

Elsku strákafjölskylda, gaman að sjá jólamyndirnar af ykkur. Erum að hlaða inn myndum og það gengur eitthvað hægt þar sem álagið á kerfinu er hrikalegt!! En Hallbera og Smári ætla að koma til okkar á morgun og gista, kannski tökum við upp símtólið og heyrumst og skiptumst á kveðjum????
Knús á línuna frá okkur í Undralandi
P.S. takk fyrir yndislega kjólinn á litlu mús, hann er æði :-D
Dííí fullt af geggjuðum myndum ... mig langar svo mikið að vera hjá ykkur - eða okkur langar að vera með ykkur öllum. Mamman tekur sig vel út sem fyrirsæta ... og hefur alltaf gert það!
Við sendum knús og kossa á línuna og hefðum sko alveg verið til í að fara með Sirrý og fj. vestur áðan.
Bestu kveðjur ykkar Líney og fj.
Halló jólagaurar...
Flottir strákar, gaman að kíkja við.
Bíðum spennt eftir jólamyndunum :)
Jólaknús
Tristan, Sveinn og mamma Díana
Hæ elsku vinkona, langaði bara að óska þér til hamingju með daginn í gær. Reyndi að hringja en mér datt í hug að þú værir upptekin. Vona að þú hafir átt góðan dag skvísa og öll fjölskyldna líka auðvitað.
Knús frá Erlu og co
Til hamingju með afmælið Þórey! Vonum að þú og þínir hafi átt góðan dag og munu eiga gleðileg jól!
Knús
Bryndís, Gummi og Katla
Sælir frændur...Við fjölskyldan vildum bara óska ykkuröllum gleðilegra jóla og hafið það sem allra best um hátíðirnar.
kv. Emilía Rós og co.
Til hamingju með afmælið elsku Þórey okkar.
Við vildum að við gætum knúsað þig og kysst í tilefni dagsins. Við vildum reyndar geta knúsað ykkur öll og ömmu og afa líka.
Gleðileg jól elsku Þórey, Elli, Valur Örn, Ernir Elí og Þórir Hrafn.
Hlökkum til að heyra í ykkur í kvöld.
Við óskum ykkur gleðileg jól og TIL hamingju með mömmu ykkar bestu jólakveðjur úr Hólum.
Halló sætu strákar:)
Gleðileg jól og hafið það gott yfir hátíðirnar:)
knúsið mömmsluna ykkar til hamingju með daginn.
knús yfir hafið í fallegasta fjörðinn:)
Bylgja Dögg og co.
Hæhæ flottu strákar.. Flottar myndirnar ykkar;) Bið að heilsa og óskiði mömmu ykkar til hamingju með afmælið og gleðileg jól..:D
Hæ hæ, við óskum ykkur gleðilegra jóla og farsældar á komandi ári, takk fyrir það gamla og takk fyrir kortið.
Kveðja úr Kleifarseli.
HæHó....
...en krúttlegir bræður. Yndislegar myndir af ykkur öllum. Máttum til með að kíkja aðeins og í leiðinni óska ykkur öllum gleðilegra jóla og farsældar á nýju ári. Takk fyrir frábært netsamband á árinu sem er að líða.
Jólakveðja
Ykkar vinir frá Akureyri
Tvíburarnir Tristan Þór og Sveinn Rúnar, mamma, pabbi og rest
Hæ hæ
Ástarþakkir fyrir sendinguna til Kristófers, hann er ekkert smá ánægður með svona flotta sokka og á eflaust eftir að skora slatta af mörkum í þeim.
Vonum að þið hafið það gott yfir hátíðirnar og njótið þeirra. Elsku Þórey til hamingju með afmælið á morgun.
Knús
Dagga og co.
Hæ Hæ sætu !!!
það er nú meira hvað þið stækkið ... alltaf gaman að kíkja á ykkur .... rosa myndalegir við baksturinn kveðja Hildigunnur og tvíburarnir og allir hinir líka
Hæ fallega fjölskylda. Allt of langt síðan ég kvittaði fyrir mig, er alltaf að skoða myndirnar ykkar. Vona að þið hafið það sem allra best. Risa knús og kossar frá Akureyri, Erla og co.
Hæ hæ, flottir strákar sem þið eigið. Gott að vera búin með flensustand um jólin. Kærar kveðjur Kristín og Co
Hæhæ, oh það er svo gaman að skoða myndirnar af ykkur, þið eruð svo duglegir strákar og mamman að dúlla með þá, yndislegt. Þú átt hrós skilið. Ég get ekki beðið eftir að fara að dúlla svona við prinsessuna mína, er alltaf að reyna en hún sefur bara :-D Eigiði góða aðventutörn og vonum að allt gangi í haginn og að allir fari nú að hressast.
Knús til ykkar frá okkur
XXX við í Undralandi
Alltaf jafn gaman að skoða myndir af ykkur og lesa um hvað þið eruð að bralla alla daga. Og já svo sammála þér þórey um "fullkomið líf" færsluna, hvað getur maður beðið um meira. Maður er alveg ótrúlega heppin:)
jólakveðja
Helga
góðan daginn
Gaman að sjá að allt gengur vel hjá ykkur. Þið eruð ekkert smá duglegið að hjálpa til við að baka. Vona að þið náið ykkur sem allra fyrst.
Knús til mömmu og pabba
Dagga og Júlíus Helgi
Elsku Ernir Elí og Valur Örn - innilega til hamingju með litla bróður, viljið þið kyssa hann frá Gretu Marín (amma á ská) og nú verðið þið að vera voða góðir (sem ég veit þið eruð...) því nú kemur jólasveinninn í heimsókn og gefur eitthvað fallegt í skóinn - ég veit að þið fáið engar kartöflur.
Knús og kossar til mömmu og pabba líka. Ætlið þið að kíkja í stórborgina fyrir jól/um jólin?
Bless í bili - Greta Marín og Castro kisi
Til hamingju með 4ra mánaða afmælið elsku Þórir Hrafn og ég vona að stóru strákarnir á heimilinu nái sér fljótt.
Knús og fullt af kossum
Hæ dúllur það er svo gaman að skoða síðuna ykkar að maður nær alldrei að hætta hún er svo spennandi
en kíkið endilega að kíkja á mína ykkar vinkona Jóhanna og Lísbet OOO svo eru jólin að koma ómægatt og ég gef ykkur smá pínu auðvitað ;-)
Sælir strákarnir mínir
Þið eruð nú aldeilis flottir - allir saman. Ykkar er sárt saknað hér á bæ og það er ansi oft sem heyrist frá Arnóri "langar að hitta Erni og Val". Hlökkum til að hitta ykkur en þangað til sendum við knús og kyss og biðjum að heilsa.
Fjölskyldan í Þorláksgeisla
Hæ hæ og takk fyrir síðast. Það var virkilega gaman að eiga svona gott vinkvennaspjall og sjá hann Þóri litla sem er algjört krútt :)
Hafið það gott á aðventunni, kærar kveðjur Stína og Co
Hæ og hó. Vorum að skoða nýju myndirnar, ALLTAF jafn gaman að skoða myndir af ykkur. Þórir flottur baðstrákur og stórubræðurnir algjörir dundarar. Ég brosi hringinn. Knús frá okkur í Lautasmáranum.
KoSSar og knús ;)
Dýrlegir Gullmolar! Alveg dásamlegir!!
"FULLKOMIÐ LÍF" sko sannarlega.
kosar og knús elskulega fjölskylda.
Gunnhildur Þorbjörg og mitt fullkomna líf.
Hæ sætu mín!
Vá hvað var gott að lesa vefdagbókina...maður getur allavega ekki haft áhyggjur af vinum sínum sem tala svona:) Yndislegt að fá svo tilfinningu yfir sig annað slagið.. já eiginlega nauðsynlegt!
Gaman að skoða myndirnar, þær eru alltaf svo flottar:) Held ég gæti alveg talað um prinsana þína endalaust líka!!
Viltu segja Erni að smiðurinn fer í dag og þá að innréttingin að vera komin upp og ég lofa að skjótast niður og taka eina mynd;) dúlla!!
Ástarkveðjur og knús
XXX
Ekkert smá grobbinn strákur sem stendur svo flott. Þeir eru líka rosa flottir þessir jóasveinar sem þið eigið.
Núna er bara málið að læra á photoshop og klippa myndirnar til í eina rosa flotta jólakortamynd ;)