

Hæ hæ og hó. Alltaf gaman að koma hér inn og skoða myndirnar ykkar. Greinilega bara snillingar hér á ferð. Gott að pabbinn slapp vel í heimferðinni og kanski jafn gott að þið fluguð bara.
Kv úr vesturbænum Dagný og co
Hæ hæ sætu strákar, alltaf gaman að sjá hvað þið eruð duglegir að leika ykkur. Þórir litli er algjört krútt og duglegur strákur. Gott að Elli slapp heill á húfi úr byltunni og í guðs bænum farið varlega á vegunum.
Verið velkomin í heimsókn um páskana, kær kveðja Kristín og Co
Gott að heyra frá þér mín kæra Þórey. Og við erum alveg í sama pakkanum greinilega því Óðinn er hættur að vilja ábótina og ég mjólka eins og nytmikil belja. Vona svo sannarlega að ég haldi áfram að vera eins og þú og nái að hafa guttann á brjósti fram til 7 mánaða þó svo ég væri alveg til í að sleppa við strembna pakkann og allt vesenið :o)
Flottar myndir af ykkur fjölskyldunni og greinilega alltaf nóg að gerast hjá ykkur. Ótrúlega finnst mér hann Þórir líkur pabba sínum, nánast eins bara.
Kveðja úr Gljúfrunum
jibbí gaman að skoða nýju myndirnar. stoppaði og skoðaði hverja einustu mynd. Hákon Ingi var ekki með sama úthald. En við komum sko og kíkjum á ykkur bráðum.
Flottar myndir af flottum strákum - eiginlega geggjaðar ... Hlökkum til að hitta ykkur smá fyrir vestan eftir rúma viku og svo aftur viku eftir það. GM og AM geta ekki beðið ... og auðvitað við stóru líka.
Knús og kyss ykkar Líney sem elskar ykkur óendanlega mikið
ALLTAF gaman að skoða myndirnar hér.
Á morgun...
hæ hæ!
Þið eruð alltaf jafn flottir strákar. Bestu bræðramyndirnar eru eiginlega þær sem enginn er að hugsa um myndavélina, svo skemmtilegir svipir:)
knús Helga
Hæ elsku stelpan mín og takk fyrir að gera þetta fyirr mig. Yndislegt að sjá þessa snáða og hvað þá æskuvin minn hann Hilmar sem ég hef ekki séð síðan síðustu jól, sko 2006!! Hlakka svo til að fá ykkur hingað á Óló í Undralandið. Knús til ykkar frá okkur
XXX
Kvitt kvitt.
Gaman að sjá sætar myndir!
Knús á alla
Bryndís og co
Guði sé lof að pabbinn er heill á húfi.
Knús og kossar fallega fjölskylda.
takk takk takk takk fyrir allar myndirnar :) þið eruð bestust - elskum ykkur líka mikið ;)
xxx
Vá hvað þið eruð sætir bræður. Alltaf svo rosa duglegir. Vildum bara kvitta í þetta sinn ,kíkjum reglulega á þessa flottu stráka
kv. Lára og Andrea líf
Bara 2 dagar! Sjáumst.
Á ekki að negla nokkrum myndum inn áður en þið komið til okkar? Hugsa sér það eru bara nokkrir dagar...loksins LOKSINS fæ ég að sjá og knúsa Þóri Hrafn og finna að hann er raunverulegur og stóru duglegu skíðastrákan, hlakka svo til að kenna ykkur sætu :-D
knús á línuna
XXX
Hæ, hæ!
Þetta eru ekkert orðnir smá stórir og glæsilegir piltar;).
Það verður gaman að fylgjast með ykkur.
Biðjum að heilsa
Maríanna, Hrafn, Mikael Máni, Kristján Breki og Alexander Jan
Halló
Rákumst á þessa síðu og voða gaman að sjá hvað þið eruð orðnir stórir.
Kveðja að austan
Bjarney og fjölskylda
Bara að kvitta fyrir okkur. Hlökkum til að sjá ykkur um páskana!
Kveðja úr sveitinni fyrir norðan - knús og kossar!!!
Bíbí, Öggi, Ragnar og Ólöf Kristín
Bara að kíkja á ykkur. Kvitt kvitt.
Kv. Erla drollari sem ætti að vera löngu farin að sofa.
Hæ sætu strákar og góðu foreldrar.Vorum að kíkja inn til ykkar. þið eruð öll frábær.Við hlökkum til að hitta ykkur vonum að það verði fljótlega.Takk fyrir allar góðu kveðjurnar frá ykkur elskurnar.Biðjum að heilsa ömmu og afa.
Hæ hæ, Voðalega eruð þið dugleg að baka. Væri til í að komast í kaffi til ykkar án þess að keyra í 8 klst ;) Annars kem ég vonandi vestur á þriðjudaginn og gisti eina nótt. Ætla að banka upp á til að sjá ykkur snúllana. Hlakka ekkert smá til. Vonandi verðið þið heima...
já ég er alltaf að tékk hér inn og bíð spennt eftir nýjum myndum.
Já Hákon Ingi var að fá stól en hann má ekki fá neitt annað en brjóstið þangað til hann verður 6 mán. (Ekki einu sinni vatn) Við erum að taka þátt í rannsókn, ath vítamín og járnforða hjá brjóstabörnum annarsvegar og matar börnum hinsvegar. Hann er sem sagt í hópi brjóstabarna :)
hæ hæ
Já væri sko alveg til í myndir ;)
Rosalega var gaman að hitta ykkur, þið eruð æði. Vonandi hittumst við fljótt aftur
Knús
Dagga, Kristófer og Júlíus Helgi
"Ég elska svo Ernir og Val" ... "og afa" "langar svo að fara til Þingeyrar" "eigum við að fara núna til Þingeyrar á þessum bíl" "við getum farið núna það er enginn leikskóli" ...
Knús og kossar ykkar allra besti vinur Arnór Már
Hæ sætu þið, sammála Sirrý með myndir ;-D En þetta er allt í lagi ég er sko alveg að fara að sjá ykkur og ég get ekki beðið dí! Það er svo langt síðan ég hef heyrt í ykkur, þarf að fara að taka upp símtólið, hey ég geri það bara núna ;-D Later
Knús
XXX
hmm - ég veit allavega að myndavél heimilisins fór í flugi vestur og lenti því ekki í neinum hrakförum.. þannig ! langar svo að sjá myndir - svona staðfestingu á að allir séu komnir heilir heim... Margrét segist ætla að koma vestur á morgun með pabba sinn, mömmu og Írisi... ég væri nú alveg til ;)
knús til ykkar allra
xxx
Hæ sætustu bræður í, ég er alltaf að kíkja á ykkur. Knúsið múttuna ykkar já og pabban líka. Kveðja Erlan.
Hæ Hæ !!!
það er nú meira hvað það er alltaf mikið fjör hjá ykkur..... Ótrúlega flottir og duglegir drengir...... alltaf gaman að kíkja við kveðja Hildigunnur og Tvillingarnir já og allir hinir líka.
freyr
Hæ Ég heiti Unnur Margrét,og er dóttir Arnar íþróttakennara, datt inná síðuna hjá Rakel Talíu ;) og langaði að kíkja á þína stráka, ég er líka með barnalandssíðu, set hana fyrir neðan;)