

Hæ! Flottar skírnarmyndirnar; nú bíðum við spenntir eftir fleiri myndum ;o) Vonandi getum við farið í göngutúr saman á næstu dögum! Kær kveðja, Aron Freyr og Viktor Óli.
Nær klukkunni hvað?? Takk fyrir kökuna og pönnsurnar í gær - sjáumst!
Þorgerður og hitt Funalindarliðið
Hæ krúsídúllur !!
Til hamingju með 4 mánaða afmælið ykkar :-)
JIBBÍ, gaman gaman, við Hallgrímur alveg himinlifandi að það séu komnar nýjar myndir. HVAÐ ERTU EIGINLEGA AÐ GEFA ÞEIM AÐ BORÐA ??? TRÖLLAFÓÐUR ???
En þetta var nú auðveld gestaþraut ;) Þorlákur til vinstri og mýsla til hægri :D er það ekki :S Annars getur mar alltaf þá falið sig bak við það að mar er svo langt í burtu og ekki búin að sjá þau í allt allt allt of langan tíma. Knúsí knús.
Bæjó í bili, Ingunn og Hallgrímur
Ég held að Ingibjörg sé nær klukkunni og Þorlákur já þá hinum megin. Takk enn og aftur fyrir frábært kaffiboð í dag!! (held að ég sé bara enn södd eftir það :)
Til hamingju með 4 mánaða "afmælið". Rosa stuð hjá okkur, ballið byrjaði 5:45 í morgun, en kúrðum nú eitthvað áfram, alveg vöknuð hálf átta (það er nú ekkert snemmt). Kveðja púkarnir :)
Til hamingju með 4 mánaða "afmælið". Rosa stuð hjá okkur, ballið byrjaði 5:45 í morgun, en kúrðum nú eitthvað áfram, alveg vöknuð hálf átta (það er nú ekkert snemmt). Kveðja púkarnir :)
Hæ þið, innilega til hamingju með 4. mánaða afmælið :*
Hlökkum rosa til að sjá skírnarmyndirnar, og bara einhverjar myndir sem sýna hvað þið eruð orðin stór :P
Jæja best að fara og halda áfram að læra :S Hallgrímur biður að heilsa, hann er bara á fullu að leika að ÖLLU nýja dótinu sem hann fékk í afmælisgjöf.
Hej hej
Ingunn og Hallgrímur danabúar
Voðalega eruð þið nú sæt við mömmu og pabba að sofa svona mikið, það er alveg ómetanlegt... Við bíðum spennt eftir skírnarmyndunum. Bless í bili - Knús frá okkur í Gautaborg
Hæ hæ! Er alltaf í vinnunni núna, var á aukavakt í gær en verð í fríi á morgun. Þá væri nú gaman að fá að hitta ykkur -
sjáumst, Þorgerður
Haldið endilega áfram að sofa svona vel á nóttunni, það er svo gott fyrir foreldra ykkar að ná að sofa vel :) Kveðja Einar Örn stóri frændi
Gaman að kíkja á ykkur. Ég sá ykkur í gönguferð á egótónleikunum með Þorgerði móðursystur ykkar (ég var með henni í MA) og dáðist að dugnaðinum. Maður tekur alltaf eftir tvíburavögnum þegar maður sér þá.
Kveðja
Hrafnhildur Hekla og Katla 15 mána.
Hæ vorum að skoða myndir erum búnar að sjá takk fyrir. Kveðja Eydís og mamma.
Hej sætu þið, jæja nú erum við mamma búin að læra að minnka myndirnar á heimasíðunni minni, þannig að þá ætti mamma ykkar að vera ánægð, en ég meina kommon hvenær eiga að koma nýjar myndir inn á ykkar heimasíðu. Fúlt, við verðum að fá að fylgjast með :s
Þið eruð samt rosalega dugleg að borða graut, og mamma ykkar ekkert smá rosalega dugleg að labba með ykkur, þarf greinilega ekkert á kortinu hennar mömmu í sporthúsinu að halda ;)
Jæja verð að halda áfram að sofa.
Sakna ykkar rosa rosa rosa rosa mikið.
Hej hej
Hallgrímur [og mamma]
Hæ hó! Verð nú að fara að sjá ykkur öll, hef verið alltof upptekin í vinnunni þessa vikuna... Heyrumst í dag, kv. Þorgerður móða
Við EÖ heima í dag, fór með hann heim um tvö í gær úr leikskólanum með hita. Var með mikla beinverki í gærkvöldi en virðist vera hressari í dag. Kær kveðja til ykkar allra,göngugarparnir ykkar!!!!
Halló göngugarpar; til hamingju með skírnina ykkar um daginn ;o) Hlökkum til að hitta ykkur sem fyrst. Kær kveðja, Aron Freyr og Viktor Óli.
HæHæ sætu tvíburar :) vá hvað þið eruð orðin dugleg, bara byrjuð að borða graut og sofa svona vel :) vildi líka bara þakka fyrir mig og mína í skírninni ykkar, hún var rosalega falleg og þið fenguð svoo æðislegt veður :)
kveðja Andri Freyr og fjölsk.
Halló frænka og frændi.
Flott heimasíða hjá ykkur og flottar myndir, þið eruð sannkallaðar dúllur :-) Kveðja til ykkar allra.
Halló sætustu tvíburar veraldar,
jæja nú voru þið skírð í gær, og innilega til hamingju með það, en hvað er með það að það séu ekki komnar neinar myndir frá því inn á heimasíðuna. Halló, hvað með okkur sem því miður komumst ekki í partýið :)
Já svo var mamma þín eitthvað að pissa mig með myndastærð á heimasíðunni hans Hallgríms, jæja hún verður þá að kenna mér það :S
Jæja sakna ykkar geðveikt mikið.
danmerkurfararnir
ps. Hallgrímur biður að heilsa ;)
Hæ hæ
Maður fær bara ekki nóg af ykkur, við urðum að kíkja á síðuna og skoða myndir af ykkur, þið eruð svo yndisleg, takk fyrir æðislegan dag, þið eruð draumabörn.
Kveðja
Ingó, Fjóla og Esra "dude"
Hamingjuóskir á skírnardaginn - þið voruð auðvitað eins og ljós í allan dag. Takk fyrir góðan og sólskinsríkan dag! Þorgerður móða og skírnarvottur
Hamingjuóskir á skírnardaginn - þið voruð auðvitað eins og ljós í allan dag. Takk fyrir góðan og sólskinsríkan dag! Þorgerður móða og skírnarvottur
Halló Ingibjörg og Þorlákur.
Gaman að heyra hvað þið eruð dugleg :) Alltaf jafn skemmtilegt að geta fylgst með ykkur og heyra hvernig ykkur gengur.
Kær kveðja Inger Rós
Hallo litlu krútt! Vorum að skoða síðuna ykkar hér í London. Þið hafið nú aldeilis stækkað. Hér er búið að vera rosa gott veður og eiginlega bara allt of heitt,ég hlakka til að koma til Íslands og hitta ykkur. Gangi ykkur vel, kveðja Högni
Hæ hæ ég Var að skoða þessi rosalega krúttlegu og fallegu börn, gott að allt gengur svona vel. Ótrúlegt hvað tíminn flýgur áfram, bara orðin þriggja mánaða! Til hamingju með þau enn og aftur, þau eru æði!!!
Beztu kveðjur Lilja Dís
Hæhæ
Voðalega eruð þið orðin stór og myndarleg :) Endilega skilið því til mömmu ykkar að hún megi alveg kíkja til mín þegar hana langar í göngutúr, ég er hérna í Gullsmáranum ;) Og þið eruð sko öll velkomin hvenær sem er í heimsókn :)
Kveðja
Hófí og bumbukrílið
Var aðeins að kíkja á síðuna. Þið eruð algjörar dúllur bara :) Rosalega falleg! Gaman að sjá myndirnar af ykkur, kíkjum aftur á ykkur seinna ;)
Kv. Erla, Karen Ósk og Bjarni Veigar
Hæ hó! Vonandi förum við nú að geta hitt ykkur, Dagur Elís heldur skárri í dag, samt enn með hita. Skellum okkur í labbitúra um hverfið þegar allir hafa náð heilsu á ný!!
Kv. Þorgerður, Helga Margrét og Dagur Elís
Hæ hæ Pjakkur og Mýsla. Takk fyrir heimsóknina í dag; það var mikið gaman að hitta ykkur þótt annar okkar hafi nú eiginlega sofið alla heimsóknina af sér. Hittumst vonandi fljótt aftur! Kær kveðja, Krúttmundur og Krúsilíus.