

Hæ hæ og til hamingju með síðuna ykkar!!! Mikið rosalega eruð þið sæt!!! Haldið áfram að blómstra! Anna og Aron Ingi!
Hæhæ!
Gaman að sjá að þið eruð komin með eigin heimasíðu, til hamingju með hana. Gangi ykkur vel að stækka og vonandi sjáumst við einhvern tímann :)
Kveðja
Hófí netfrænka :)
Hæ sætu systkini og velkomin í heiminn. Þið eruð nú meiru hetjurnar og dúllurnar. Vonandi fáum við svo að sjá ykkur einhverntímann.
Kossar og knús
Stoltu netfrænkurnar
Guðrún Dís og Sigrún mamma
Hej dúllur,
Til hamingju með heimasíðuna, audda alveg sami bakgrunnur og Hallgrímur byrjaði með. Gaman að sjá ykkur í gær, þó þið hafið verið sofandi. Hitti ykkur vonandi fljótlega. Býst við að afi Beggi komið í heimsókn í kvöld með vögguna. Bið að heilsa mömmu og pabba.
Kv. Ingunn frænka
Hæ hæ Þorlákur og Ingibjörg!
Til hamingju með 4 vikna afmælið og velkomin heim. Hlakka mikið til að hitta ykkur og knúsa, kem fljótlega.
Bið að heilsa Mömmu og Pabba.
Kveðja
Guðný
Til hamingju með síðuna !! Hlakka til að sjá fleiri myndir c",)
Kær kveðja
Ágústa (líka hnoss-frænka) ;)
Hæ fjölskylda...
en hvað börnin eru yndisleg! Gaman að geta skoðað myndir af ykkur öllum og fylgst með ykkur hér :)
Bestu kveðjur,
Eva
Hæ hæ, til hamingju með síðuna, þau eru yndisleg bæði tvö.
Kveðja
Sigga Lára
Til hamingju með síðuna Þorlákur og Ingibjörg, það verður gaman að fylgjast með ykkur vaxa og dafna.
Kveðja Ösp (Hnoss-frænka)
Sæl elsku litlu krúsidúllur.
Velkomin heim til ykkar.Mikið er gaman að sjá myndirnar af ykkur og vita að þið dafnið vel. Dagur Elís frændi kom í heimsókn áðan ásamt Helgu Margréti, mömmu og Lillu frænku, það var nú gaman. Vona að allt gangi vel hjá ykkur og við fylgjumst með og hlökkum til að sjá ykkur þegar þar að kemur.
Bestu kveðjur frá Skútustöðum og Garði.
Sæl öll og innilega til hamingju með englana, þau eru alveg yndisleg. Vonandi gengur allt eins og í draumi hjá ykkur. Hlakka til að sjá fleiri myndir Flott heimasíða.
Kv. Dagný (Hnossinu)
Hæ hæ
voða flott heimasíða:) Bið að heilsa öllum þarna í Húsalindinni,
Hildur Valdís
Halló kæra fjölskylda
Mikið er gaman að geta fylgst með ykkur á netinu. Við reynum svo að koma og sjá ykkur í eigin persónu áður en við yfirgefum landið í haust.
Kveðjur úr blíðunni á Akureyri
Binni, Hekla, Atli Teitur og Bjarki
Mikið hlakka ég til að hitta ykkur í eigin persónu!! Kveðja Einar Örn kominn á pensilín :)
Mikið hlakka ég til að hitta ykkur í eigin persónu!! Kveðja Einar Örn kominn á pensilín :)
Hæ sætu systkini, mamma þorði ekki að koma í heimsókn til ykkar síðasta daginn á Íslandi þar sem henni fannst hún vera pínu slöpp, en það er sko pottþétt að við kíkjum á ykkur í júlí þegar við komum.... Þið eruð svoddan krútt... Knús frá okkur öllum í Gautaborg - Heiðrún, Jói, Karen og Bói
Takk fyrir kveðjuna frá ykkur og við munum kíkja betur á ykkur þegar fleiri myndir koma - vorum aðeins að kíkja á ykkur hjá Einari Erni. Gangi ykkur vel. Kveðja frá okkur úr Kópavoginum
Halló Þorlákur og Ingibjörg. Við vorum með mömmu ykkar og pabba á foreldranámskeiði fyrir verðandi tvíburaforeldra og bíðum nú sjálf eftir að okkar kríli komi í heiminn. Við skoðuðum myndirnar af ykkur inni á síðunni hjá frænda ykkar og þið eruð svo sæt ;o) Hlökkum til að fylgjast með ykkur og sjá fleiri myndir. Við látum ykkur vita þegar okkar kríli ákveða að mæta í heiminn. Kær kveðja, Guðrún og Bjarki.
Halló Þorlákur og Ingibjörg og til hamingju með heimasíðuna ykkar.
Mér finnst þið nú óskaplega lítil en ég held að þið munið ná mér fljótlega.
Mamma og pabbi biðja að heilsa og við hlökkum til að hitta ykkur
Kveðja
Hilmar Þór og co.
Halló Þorlákur og Ingibjörg og til hamingju með heimasíðuna ykkar.
Mér finnst þið nú óskaplega lítil en ég held að þið munið ná mér fljótlega.
Mamma og pabbi biðja að heilsa og við hlökkum til að hitta ykkur
Kveðja
Hilmar Þór og co.
Elsku Ingibjörg, Þorlákur og foreldrar
Til hamingju með að vera komin í heiminn litlu krútt og til lukku með nöfnin ykkar. Mamma sá myndir af ykkur á síðunni hans Einars Arnar og finnst þið algjörar rúsínur. Haldið áfram að stækka og dafna.
Kveðja,
Auður Ísold og Una mamma
Kveðja,
Auður Ísold og Una mamma
Halló og til hamingju með síðuna!!! Mikið eru þið sæt og mikil krútt. Ég segi nú ennþá að Kristín sé með börn í maganum enda hef ég ekki séð ykkur sjálfur (bara á myndum). En nú fer að styttast í það ;-) Gangi ykkur vel áfram. Knús og kossar úr Engihjalla