

Halló fallegu börn.
Það er greinilegt að þið hafið haft það gott í norðlenska loftinu - stækkað og dafnað vel.
Haldið því áfram - kveðja frá Þóreyju og Ágúst Axel litla gogg
Æðinslegar myndirnar af ykkur.. :-)
Hæ hæ Pjakkur og Mýsla. Rosalega var gaman að skoða nýju myndirnar ykkar. Mamma dáist alveg að mömmu ykkar að vera svona klár að gefa ykkur báðum að drekka í einu; hún þyrfti að læra tæknina við þetta :-/ Við sjáumst vonandi fljótlega! Tvíburakútarnir.
HæHæ æðislegar flottar nýju myndirnar af ykkur þið eruð ekkert smá fljót að stækka :) Mamma biður að heilsa líka :)
Kveðja Andri Freyr og mamma :)
Hæ sætu tvíburar,
rosalega gaman að sjá myndir af ykkur og sjá hvað þið eruð falleg og dafnið rosa vel.
Kærar kveðjur frá Ástralíu
Viktoría Guðrún
p.s. Mamma biður að heilsa ykkur og duglegu mömmunni ykkar.
Rosalega eruð þið flott og dafnið vel gaman að sjá nýju myndirnar við vorum búin að bíða og bíða:)Kærar kveðjur frá okkur úr Keflavíkinni og til mömmu og pabba líka:)
Mikið svakalega var gaman að sjá ykkur öll í dag, ég er alveg æstur í að passa ykkur krílin litlu!! Þegar þið fóruð þá bara gat ég ekki hætt að skæla, ég hélt að ég fengi að prófa að fara einn hring í nýja bílnum, skil ekki af hverju ég mátti bara sjá hann...... Prófa hann bara við tækifæri, kv. EÖ
Sæl elsku frænka og frændi.
Þið eruð ofsalega sæt og lítl krútt.Ég er orðinn eins og hálfs árs og finnst ég voða stór. Amma mín Guðrún Björt og amma ykkar Ingibjörg eru systradætur og þær eru voða montnar af okkur og alltaf að tala um okkur (Við erum meira að segja merkilegri en Lions). Hlakka til að hitta ykkur bráðum.
Kveðjur - Tómas Nói (kíkið á mína síðu)
Sæl elsku frænka og frændi.
Þið eruð ofsalega sæt og lítl krútt.Ég er orðinn eins og hálfs árs og finnst ég voða stór. Amma mín Guðrún Björt og amma ykkar Ingibjörg eru systradætur og þær eru voða montnar af okkur og alltaf að tala um okkur (Við erum meira að segja merkilegri en Lions). Hlakka til að hitta ykkur bráðum.
Kveðjur - Tómas Nói (kíkið á mína síðu)
Halló sætu systkini. Hlökkum til að sjá nýjar myndir ;o) og hitta ykkur við fyrsta tækifæri. Kveðja, Guðrún, Bjarki og tvíburakútarnir.
Hej þið :þ
var að vonast til að sjá nýjar myndir þar sem það er svo langt síðan ég sá ykkur síðast, en nei, verð bara að bíða þangað til í kveðjumatnum á morgun :S
Jæja best að halda áfram að pakka niður :)
Kv Hallgrímur og mamma
Hæ elskulegu litlu börn -
Til hamingju foreldrar með yndislega tvíbura.
Vonandi fæ ég að sjá ykkur sem fyrst, það bíða margir hér í Blóðbankanum eftir að sjá Kristínu og ungana.
Enn og aftur til hamingju
Guðrún Svans
Halló litlu krútt - gaman að fylgjast með ykkur dafna og skoða myndir af ykkur.
Hafið það gott á norðurlandinu!!
Kveðja Ágúst Axel og Þórey mamma
Jæja núna erum við bara að fara til Spánar á eftir!! Þegar við sjáum ykkur næst verðið þið orðin RISA stór :) Hlökkum til að sjá ykkur fyrir verslunarmannahelgi,en svo förum við beint norður (flandrið á þessu liði,hehe). Hafið það rosa gott,kv. úr Engihjallanum
Halló alltaf gaman að kíkja á myndirnar af ykkur. Ég var að koma úr SKÍRNAR-VEISLU,barnið fékk nafnið BRYNJAR KARL, og er sonur Hákonar og Öldu, þau voru síðan að leggja af stað til Akureyrar þar sem þau búa í sumar, bestu kveðjur Elsa
Hæ hæ, okkur sýnist nú á öllu að við hittum ykkur nú bara á Akureyri en við komum þangað líklega 27. júlí og verðum í Steinahlíðinni.... Hlökkum til að sjá ykkur sætu krúsídúllur. Heiðrún og co
Halló Ingibjörg og Þorlákur
og velkomin í heiminn.
Loksins,loksins komst ég inn á heimasíðuna ykkar og mikið var nú gaman að sjá allar þessar myndir af ykkur og greinilegt að þið dafnið vel. Ég heyri líka að þið eruð farin að sofa vel og það er gott, það væri nú gaman að hitta á ykkur á Akureyrinni ef þið eruð þar í fríi, líði ykkur sem allra best og ég bið ofsalega vel að heilsa mömmu ykkar og pabba.
kveðja Bjögga
hææ þið eruð svo flott og hraust :) æðislega gaman að geta fylgst með ykkur hérna, kær kveðja Vala og Andri Freyr
Var að skoða myndir. Það var mjög gaman að hitta ykkur fyrir helgi. Var ekki planið að fara í göngutúr meðan þið eruð á Norðurlandinu? Við heyrumst vonandi.
Kveðja, Vala og Björg Elva
Ég er strax farin að sakna ykkar, og ég mun ekki sjá ykkur aftur fyrr en í lok júlí (hvernig verð ég orðin þá!!). Þið voruð rosalega dugleg á leiðinni til Akureyrar frétti ég, sváfuð bara alla leið, rétt hjá ykkur að njóta þess bara að sofa í bílnum. Kossaregn, Malla frænka
Vorum að skoða síðuna, gaman að geta skoðað allar myndirnar. Mikið rosalega eru þau krúttleg og sæt og dugleg að stækka!
Bestu kveðjur frá Okkur Lilja og co
Halló elsku litlu kríli.. ég komst að því að það væri búið að búa til svona geggjaða heimasíðu fyrir ykkur þegar Ásta föðursystir ykkar var að reyna að komast inn á þetta í dag og var ekki alveg með það á hreinu hvað hún ætti að gera... svona er þetta "gamla" fólk í tækninni!!! hehe Ég vil líka segja ykkur að ég er stödd í Reykjavík og er meira en til í að hitta ykkur.. ég hringi örugglega í pabba ykkar og ath. málið;) Hlakka til að sjá ykkur aftur litlu yndi;* Kveðja frá Önnu og Kidda;) Já og svo biðjum við auðvitað að heilsa foreldrum ykkar!!
Halló fallegustu! Mikið rosalega eruð þið flott, við hlökkum til að hitta ykkur. Kveðja Helga, Pési og Hilmar Þór.
Hæ sæta fjölskylda.
Kíki hér annað slagið, gaman að sjá hvað gengur vel og hvað skottinn ykkar dafna vel.
Kveðja frá Hornafirði,
Kristín og fam.
Erum búnar að skoða myndir í allt kvöld . Kveðja úr Ey .
Erum búnar að skoða myndir í allt kvöld . Kveðja úr Ey .
Til hamingju með þessi yndislegu börn.
Búin að vera í allt kvöld að skoða ykkur öll. Þau eru fallegust!
Kveðja úr sveitinni
Dí hvað þið eruð dugleg að gera alla skapaða hluti!! Stækka, drekka án hatta og sofa nánast alla nóttina (EÖ var nú ekkert að bjóða móður sinni einhver svoleiðis þægindi, svaf ekki heila nótt fyrr en rúmlega átta mánaða!!!) Haldið þessu áfram dúllurnar mínar. Kveðja úr Engihjalla
Halló sætu kríli!
Við erum að vinna á Barnadeildinni á FSA (á Akureyri) og vorum að gáttast á því hvað þið væruð yndisleg lítil börn. Sigga er vinkona Þorgerðar (móðu) og Eyrún þekkti pabba ykkar þegar hann bjó á Húsavík ( og var líka einusinni að vinna með Þorgerði móðu :) ) Haldið áfram að vera svona dugleg að stækka!!!!
Kær kveðja til Fjölskyldunnar
Sigga Magga og Eyrún Björg
Komið þið sæl
Það er alveg frábært að sjá ykkur, mýsla og pjakkur... mikið dafnið þið vel. Vonandi fer að styttast í einhvern fjölskyldudag svo það sé hægt að skoða ykkur enn betur.
Kær kveðja,
Erna, Sæmi og Birnir Þór