

Já nú er ég farinn að tjá mig um hverja mynd,þessi sofandi,þessi vakandi,Kristín bara að tala og svoleiðis. Er pabbi þinn kominn í sjálfsmyndastuðið eins og pabbi minn?? (mamma er að bilast á þessum sjálfsmyndagrettum hans pabba endalaust!!!) Bless,bless sæta og sæti :)
hæhæ, þið eruð svo flott :) æðislegar myndir af ykkur frá London :)
kveðja Andri Freyr og mamma :)
Hæ flottu systkin:-)
Gaman að sjá hvað þið voruð dugleg í útlöndum. Við viljum helst bara vera þar heldur mamma.
kveðja, Oddur Fannar og Tómas Ingi
ohhhhh þið eruð svo fullorðin.. búin að fara til útlanda og allt... !!
Ég er líka búinn að fara til útlanda.. en það var bara í bumbunni á mömmu ;-)
kv. Anton Oddur
Það er mikið að maður getur brotist hérna.
Skemmtileg síða. Þegar ég fór að skoða myndirnar þá mundi ég hvernig var að vera sköllóttur með kraga, he he.
Jæja, mömmu er að batna :-)
Þannig að við komum í heimsókn.. kannski bara á morgun eða hinn :-)
kv. Anton Oddur og mamma Íris "ritari"
Kæra fjölskylda. Vorum að skoða heimasíðuna það er alltaf gaman að sjá hvað þið eruð frábær. Og bara búin að fara til útlanda!!! Gott að heyra að það gekk vel, já og til hamingju Kristín með afmælið. Allt gott að frétta héðan, Dóróthea er byrjuð í leikskóla og gengur það bara ágætlega.
Bestu kveðjur til ykkar allra.
Fríða, Örnólfur og Dóróthea Gerður
Jæja þá, var að heyra nýjustu lengdarmælingar og hann Þorlákur ætlar að stefna að því að ná pabba sínum það er ekki nokkur spurning. Ingibjörg og Einar Örn verða flott frænku og frænda par, Þorlákur og Dagur Elís geta þá bara labbað á undan á ströndinni og hent til þeirra kókoshnetum, hehehehehe.
Var bara rétt að kíkja við og skoða nýju myndirnar af ykkur :-)
Mamma er búin að lofa að koma í heimsókn með mig við fyrsta tækifæri.
kv. Anton Oddur
Það er nú bara alveg greinilegt að þessir tvíburar eru skyldir mér, enda er ég rosa styllur í flugvélinni líka.
Mamma þykist alveg vita hvað þið eruð að tala um í sambandi við London þar sem hún fór þangaði í fyrsta skiptið 2 dögum eftir að þið fæddust, fékk meira að segja að kíkja á ykkur á gjörgæsluna áður en hún fór út :D
En já við söknum ykkar ekkert smá mikið, og erum enn sár samt að þið hafið farið í fyrsta skiptið í flugvél og ekki til okkar :(
Vi ses om julen,
med venlig hilsen
Hallgrímur (og mamma)
[komnar nýjar myndir !!!]
Til hamingju með mömmu ykkar í fyrradag, vonandi hafið það sem best í London. Knús frá okkur í Gautaborg
Elsku Kristín - til hamingju með daginn í fyrradag :-)
Jú við erum sko sammála því - það væri sko gaman að hittast og láta krílin rífa hvert í annað!!
Stefnum að því - bestu kvðejur Þórey og Ágúst Axel
Hæ frænka og frændur! Ég var að spjalla við Sigrúnu Lindu sem benti mér á ykkur - alveg ótrúlegt hvað þetta er orðin stór fjölskylda .. Ég bæti vonandi í safnið einhverntíman í fjarlægri framtíð ;) en þessa dagana fer allur tími í stúderíngar úti í Barcelona! Vonandi gengur allt vel með tvíburana: það er enginn vafi á því hvaðan þessi tvö eintök koma ;) Bestu kveðjur, Agnes
Hæ dúllur;) Ég sé alltaf einhvern kunnulegan svip þegar ég skoða myndir af Ingibjörgu!! Hún er alveg rosalega lík einhverjum í föðurættinni, hver er það eiginlega?? Er hún kannski bara svona lík okkur öllum?;) Jæja.. ég veit það ekki! Hafði það gott litlu æði.. og já til hamingju með afmælið þann þriðja Kristín;*
Innilega til hamingju með afmælið Kristín , kveðja úr Ljósuvík Elsa
Elsku Kristín! Til hamingju með daginn :o) Hafið það rosa gott í London.
Flott að allt gengur vel! Elsku litla systir til hamingju með stórafmælið - velkomin "memm" á fertugsaldurinn!! Eigið góðan dag í Lundúnum, kveðja, Þorgerður og allt gengið í Funalind
Hæ hæ
Við óskum mömmu ykkar innilega til hamingju með afmælið, knús til ykkar allra.
Kær kveðja
Fjóla, Ingó og Esra
Hæ hæ
Við óskum mömmu ykkar innilega til hamingju með afmælið, knús til ykkar allra.
Kær kveðja
Fjóla, Ingó og Esra
Elsku stóra systir. Innilega til hamingju með afmælið,vona að dagurinn verði ánægjulegur hjá ykkur öllum. Stór knús frá öllum hér í Engihjalla 9, já það er enginn smá fjöldi af knúsum ;)
Hæ litlu ferðalangar!
Innilega til hamingju með mömmu ykkar, og innilega til hamingju með afmælið Kristín! Góða heimferð á morgun, hlökkum til að hitta ykkur og heyra ferðasöguna.
Kv, Guðrún, Aron Freyr og Viktor Óli.
Var að lesa Vefdagbókina ykkar ,það er gott að heyra að allt gengur vel hjá ykkur öllum, og þið getið skoðað svona mikið í London og sagt ömmu og afa frá ferðini þegar þið komið heim. Kveðja til allra.
Frábært hvað allt gengur vel! Það er nú lítið mál að rúnta um með ykkur þið eruð svo þæg og góð :) Mamma ykkar má alveg kaupa boli og eitthvað fleira fyrir EÖ, sem ég borga svo,bara ef eitthvað hoppar ofan í körfuna ykkar!!!
Góða ferð elsku kríli - hafði það gott og verið þæg og góð við pabba og mömmu!
Kv. Þorgerður móða
Allt gekk vel á leiðinni út í flugvélinni, krílin voru þæg og góð :) Haldið áfram svona, gangi ykkur vel ;)
Fréttum að þið hefðuð sofið í alla nótt, flott hjá ykkur. Drífið ykkur nú að verða frísk fyrir Lundúnaferðina ykkar. Hestaheilsukveðjur, Þorgerður, Helga Margrét, Embla Rut og Hildur Valdís
Við hér sendum ykkur lasarusum batakveðjur og vonumst til þess að þið náið ykkur sem allra fyrst (hálf skondið að Þorlákur sé eini sem er ekki lasinn,samt ansi gott að þið séuð ekki öll 4 lasin,bara 3!!) Knús og kossar héðan úr Engihjalla ;)
Rosalega er mamma ykkar búin að gera flotta forsíðu með mynda-tenglum á öll krílin!! Æðislegt!! Mamma mín verður nú að fara að læra að gera svona :)
Þið eruð nú alltaf jafn miklar dúllur og bara stækkið og stækkið.
Kær kveðja,
Birnir Þór og mamma
Takk kærlega fyrir kjötsúpuna í gærkvöldi og ekki spillti eftirrétturinn fyrir kvöldinu, nammi namm (slurp). Kraftur í þessum foreldrum að bjóða í mat og allt !!!!!
Guð hvað þið eruð mikil krútt
kv.
Helga Fjóla