

Hæ krúsímýslur! Gaman að skoða nýju myndirnar af ykkur. Nú þarf mamma ykkar að fara að hrista af sér pestina svo við getum farið að hittast ;o)
Kv, Guðrún, Aron Freyr og Viktor Óli.
Jeddúddamía hvað þið eruð falleg börn, verðið bara sætari og mannalegri með hverjum deginum. Biðjum að heilsa gamla settinu á heimilinu. Knús frá okkur í Gautaborg
Jeddúddamía hvað þið eruð falleg börn, verðið bara sætari og mannalegri með hverjum deginum. Biðjum að heilsa gamla settinu á heimilinu. Knús frá okkur í Gautaborg
Sæl frændi og frænka.
Rosalega eruð orðin mannaleg og stór(orðið svolítið síðan við kíktum á síðuna). Gaman að skoða myndirnar af ykkur og öllum hinum líka. Þið eruð líka voða góð að lofa mömmu að sofa stundum alla nóttina, ekki veitir af með tvö svona skott.
Vonum að þið hafið það öll gott. Bestu kveðjur til foreldra ykkar frá okkur öllum.
Dóróthea stóra stelpa sem varð tveggja ára í gær.
Rosalega er krúttleg myndin af ykkur að haldast í hendur :) Ansi góð mynd af mér þarna í september lok (þó svo að ég sé með ólitað hár síðan í apríl,en er búin að bæta úr því núna). Kveðja Malla og Einar Örn sem er allur að hressast
Hæ sætu snúllur!
Það er alveg rosalega gaman ad fá að fylgjast svona vel med ykkur. Þið eruð orðin alveg rosalega stór og dugleg. Ég öfunda ykkur ekkert smá að fá að fara í sund, það er ekkert svona flott ungbarnasund til hérna í Adelaide. Mamma ykkar er líka alveg rosalega duglega að labba með ykkur!.
Við hittumst vonandi á næsta ári því mamma og pabbi ætla að koma með mig til Íslands í smá heimsókn hehe...
Kengúrukveðjur frá Viktoríu (og mömmu og pabba auðvitað líka=
Hæ hæ !
Rosa fínar myndir af ykkur :-)
Mamma er búin að lofa því að koma með mig í heimsókn um leið og veðrið batnar eitthvað, þá verður sko gaman..
kv. Anton Oddur
Hæ Þorlákur og Ingibjörg
Það er svo gaman að skoða síðuna ykkar, þið eruð algjört æði, vonandi komið þið í saumó á þriðjudaginn. Hvar er annars þetta Október albúm sem þú varst byrjuð á Kristín, við viljum sjá fleiri myndir. Við vorum að bæta við myndum á síðuna okkar og loksins var eitthvað skrifað í gestabókina, endilega kíkjið.
Kveðja
Esra og mamma
Hæ litlu kríli;) Ég varð bara aðeins að kíkja á ykkur.. þið eruð svo sæt;) Ég er að fara til Ameríku á eftir í helgarferð!! Er bara að láta tímann líða;) Hlakka til að sjá ykkur bjútíbollur;*
Hæ Pjakkur svefnpurrka og Mýsla rúsínurófa. Vonandi fer mamma ykkar að hressast svo hún geti drifið mömmu okkar af stað í göngutúr, en hún er samt beðin um að vera búin að ná sér 100% því öll kvefpest er vinsaml afþökkuð á þessu heimili ;o) Við fengum sprautu í dag og vorum ekkert lítið duglegir; það var bara mamma sem átti smá bágt þegar læknirinn sprautaði okkur! Sjáumst vonandi sem fyrst, Aron Freyr og Viktor Óli.
Knúsið nú pabba ykkar fyrir okkur hér í Engihjalla og smellið á hann 32 afmæliskossum frá okkur :) TIL HAMINGJU MEÐ DAGINN SIGGI
Halló flottu systkini:-)
Við dáumst alveg að ykkur í sundinu en við erum ekki farnir að fara ennþá. Mamma er ekkert viss um að hún fari með okkur, eitthvað hikandi vegna eyrnabólgna og sveppasýkinga sem hún hefur heyrt af......
Gangi ykkur vel áfram að stækka,
OFH og TIH
Hæ hó! Flottar nýju myndirnar, takk takk. Hildur sundþjálfari þakkar sérstaklega fyrir sig!! Kv. Þorgerður (á leið í vinnuna einu sinni enn...), Hildur þjálfari og Dagur Elís stóri frændi, bráðum afmælisbarn!!
Maður á bara ekki orð yfir það hvað þið eruð flott!!! Þið stóðuð ykkur eins og hetjur í sundinu eins og myndirnar sína og eruð orðin svo stór og dugleg! Sætir frændur og frænkur fengu líka að vera með, ekki er það verra :)
Elsku systkini til hamingju með 5 mánaða afmælið...tíminn flýgur áfram.
kv.Ágústa, Styrmir og Andrea
Hæ hæ. Til hamingju með 5 mánaða afmælið ;o) Ótrúlegt hvað tíminn líður hratt!
Kveðja, Aron Freyr og Viktor Óli 3ja mánaða guttar.
Hæ hæ. Til hamingju með 5 mánaða afmælið ;o) Ótrúlegt hvað tíminn líður hratt!
Kveðja, Aron Freyr og Viktor Óli 3ja mánaða guttar.
Til hamingju með 5 mánaða afmælið, elsku krútt, það var gaman að hitta ykkur í saumó um daginn.
Kveðja
Fjóla
Fær maður ekkert að sjá nýjar myndir hérna?? Er ekki fínt að drífa í því í tilefni 5 mánaða afmælisins?
kv. Þorgerður
Hæ var að skoða ykkur þið eruð orðin svo STÓR og flott.Kveðja úr Ey.
Takk kærlega fyrir heimsóknina í leikskólann. EÖ varð frekar hissa að sjá alla þessa gommu koma að sækja sig. Mér finnst að þið ættuð að koma aftur fljólega, þið þurfið að nota strætómiðana ykkar!!!
Þið eruð svo sæt!!!!! og krúttleg!!!!!ég er nú bara að skoða síðuna ykkar ... voða fín
bæ bæ
Sæl þið öll. Er á heimasíðuflakki að skoða flottar myndir. Ekki lítið sem menn hafa stækkað síðan við Álftavatnið. Þurfum að fara að sjást.
Diddi
Flott á myndunum
KVEÐJA FRÁ HÚSAVÍK (reyndar er ég í Hafnarfirði)
ARNÞÓR
Fyrirgefðu elsku Einar Örn okkar.... það var fyrsta útiafmælið.... laga dagbókina á eftir :/
kv
Kristín með rugluna
Ég er nú bara hálf svektur,fyrsta afmælisveislan var þegar ég varð tveggja ára í júní (að vísu sváfu þið þá bara í vagninum svo það telst kannski ekki með). Nei,nei ekkert svektur bara smá að grínast í mömmu ykkar :) Einar Örn stóri frændi
Hæ hæ.
Það er aldeilis búið að vera nóg að gera hjá ykkur. Gaman að sjá hvað þið stækkið og eruð flott.
Tvíburakveðja, Sara Líf og Aþena Sól.
Hæ bestaskinn og skessa ;o) Takk fyrir í dag, þetta var nú aldeilis gaman. Við vorum samt svolítið gáttaðir á því hvað Ingibjörg gat grenjað roooosaaaaleeeega hátt og ákváðum því að prófa að grenja svolítið sjálfir eftir að þið fóruð. En sama hvað við reyndum, við gátum ekki haft alveg svona hátt. Sjáumst vonandi fljótlega! Kær kveðja, Aron Freyr og Viktor Óli.
Hæ hæ elsku Ingibjörg og Þorlákur... þið eruð svo sæt og fín alltaf;) Gaman að kíkja á ykkur!! Ég frétti að þið væruð að gerast heimsborgarar.. þið eruð nú meiri krílin, heppin að eiga svona góða foreldra;) Skemmtið ykkur í útlöndum dúllurnar mínar;* Hlakka til að sjá ykkur!!
Til hamingju með skírnina. Mikið er gaman að sjá hvað þið dafnið vel.
kveðja Sigrún, Þröstur, Daníel Karl og bræðurnir