Fyrstu árin
Fæðingin
Ég fæddist þann 4 ágúst 2009 klukkan 12;54.
Viðstödd fæðinguna voru pabbi og mamma að sjálfsögðu.
Hárlitur minn var skollitað og augun voru dökkblá
Þegar ég fæddist var ég 3935 grömm eða 16 merkur og 52,5 cm að lengd.
Fyrstu hríðir komu um kl 10;00 og tók fæðingin um 3 klst.
Pabbi þurfti að vekja mömmu til að fara á spítalann.
Eftir að ég fæddist fór ég í hreiðrið og svaf þar fyrstu nóttina.
Sama dag og ég fæddist þá á Steingrímur J afmæli.
Nafngjöfin
Nafngjöfin fór fram þann 27. september heima hjá okkur í Skálagerði 3.
Hilmar Örn Alsherjargoði bað guð og góða vætti að vernda mig og ég fékk nafnið Ari Snær.
Ara nafnið kemur frá föðurafa mínum en nafnið Snær er af því að mömmu og pabba fannst það fallegt og passa vel við mig.
Á nafngjafardaginn var fallegt veður en frekar kalt.
Veislan var haldin heima í Skálagerði og lukkaðist rosalega vel.
Gaman var að fá alla í heimsókn, takk fyrir mig.
Afmæli
Fyrsta afmælið mitt var þann 4.ágúst árið 2010.
Veislan var haldin Laugardaginn 10.ágúst.
Kakan mín var með mynd af mér sjálfum og með einu kerti.
Aðal afmælisgjöfin var þrihjól frá ömmu og afa á Vopnafirði
Ég klæddist blárri skyrtu í veislunni.
Jól
Fyrstu jólin mín voru árið 2009.
Ég var hjá heima í Skálagerðinu með mömmu, pabba og Unnari á aðfangadagskvöld.
Ég var ekkert hræddur við jólasveininn.
Ég hafði ekki mikinn áhuga á jólagjöfunum, pakkaskrautið heillaði meira.
Ég sofnaði í kringum miðnætti á aðfangadagskvöld.
Veðrið á fyrstu jólunum mínum var mjög fallegt, smá snjóföl. Mikill snjór var bæði á Þórshöfn og Vopnafirði en þangað fórum við milli hátíða og vorum fram á nýja árið
Ég klæddist ljós bláum bol, vesti og bláum fleuelsbuxum á aðfangadagskvöld.
Helstu viðburðir fyrstu árin
Fyrsta brosið kom þegar ég var tveggja vikna
Sat án hjálpar 6 mánaða
Fyrsta orðið var mamma
Fyrstu sporin voru tekin 27.ágúst 2010
Hæð og þyngd
Við fæðingu var ég 52,5 cm og vó 3935 grömm.
Þriggja vikna vó ég 4470 grömm. Hafði þá þyngst um 410 grömm á einni viku:)
Sex vikna vó ég 5410 grömm og var 60 cm. Allt lítur út fyrir að ég verði stór eins og mamma...:)
Níu vikna var ég 62 cm og vó 6135 grömm.
3ja mánaða var ég 64,6 cm og vó 6895 grömm.
5 mánaða var ég 69,5 cm og vó 8010 grömm.
6 mánaða var ég 71 cm og vó 8780 grömm.
8 mánaða var ég 73,2 cm og vó 9595 grömm.
10 mánaða var ég 75,5 cm og vó 9705 grömm.
12 mánaða var ég 78 cm og vó 10395 grömm.
18 mánaða var ég 84 cm og vó 12105 grömm.
Mataræði
Ég var á brjósti frekar lengi og hætti á brjósti þann 15.ágúst 2010.
Daginn sem ég hætti á brjósti var ég 12 mánaða og 1 vikna.
Ég var mjög duglegur að borða og borðaði allt.
Uppáhalds maturinn minn fyrst um sinn var grautur.
Ég byrjaði að borða fastan 7 mánaða.