

Flottar myndir!
Vonum að þetta brjóstavesen fari að taka enda, og að afinn verði eins og nýsleginn túskildingur við axlaraðgerðina!
Puss&kram
Bryndís & Katla
þið eruð svo fallegir strákar - ekkert skrítið heldur ;) mér fannst alveg rosalega gaman að skoða þessar myndir og mun gera það aftur og aftur eins og venjan er - Margrét er jú ekki búin að sjá þær og ekki Binni heldur!
æ haldið bara áfram að vera svona frábærir brasarar - við sendum mömmunni brjósta-batni-strauma... hún fer kannski bara ð vinna við brjóstaráðgjöf eftir þetta allt saman!
XXX úr Kb41 - íbúð 104 þar sem mamman les og les og les - gleymir að skila bókum á bókasafnið og er komin með nýja eldhúsdiska! Íris svefnpurka hrýtur inni í rúmi en nú er nóg komið því við ætlum að brasa með ömmu smá og kíkja á hvernig afa líður... löng kveðja... já!
Hæ sætustu strákar. Getum endalaust rúllað sömu albúmunum aftur og aftur og aftur...þið eruð svo yndislegir og hraustir og heilbrigðir. Vantar allann snjó hérna en vonandi fer hann Guð vinur minn nú að hlusta á mig og þá getum við leikið okkur í snjónum um páskana. Ég get bara ekki beðið eftir að fá að knúsa ykkur :-D
XXX við í Undralandinu
Kvitt kvitt, var að kíkja á myndarlegu þingeyrsku drengina og jú foreldra þeirra líka ;)
XXX
Greinilega langt síðan ég hef komið!! Samt er ég orðin pínu dugleg í blogginu;) Kannski að það sé líka bara ástæðan.. er bara búin með tölvu kvótann þegar ég er loksins búin að blogga!! hehe
Vá hvað maður er að verða mannalegur... langar að fara að hitta ykkur!!! Hlakka mikið til í febrúar:):)
Knús í kaf
XXX
hihi !!! Ég frétti stundum um ykkur frá Erlu Perlu. Rosalega eru þið sætir bræður.
Kveðja Ragnheiður, María Lovísa og Sigurbjörn Þór
Kvitt og knús! Flottar myndir af sætu frændsystkinunum.
Bryndís, Gummi og Katla Dagmar
Knús í kaf.
kveðja Gunnhildur og co
hæ hæ
Það hefur greinilega verið mikið stuð þegar frændurnir og frænkurnar úr Rvík mættu á staðinn, þið eruð svo flott saman öll. Auðvita hefur gengið vel í skoðuninni, annað átti ég nú ekki von á svona flottir bræður, maður nennir kannski ekki alveg að vera allan daginn að þessu ;)
knús úr Kópavognum
Dagga og Júlíus Helgi (sem reyndar steinsefur)
Skemmtilegar myndir af ykkur öllum og gleðilegt nýtt ár:)
Takk fyrir spjallið elsku Þórey og sporið ...hehehe :)
Erlan
Við söknum ykkar sko - það verður munur næst þegar litlu stýrin hittast og geta kúrt saman ... á skiptiborðinu á Kb51 ;) Við hittum Stefán í dag, hann sýndi okkur hvað hann er flinkur við að skríða - orðinn svo stór!
Takk fyrir myndina segir Binni - hún verður klárlega komin í körfuboltagalla næst þegar hún kíkir í íþróttskólann til ykkar!
knús frá okkur
Sirrý og Íris - Binni er náttúrulega í körfu og Margrét sofandi... og óboj hvað hún hrýtur núna - þreytt eftir fyrsta leikskóladaginn - þurfti að vakna snemma ;)
Takk fyrir kveðjuna sætu strákar:) Fullt að gerast á Hlíðargötunni!
knús á Eyrina fögru
Bylgja Dögg
hæhæ, gaman að skoða hjá ykkur nýju myndirnar. Flottir strákar, og
Þórir bara orðinn 5 mánaða, tíminn flýgur aldeilis. Það væri gaman að hittast með þá litlu. Við erum að byrja í sundi á morgun, verðið þið þar?
Kveðja frá Ísó.
Halló Halló...
...Vá glæsilegar myndir af ykkur öllum. Ekkert smá fallegir strákar :)
Greinilega mikið fjör í kotinu og alltaf nóg um að vera.
Kiss og knús
Tvíburarnir og mamma Díana
Tæknin er bara snild - við hér í DK og getum skoðað myndir frá því í gær ... eða nokkrum klst. Við sjáum að gaurunum okkar líður vel og þeir eru sáttir. Söknum þeirra samt og værum alveg til í að vera hjá ykkur. Hafið það sem allra best.
Knús og kossar + kveðja
Líney og Atli
Frábærar myndir, mikið hlegið af frændsystkinamyndunum!!! Bara gaman. Love Erla og stelpurnar.
Dííí þið eruð svo flottir bræður. Gæti vel hugsað mér að vera með mínum hjá ykkur núna en það gerist síðar ... er núna langt í burtu!!! Ég veit að þið passið strákana mína vel - takk.
Bið að heilsa öllum - sendi knús og kossa
Ykkar langbesta ... Líney
Hæ hæ og hó hó.
Gleðilegt ár. Flottar myndir og ekkert smá fljót að stækka börnin.....Það liggur við að þau fari fram úr manni (maður er náttúrulega bara alltaf 22 eða svo). Það er alltaf sama stuðið hjá ykkur og nóg að gera. Allir braggast vel hérna megin kveðja Jóna&co
Hæ sætu strákar. Takk fyrir kveðjuna. Knús frá okkur öllum. Ninna "frænka" og co.
Flottastir!!!
Engin spurning.
Gott að vita hvað þið hafið það gott og gott að allir eru sjúkir í eitthvað ;o)
Við erum bara sjúk í að komast vestur sem fyrst.
*KNÚS*
Hæ hó sæta fjölskylda. Gleðilegt nýtt ár og takk fyrir gamlar og yndislegar stundir. Frábært að sjá nýju myndirnar af jólatöffurunum. Erum á leið Suður á bóginn á morgun og ætlum að gista hjá Halley Berry og Smáranum...eruð þið nokkuð líka á leiðinni???? :-D(Plíííís)
Söknum ykkar sætu
XXX
Gleðilegt nýtt ár. Alltaf jafngaman að sjá nýjar myndir af ykkur og hvað þið dafnið vel. Algjörir gullmolar :)
Sjáumst vonandi sem fyrst
Knús knús
Dagga og co
Við erum alltaf að kíkja eftir nýjum fréttum og myndum...hehehe. Erla og co
við fáum nú ekki nóg af ykkur - viljum fleiri myndir...
knús
Sas og Íbb
hihi !!! fallegir strákar sem þið eigið ;) Þórir er heppin að eiga tvo stóra bræður :) Erla segir mér alltaf fréttir af ykkur !!! Gleðilegt ár
Ragnheiður, María Lovísa og Sigurbjörn Þór
Gleðilegt nýtt ár kæru frændur ... takk fyrir árið sem var að líða og ég hlakka svo til að fá að kúsa ykkur sem fyrst á þessu ári - ég veit að það eru tveir gaurar hjá mér sem óska þess heitast að komast til Þingeyrar og hitta ykkur og afa.
Bið að heilsa fólkinu ykkar - knús og kossar frá okkur öllum
Ykkar bestasta besta Líney frænka
Halló sætu gaurar...
Yndislegar jólamyndirnar af ykkur. Getum alveg skoðað þær endalaust :)
Þið eruð náttlega bara flottastir.
Gleðilegt ár elskurnar og takk fyrir frábært netsamband á árinu sem er að líka. Vonum að nýja árið færi ykkur gleði og frið.
Knús á Kinn frá okkur öllum hér í A7 - Akureyri
mamma, Tvíburarnir, Indíana, Tómas og pabbi
Hæ hæ. Takk fyrir jólakortið fína og til hamingju með afmælið um daginn Þórey :) Gaman að sjá hvað ykkur líður öllum vel og við hlökkum til að sjá ykkur um páskana - leggum upp með að vera heima þá :) Gleðilegt nýtt ár...
Ohhh... við vildum að við hefðum laumast yfir túnið og ofan í töskurnar þeirra á Kb51. Við söknum ykkar svo mikið!!!
En þá er nú gott að geta skoðað myndir og hvað þá svona yndislegar myndir af sætustu strákunum og fyrirsætu mömmunni þeirra. Pabbi þeirra myndast auðvitað líka vel og amman og afinn líka. Gaman að geta líka verið aðeins með í jólaboði líka.
Þið hafið greinilega haft það gott um jólin. Allir eru svo glimrandi fínir og kátir.
Söknum ykkar - K*N*Ú*S