Unnar Gamalíel og Ari Snær
 

Gullkorn

Hér verð skrásettir þeir gullmolar sem koma gjarnan frá Unnari og við höldum að  við gleymum aldrei en gleymast samt{#emotions_dlg.laughing}

Unnar spyr: Mamma ertu viss um að Ari verði Íslenskur?

Unnar var allur á iði og ég spyr Unnar minn þarftu að pissa nei nei ég er bara svona stressaður.

Við erum að labba heim af leikskólanum einn daginn ég man ekki alveg hvert umræðuefnið var nákvæmlega en það tengdist matarinnkaupum. Þá kom frá mínum bannað að kaupa og selja svarta vinnu mamma. Já veistu hvað það þýðir spyr ég. Já það er svona þegar það er engin skólastofa og vegurinn bara hættir. (börnin taka vel eftir auglýsingum).

Dagbjört og Unnar að spjalla. Dagbjört af hverju ætlarðu að giftast Degi? Bara hann elskar mig. (erum við ekki örugglega bara 5 ára{#emotions_dlg.wink}).

 Unnar að tala um bróðir sinn: hann skemmtir sér alveg eins og hann hafi lífið að leysa

Unnar útbjó fallegt kort handa pabba sínum í tilefni feðradagsins inní stóð: Elsku pabbi, þú vinnur mikið. Ég elska þig. Þú ert góður við mömmu. Unnar

Unnar er djúpt hugsi og svo kemur: Mamma ég held að við Ari séum tvíburar en bara ekki jafn gamlir. Nú hvernig færðu það út? Af því að við erum með alveg eins haus.

Við Unnar að labba á leikskólann og hann er að rifja upp ýmislegt sem hann hefur brallað með Hibba afa sínum s.s. fjórhjólaferðir. Mamma hvað er Afi gamall? 63 ára svara ég. Hann segir ekkert í smá stund svo kemur Gott þá er langt þangað til hann verður hundrað ára og deyr. Ég vill að hann verði alltaf til þegar ég er til því ég elska hann.

Við  Unnar fórum með Ara í vagninum í frekar langan göngutúr, vorum að útrétta ýmislegt fyrir jólin. Svo þegar við erum komin heim og Ari er vaknaður fer Unnar að segja bróður sínum frá þessari ferð: Ari við löbbuðum svo langt að stóri bróðir þinn horaðist og horaðist og horaðist og horaðist og horaðist og  horaðist...                              málið var að hann fékk töluvert nefrennsli í göngunni en ekki það að kílóin hafi fokið af.

Unnar hefur líkt og flest börn leitt hugan að því hvað hann ætli að verða þegar hann verður stór. geimfari og að laga bíla er eitt af því sem upp hefur komið. En fyrir jólin fór hann á tónleika með Orra vini sínum á Ljótu hálfvitana og upp frá því fékk hann mikinn áhuga á þeim. Sem endaði í að hann ákvað að hann ætlaði að verða hálfviti númer 10 þegar hann yrði stór!!