkar....
Sælir Vestfirðingar
Long time no!
Vona að allir séu búnir að ná sér af kvefpestum og tilbúnir að taka á móti sumrinu sem fer nú vonandi að láta á sér kræla.
Knús
hæ hó
bara að kíkja hvort það séu ekki komnar myndir af nýja herberginu ykkar... sparkið í rassinn á mömmu ;)
knús
frænka
Hæhó!
Gleymskupúkinn ég er búin að gleyma lykilorðinu á síðuna ykkar! ... kannski þið sjáið aumur á minni og sendið mér það í e-mail, langar svo að dást að þessum strákalingum ykkar :)
kv. Auður Lilja Davíðs
Sælir strákar. Frábærar myndir af ykkur og gaman að skoða. Sjáumst nú vonandi eitthvað í sumar :O)
kv. Gyða