

Innilega til hamingju með 1 árs afmælið í dag Þórir Hrafn. Tíminn er sko fljótur að líða:) Gangi ykkur vel í flutningunum, verður gaman að fylgjast með ykkur.
Kær kveðja frá Ísó.
Sakna ykkar nú þegar ... það var svo gaman og gott að vera hjá ykkur. Næstu dagar/vikur verða líklega svolítið skrítnir hjá ykkur en ég hlakka bara mikið til að hitta ykkur næst.
Sendi knús og kossa til ykkar allra + mömmu og pabba, afa og ömmu - ykkar Líney ... + strákarnir hennar
Alltaf gaman að kíkja hér inn og sjá flotta kappa. Snemma beygist krókurinn.. sýnist þeir alveg geta stjórnað teyjum í framtíðinni;)
Kveðja úr sveitinni, Sabína St.
Hæ kæru vinir mínir.
Núna er ég sko sofnaður en mamma vildi sko þakka fyrir okkur, þetta var æðislegur dagur. Ég á sko eftir að sakna ykkar þegar við farið til Svíþjóðar, vonandi get ég komið til ykkar áður en þið komið aftur til Íslands.
Hlakka til að hitta ykkur á föstudaginn þegar þið komið í mat til okkar.
Kveðja frá Ísó,
ykkar vinur Stefán Freyr
Hæ vinir mínir, við mamma reyndum að hringja í ykkur í dag en enginn ansaði. Svo leið dagurinn bara allt of hratt og nú er klukkan orðin allt of margt og þið alveg örugglega sofnaðir.
Við vonum að þið hafið átt skemmtilegan afmælisdag. Hlakka til að sjá nýjar myndir.
Knús Katrín Anna og Erla mamma
KÆRU FRÆNDUR.TIL HAMINGJU MEÐ AFMÆLIÐ STÓRU FRÆNDUR.:-) AFMÆLISKVEÐJUR FRÁ NÖNU , AGNESI SÖRUOG DANÍEL MÁ
Sælir flottu strákar og til hamingju með 4 ára afmælið! Vonandi var dagurinn skemmtilegur :-)
Bestu kveðjur,
Katrín
Hæhæ elsku þið. Innilega til hamingju með afmælisdaginn góða. Vá bara orðnir 4 ára og svooooo stórir og sterkir. Hlökkum til að hitta ykkur. Knús til ykkar frá okkur, vonandi var dagurinn góður og vonandi fenguð þið góðar kökur ;-D
XXX Undralandið
Innilega til hamingju með daginn stóru strákar..... Ekkert smá flottir prinsar - er alveg búin að nota allann uppvaskstímann í að skoða svaka flottar myndir.... :) Og það er sko ekki verra.. híhí...
Bestu kveðjur heim á Þingeyri
XXX
Hæhæ sætu strákar og til hamingju með afmælið Valur og Ernir :)
Til hamingju með afmælið flottu, stóru strákar.
Biðjum að heilsa mömmu, pabba og litla stubb.
Afmæliskveðja,
Viktor Freyr og co.
Til hamingju með daginn elsku vinir.
knús Gunnhildur og co.
Hæ hæ sæta fjölskylda.
Innilega til hamingju með afmælið stóru strákar. Vá hvað tíminn er fljótur að líða. Vonandi fáum við nú að hitta ykkur næst þegar þið komið til Reykjavíkur. Þið verðið að knúsa gamla settið og litla bró fyrir mig.
Kossar og knús
Sigrún (sem bíður spennt eftir að komast í sumarfrí ; o ) )
Elsku Valur Örn og Ernir Elí,
til hamingju með 4 ára afmælið í dag. Vonandi eigið þið góðan dag í dag:)
knús í fallegasta fjörðinn
Bylgja Dögg og Rakel Talía
Hæ hæ og innilega til hamingju með afmælið í dag elsku Ernir Elí og Valur Örn. Takk fyrir yndislegan dag hér á Selfossi í síðustu viku. Njótið dagsins í dag, bestu afmæliskveðjur frá Selfossi, ykkar vinur Óttar Pétursson og mamma 38v4d ;)
Til hamingju með afmælin ykkar kæru tvíburabræður.
Til hamingju með afmælin ykkar Valur og Ernir..
Jovina Maríanna og Lára
Til hamingju með fyrstu skrefin þín elsku Þórir Hrafn og öll hin sporin líka. Duglegastur.
Elsku Valur Örn og Ernir Elí, hjartanlega til hamingju með 4ra ára afmælin ykkar í dag.
Vonum að dagurinn verði æðislegur! Vildum vera hjá ykkur en verðum það bara í huganum í staðinn.
Þið eruð svo ótrúlega flottir og duglegir strákar.
Kossar og knús á alla - xxx
Til hamingju með afmælin ykkar í dag.
Kveðja til allra
Bryndís og Katla Dagmar
Elsku bræður
Til hamingju með afmælin ykkar í dag :) Vonum að þið eigið góðan dag, flottu strákar
Knús
Dagga, Kristófer og Júlíus Helgi
Hæ hæ sætu gaurar.
Vildi vera fyrst til að óska Vali og Erni til hamingju með afmælið á morgun :) Alltaf gaman að líta inn til ykkar.
Halló vinir.
Skemmtilegar myndir. Það er alltaf svo mikið um að vera í kringum ykkur og mikið fjör. Það er það reyndar hér líka enda ekki annað hægt á svona stóru heimili :)
Forsíðumyndin af ykkur er bara yndisleg :) Krúttlegir og fallegir bræður :)
Bestu kveðjur frá Akureyri
Díana Lind & tvíburarnir Tristan Þór & Sveinn Rúnar
Sælir bræður og að sjálfsögðu foreldrar líka.
Mikið er gaman að skoða myndirnar af ykkur, alvöru íþróttaálfar á ferð. Elli fékk viðurnefnið ,,dundi" á sínum tíma og ég sé ekki betur en það séu fleiri ,,dundar" búnir að bætast við á heimilinu:)
Knús úr menningunni,
Irena
Halló hreystibræður!
Alltaf gaman að kíkja á síðuna ykkar og fylgjast með hvað þið eruð að bardúsa.
Bestu kveðjur vestur, Kristín og Co
Gaman að vanda að kíkja í heimsókn til ykkar. Æðisleg bræðramyndin í júlíalbúminu, fallegir piltar. Svo má nú líka láta ykkur vita af því að skólastjórahúsið hér og þ.a.l. starfið líka er laust og bíður eftir ykkur :o)
Kær kveðja úr Gljúfrunum
hæ hæ
Ekkert smá flottar myndir og mamman ekkert smá dugleg að koma þeim öllum inn. Mikið var gaman að sjá ykkur aðeins þó ekki væri í langa stund í síðustu Rvík heimsókn.
Knús
Dagga
Hæ strákar og takk fyrir kveðjuna. Næst þegar við hittumst verð ég kannski orðin jafn dugleg í fótbolta og þið og við getum spilað saman. ;)
Þið eruð nú meiri sætubaunirnar
Það er eins gott að við hittumst aftur eftir nokkra daga. Erum búin að sjá svo mikið af ykkur undanfarið að við verðum eiginlega að hitta ykkur aðeins meira.
P.S. Þið hafið greinilega fengið aðeins betra (bara smá) veður en við í Baldri.
Hæ sætu þið, smá verið að flýta sér þarna áðan, erum á leið í útilegu og erum að bíða eftir pabbanum sem er að klára sturtuna ;-D Yndislegar myndir af ykkur og vá hvað okkur er farið að langa að hitta ykkur, það bara verður að fara að gerast. Strákar þið eruð alveg langflottastir og duglegastir. Hafið það sem allra best kæru vinir.
Knús frá okkur í sólinni
XXX Undralandsliðið ;-D