

Uppfært -
20. Febrúar 2010 - nýjar myndir!
Tveir guttar eru orðnir 5 og 1/2 árs og einn 2ja og hálfs :)



Við erum bræðurnir Valur Örn, Ernir Elí og Þórir Hrafn. Valur Örn og Ernir Elí eru fæddir 22. júlí 2004 á Landspítalanum í Reykjavík en Þórir Hrafn er fæddur 12. ágúst 2007á sjúkrahúsinu á Ísafirði. Við erum ný flutt til Svíþjóðar með mömmu okkar og pabba þeim Þóreyju Sjöfn og Ellerti Erni, eftir að hafa búið á besta stað í heimi, Þingeyri, síðan við eldri bræðurnir fæddust. Við erum voða góðir strákar, góðir vinir og enn betri bræður:) Á þessari síðu ætla foreldrar okkar að vera duglegir að setja inn fullt af flottum myndum af okkur og svo ætlum við að vera voða duglegir að segja frá afrekum okkar í vefdagbókinni. Ef það er einhver síða læst hjá okkur þá er ekkert mál að senda mömmu og pabba skilaboð á thorey@elli.is og þá senda þau ykkur leyniorðið um hæl. Munið svo að kvitta fyrir ykkur í gestabókina okkur finnst svo gaman að fá kveðju - knús og kossar Valur, Ernir og Þórir
P.s. ef ykkur langar að fylgjast með afrekum pabba þá á hann síðu á www.elli.is, pabbi skrifar oft voða sniðugt þar inn :) kveðjur og kossar XXX