

Hæ flottu frændur.
Til hamingju með nýja bróður ykkar.
kv. Gyða
Þetta eru þeir lang flottustu fótboltastrákar sem ég hef séð.
Litli bróðir er nú nokkuð flottur líka. Mig langar að koma og klípa aðeins í þessar kinnar. Svona kinnar fylgdu ekki með í pakkanum mínum ;D
Innilega til hamingju með viðbótina. Himneskur prins og ekkert smá hárprúður, algert æði.
Gangi ykkur vel í framhaldinu
Kveðja úr Ásbyrginu
Fottir fótboltagaurar þarna á ferð ... taktarnir alveg á hreinu !!! Hlakka til að hitta ykkur fyrr en síðar. Knús og kyss á línuna.
Ykkar Líney
Vá bara annar fallegur strákur kominn í heiminn. Innilega til hamingju með þennan fallega prins. Hann er alveg æði. Elsku tvíburavinir, innilega til hamingju með litla bróa, þið eigið eftir að hugsa vel um hann, þið eruð svo flottir allar þrír.
Knús á línuna
Tvíburarnir Tristan Þór og Sveinn Rúnar og svo auðvitað mamma sem biður að heilsa
Geggjað skemmtilegar nýju fótboltamyndirnar af stóru bræðrunum. :) Alvöru fótboltakempur ,,in the making". Kv. Erla á móti.
Elsku Þórey, Elli, Valur og Ernir til hamingju með nýjasta strákinn og alla framtíðina, hann er alger gullmoli og ekki amalegt að eiga svona stóra og flotta bræður sem geta kennt honum og passað fyrir ykkur. Hamingjukossar til ykkar frá heimilisfólkinu í Sólheimum
Rosa flottur og stór strákur. Ég sé að bræðurnir verða flottir stóru bræður stoltið skín úr augunum á þeim.
Kveðja
hæ Valur og Ernir til hamingju með litla bróðir
Innilega til hamingju með strákinn....Við Sirrý erum nú svolítið svektar (afbrýðisamar) en ánægðar fyrir ykkar hönd hehehehe.
Ég myndi lendilega vilja fá lykilorðið svo að ég geti skoðað afrekið........
Kv Jóna Lára sem er enn að bíða :)
Til hamingju með nýja prinsinn og,hehe,flott síða =D og velkomin heim
Innilega til haningju með nýja prinsinn
Til hamingju með nýja kappann.(Aðalstein)Alltaf gaman af þessum strákum.Þá er bara kvenna þrennan eftir :-)Heilsist ykkur vel.Kv.Frá okkur hjónunum og okkar stráka þrenna
Innilega til hamingju með litla bróður og litla soninn :o) Hann er ekkert smá flottur með allt þetta dökka og þykka hár. Segjum eins og fleiri...það má strax sjá bræðrasvipinn :o)
Gangi ykkur vel.
Kveðja,
Viddi, Jagga og Viktor Freyr
Innilega til hamingju með strákinn! Hann er gullfallegur eins og við var að búast :)
Bestu kveðjur úr Kubbnum!
(Mættum við kannski kíkja á fleiri myndir? Erum ekki með lykilorðið...)
Vá þvílíkur dásemdar bolti :) Innilega til hamingju með fallega litla bróðirinn. Hann er rosalega flottur, með svona mikð dökkt hár! Hann hefur nú alveg svip frá bræðrum sínum. Gangi ykkur rosa vel, og kærar kveðjur frá Kristínu, Sverri, Guðríði og Önnu Lóu
Var að skoða nýju myndirnar og hann er bara krúttlegastur...
Rosalega eruð þið rík að eiga svona 3.flotta stráka. Maður þarf að fara bæta í safnið hjá sér :)
Hæ strákar, rosalega eruð þið góðir og duglegir bræður. :o) Það eruð svo flottar myndirnar af ykkur bræðrunum, Nana er alltaf að skoða myndirnar af ykkur. knús til ykkar allra kveðja Nana og Co.
Halló stóru bræður.
Svakalega er litli bróðir ykkar flottur og dí hvað þið eruð flottir að knúsa hann og passa. Ég hlakka svo mikið til að hitta ykkur en veit bara ekki hvenær það verður : ( En þangað til verið ofsalega góðir við mömmu og pabba.
Knús og kyss ykkar Líney
Flottir bræður saman :) það taka sig greinilega allir vel út með nýja HÁRPRÚÐA stubbinn, hlakka til að máta - sjáum ykkur... á morgun!
stórt knús
Sirrý og Margrét Ýr
Vá bara prins fæddur .. innilega til hamingju með nýjasta prinsin í fjölskylduni .. gaman að kikja hingað inn og fá þessar fréttir..
Stóru bræðunir eru bara flottir að passa litla brósan..
knús Hrönn og co
Vá vá fullt af myndum!!!
Hann er endalaust sætur hann lubbulíus ykkar.
Stóru bræður taka sig ekkert smá flott út með prinsinn í fanginu. Greinilega ábyrgir og stoltir bræður.
Foreldrarnir greinilega ánægðir, enda endalaust ríkir.
Kyssið tigra litla (eins og hann er kallaður á þessu heimili) frá okkur og ykkur sjálf - xxx( Margrét biður að heilsa )
Halló til lukku með árin þrjú og litla brósa hann er ekkert smá flottur, stór og hraustlegur:)
Kveðja frá Selfossi
Innilega til hamingju með litla prinsinn. Hann er alveg yndislegur. Hafið það gott stóra fjölskylda og njótið lífsins:)
kv. Helga, Binni og Gunnar Valur
Halló elskurnar mínar!!
Til hamingju með litla bróðurinn, hann er fallegur eins og þið hinir! Ég er stoltur af ykkur!! Skilið kveðju til mömmu og pabba frá afa gamla!
Bestu kveðjur og risaknús frá hamingjusamasta afa í heimi;-)
Hæ elsku fjölskylda og innilega til hamingju með þennan yndislega prins. Hann er ekkert smá mikið ljós. Knús og kossar alla leið frá Selfossi.
Prinsinn!!!!!!!!
Ekkert smá gullfallegur.... Innilega til hamingju öll sömul (og ég sem var aldeilis búin að veðja á stelpuna.. ;)...) Vonandi gengur allt vel með hann og allir glaðir og ánægðir.. ;) örugglega ekki við öðru að búast. ;)
Bestu kveðjur KSS; KÓK, HTK og DKK
Hæhæ.. Til lukku með strákinn, hann er algjör dúlla og líkist Erni við fyrstu sýn.. ;)
Gangi ykkur vel, og til hamingju stóru bræður..
Kæra fjölskylda
Innilegar hamingju óskir með nýja drenginn... hann er algjör rúsína
kv Elín og co
Elsku Þórey og fjölskylda innilega til hamingju með nýja drenginn :) Flottur strákur!!!
Kveðja
Silla, Arnar og Agnar Tumi