

Hæ hæ
Ekkert smá flottar myndir af ykkur. Þið eruð nú meiri krúsidúllurnar. Þórey mín þú ert svaka flott svona dökkhærð, velkomin í hópinn. Vona að þið hafið það gott yfir jólin
Knús á línuna
Dagga
Hæ hæ elsku snúllar. Rosalega er gaman hjá ykkur í jólaundirbúningnum og mikið svakalega eruð þið duglegir :)
Við eigum eftir að sakna ykkar um jólin..Hafið það rosalega gott og svo eigið þið nú eftir að fá jólakort frá okkur !!!
Knús úr Hafnarfirðinum :)
ps.Þórey þú ert rosalega flott svona dökkhærð ;)
flottir strákar - orðinir svooo stórir ;)
knús frá bakarabæ
Margrét Ýr, Sirrý og Binni
Flottar myndir af ykkur sætu strákar. Greinilega nóg að bralla á Þingeyrinni.
Sakna ykkar alveg helling, alveg svona >-------O-------< mikið!!!
hæ hæ sætu strákar.
Bara kvitta fyrir okkur.
kveðja Jovina Maríanna og mamma
Æðislega var gaman að skoða allar flottu myndirnar af sætu fjölskyldunni á Þingeyri. Bestu kveðjur. Afi á Húsavík.
Kvittí kvitt. Það er nú meira hvað þið eruð duglegir að kunna stafina. Katrín þekkir þá ekki svona vel en hún veit hvernig allt er á litin. Er alltaf að segja frá því hvernig fötin hennar eru á litin og hvernig þetta og hitt er á litin. Bleikt er auðvitað í uppáhaldi eins og hjá flestum skvísum á þessum aldri.
Það verður hrikalega gaman að hittast með þau næst, vonandi sem fyrst, því nú eru þau orðin svo sjálfstæð og farin að tala svo hrikalega mikið.
Bless í bili.
Kv. Erla
Hæ hæ gaman að skoða myndir, gott að kíkja á svona flotta bræður þegar maður á að vera að læra undir próf ;);) Hvernig væri nú að senda mömmu suður í nudd á fimmtudaginn???
Kv Urður
Halló! það er soldið mikið mikið í uppáhaldi að skoða 'Lalu og elli'... alveg með það á hreinu að þeir eru að knúsast og í baði og að elli er að 'baka' á einni myndinni - svo er myndin af Þóreyju mikið flott ;) fleiri myndir segir Margrét Ýr ... :)
knús
Margrét Ýr, mamma og pabbi
XXX
Halló, halló ... bara að kasta kveðju á línuna ... Ernir, Valur, Þórey og Elli - sakna ykkar og hlakka enn meira til að hitta ykkur!
knús og kossar úr próflestri ykkar Líney
Hæ hæ. Mikið eruð þið duglegir í íþróttaskólanum :) Knúsið gamla settið frá mér.
hæhæ ég og mamma værum alveg til í að fá lykilorð ef við megum. okkur langar að fylgjast svo með ykkur
kv. andrea líf og mamma
Flottustu bræður í heimi.. ;) Ekkert smá æðislegar myndir af ykkur.. Kveðja úr Reykjavíkinni.. Krista.
ég segi eins og Líney langar svo að hitta ykkur.
er alvarlega veik í ömmunni.
Flottastir Ernir og Valur, já þú líka Elli minn.
Flottar nýju myndirnar ... mig langar SVO að hitta ykkur. Endalaust knús ykkar Líney
"Lalu pissa gúka, bíli, laaaluuu lallu, afi, amma, enni njóni... laaalu pissagúka, afi afi amma..." *
kv. Margrét Ýr
*Valur - pissa - kúka - bíllinn - Valur - Valur - afi - amma - Ernir - Ljónið... Valur - pissa/kúka - afi -afi - amma..."
Hæ, vá mikið rosalega eruð þið duglegir.. Mamma og pabbi mega sko vera ánægð með strákana sína. Góð hugmynd að skrifa óskalistann..hermi það eftir ykkur. Knús til ykkar allra, sjáumst vonandi fljótlega. Ætlið þið kannski að koma til Reykjavíkur um jólin ??????
Hæ snúðarnir mínir, ekkert smá sem þið eruð orðnir duglegir báðir tveir ;) Við hlökkum svo til að hitta ykkur, hvenær sem það verður. Óttar er að æfa sig að segja Ernir og Valur frændur mínir, þegar við skoðum síðuna ykkar, allt að koma. Jæja stuðkveðjur frá töffaranum á Selfossi, sem kallar sitt rúm Bangsarúm, hmmm ekki veit ég af hverju... xxx
Þeir hafa greinilega fullorðnast heilmikið við að skipta um herbergi, ég meina er maður þá ekki orðinn næstum fullorðinn sérstaklega þegar næstum allt stafrófið er komið. Váhhh hvað það hlýtur að vera mikið álag að eiga kennara fyrir báða foreldra ;)
Þið eruð annars rosalega sætir og flottir bræður
bestu kveðjur frá uppsveitum RVK
Þið eruð sætustu ljónin.
kossar og knús
töffararúsínur ...
XXX
Kvitt altaf gaman að skoða hjá ykkur bestu kveðjur Ásta Hólum.
hæhæ!! Ég elska að skoða myndirnar inná þessari síðu! mér líður eins og ég sé komin heim og það er góð tilfinning! annars hlakka ég ótrúlega mikið til að koma heim í jólafrí og mér finnst æðislegt að hitta aftur fólkið!! :*
VÁ hvað það eru æðislegar myndirnar sem heita: "myndataka í ágúst2006" þær eru æði!! vá hvað þeir eru algjörar dúllur!! langaði bara mest til að verða lítil aftur þegar ég sá þær. :P
ég bið að heilsa öllum!! ótrúlega mikið
Hæ hæ
Vildi kvitta fyrir innlitið - er ekki kominn tími á nýjar myndir?? ;) Knús til mömmu og pabba.
Já ég væri alveg til í myndir líka. Sérstaklega úr þeirri nýju :)
Kossar og knús á línuna xxx
Hæ hæ við erum sammála síðasta ræðumanni. Væri gaman að sjá myndir af ykkur og heyra hvað er að gerast. *Knús*
sakna ykkar - langar að fá að sjá skrif í vefdagbók og eins og nokkrar myndir...
knús - og knúsiði mömmuna ykkar til þess að hún aðstoði ykkur í þessu ;)
stóra frænkan í fellunum
Hæ hæ sætu
Varð að kíkja aðeins á ykkur. Vonandi sjáumst við svo sem fyrst.
Kossar og knús
Sigrún
XXXXXX
Hæ og takk fyrir innlitið. Þið virðist líka hafa það fínt. Ef þið viljið koma í afmælið mitt á laugardaginn eruð þið velkomin. En ég veit að það er erfitt, þá komið þið bara næst :)
Knús !!!!!
Var aðeins að kikja á ykkur .. vantar alveg kindamyndir úr smalamenskuni hehe .. vona allavega að það hafi verið kindur þar .. ehhe ..
gaman að heira að guttarnir séu komnir á Akkuru aldurinn .. vonum bara að hann stoppi ekki of leingi .. knús og kremj Hrönn og co