

Af hverju er Malla öðruvísi á litinn en við hin???????
kv. Vitlausa tölvusystirin..............
Aðeins að fylgjast með ykkur og skoða allar fínu myndirnar, afmæliskveður til mömmu ykkar kveðja Elsa
Hæ litlu kríli. Kyssið mömmu ykkar til hamingju með afmælið frá mér. Kveðja til allra á heimilinu.
Til lukku með afmælið litla systir. bestu kveðjur frá okkur öllum í Funalindinni!!
Innilega til hamingju með afmælið stóra systir kknnnúúúússss. Kveðja Malla og co
Til lukku með mömmu ykkar :-)
kv. Íris og Anton Oddur
Halló
Gaman að sjá hvað þið eruð orðin stór. Bið að heilsa öllum
kveðja Kristín Auður frænka á Blönduósi
Hæhæ, bara að kvitta fyrir komuna.
Rosalega fín síðan ykkar og þið eruð orðin alveg rosalega stór!!
Finnst svo stutt síðan ég skoðaði síðuna hjá ykkur nýfæddum!!
Gaman að heyra hvað allt gengur vel.
Hafið það sem allra best.
bk.Karen
Búin að senda mail á öll mail sem ég finn, vantar því miður mail hjá nokkrum sem hafa þó skrifað hér í gestabók :(
Þið þá sendi mér bara tölvupóst, ekki fara samt í fýlu....
kv
Kristín síðueigandi
Var að skipta um lykilorð.... sendi mail á eftir. Þeir sem fá ekki mail geta beðið um lykilorð hér eða sent mér mail á stinaei@yahoo.com
kv
Kristín
Hæ hæ kæru vinir !! Til hamingju með að vera að byrja á leikskóla, það verður sko fjör hjá ykkur þar en ég mun sakna ykkar. Vonandi fæ ég bara pláss líka og kem þá að leika við ykkur, gangi ykkur allt í haginn. Kveðja Kári og mamma Þið eigið rosalega flotta heimasíðu og það er svo gaman að skoða myndirnar af ykkur
Hej sætustu tvíburar,
vá hvað þið stækkið hratt .. rosalega var gaman að sjá ykkur um daginn hjá ömmu Ingibjörgu og afa Begga, þið voruð rosa dugleg að leika öll dýrin og allt það .. rosalega verður gaman fyrir ykkur að byrja á leikskólanum .. gangi ykkur vel á morgun og verið dugleg .. alveg eins og þegar þið fenguð sprautuna :P enda skyld mér ik ..
jæja bæjó í bili .. sjáumst fljótt .. eða 16 des nánartiltekið ..
IEG, HÞ & svo Gísli greyjið ..
Halló kæra fjölskylda, kíki alltaf reglulega til að fylgjast með ykkur. Til lukku með leikskólaplássið.
Kv. Svava, Ómar og stelpurnar
Hæ litlu kríli. Mikið er nú gaman að lesa um ykkur. Vona að mamma verði dugleg að láta nýjar myndir af ykkur á netið. Nú er ömmusystir flutt vestur á Tálknafjörð og því verður langt þangað til hún sér ykkur næst. Vona að þið hafið það ætíð sem best. Kveðja til ykkar og mömmu og pabba..
Benna ömmusystir.
Hæ sætust
Þið eruð hér með KLUKKUÐ :)
Kveðja
Esra
Alltaf gott ad heyra hvad allt gengur vel hja ykkur, eg er lika rosa dugleg ad staekka. Uppahaldid mitt thessa dagana er ad syngja og svo er eg alltaf ad reyna ad hoppa en kemst ekki alveg i loftid enntha hehe.. Eg og mamma og pabbi erum svo ad flytja heim til Islands fljotlega svo vid faum tha kannski ad leika okkur svolitid saman :o) Kengurukvedjur fra Viktoriu og Ernu mommu
Halló! Engar nýjar myndir enn hérna.... oooohhh! Við viljum auðvitað fá nýja lykilorðið... Ég sé litlu krílin alveg í anda hakka í sig spaggettí á Ruby... ha ha ha, litlu ruslahaugarnir! Kveðja frá Gautaborg
Heil og sæl Ingibjörg og Þorlákur. Sunnudagsrúnturinn var tekinn á netinu og kominn tími til, langt síðan að maður kíkti á ykkur. Þið eruð alltaf jafn krúttleg og við fjölskyldan óskum ykkur til hamingju með nýja frænda. Kær kveðja norðan úr Eyjafirðinum.
Hæ hæ, frábært að þið séuð komin inn á leikskóla :), vonandi hittumst við bráðum.
p.s við viljum fá nýja leyniorðið ;)
Kveðja
Fjóla og strákarnir
Hæ hæ littlu kríli!!
Til hamingju með leikskólaplássin, æðilslegt fyrir ykkur að komast svona snemma á leikskóla. Afmæliskveðja til Pabba ykkar (þó seint sé). Ég verð að koma fljótlega í heimsókn það er svo langt síðan ég sá ykkur síðast.
Kveðja
Guðný "Blóðbankafrænka"
p.s. Óska eftir nýju lykilorði!!!
Hæhæ
Við erum alltof löt við að kvitta fyrir okkur hérna...
Og þar sem ég á að vera að læra undir próf þá fór ég nottulega á netið.. hehe.. ;-)
kv. Íris og Anton Oddur (alveg eiginlega bráðum á leiðinni í heimsókn)
Hæ hæ
fylgist nú oft með ykkur bara af því að þið eruð svo ótrúlega sæt ;) langar alveg að halda því áfram!
kv. Soffia
Hæ hæ! Takk fyrir gjöfina, Sandra var æðisleg í fötunum. Allt gott að frétta af okkur. Högni var að byrja í leikskóla í gær, ekki alveg sáttur við að vera skilin eftir en það kemur vonandi.Biðjum að heilsa öllum, Kveðjur frá London
Hæ hæ...ég kíki nú alltaf hingað af og til þó ég sé ekki nógu dugleg að kvitta fyrir komuna. En ég vil sko alveg fá nýja lykilorðið ;)
Kveðja
Sigga Lára og strákarnir
Halló kæru vinir.
Til hamingju með leikskólaplássið :) Og til hamingju með pabba ykkar þarna um daginn. Það er dálítið leiðinlegt að við skulum ekkert hittast þessa dagana, en við vitum að mamma ykkar er búin að gera nokkrar heiðarlegar tilraunir til að koma hingað í heimsókn eftir að þið eruð búin hjá dagmömmunni..... Vonandi gefst hún ekki upp :o/ Verðum nú að reyna að ná eins og einum hitting áður en hún byrjar að vinna.
Kær kv, Guðrún Óla og guttarnir.
E.S. Já, svo óskum við eftir nýju lykilorði þegar þar að kemur takk fyrir.
Halló!
Mikið eru þið orðin stór og enn fallegri. Það er mjög gaman að geta skoðað ykkur heima þegar fjarlægðin er svona rosa...... mikil :-)
Annars til lukku með pabba í gær.
Kveðja úr sveitinni
Gupðrún Auður ömmusystir.
Hæ... smá varðandi myndirnar. Ég þarf að setja myndirnar inn úr Sigga tölvu og þar sem hann er ýmist að vinna eða í skólanum þá fæ ég tölvuna hans aldrei lánaða!!! Myndirnar verða að bíða betri tíma því miður :(
Þið verðið bara að kíkja í heimsókn til að sjá krílin
kv
Kristín
Mikið var gaman að sjá aðeins af ykkur í afmælinu í Funalindinni! Þið orðin ansi stór sætu systkini :o) Og til lukku með leikskólaplássið og pabba! Knús frá okkur í Hlíðarhjallanum.
Hæ, ætlar mamma gamla (við gerum ráð fyrir að pabbi láti þessa síðu alveg í friði...ha ha) ekkert að setja inn nýjar myndir, fengum vægt sjokk þegar við sáum hvað ungarnir eru orðnir stórir á ANNARRI HEIMASÍÐU.... Annars allt gott að frétta af þessum bæ, Bjössi er að hætta á leikskólanum í næstu viku og byrja hjá dagmömmu... alveg öfugt við ykkur! Svo er bara verið að undirbúa afmælisveislu Karenar á laugardaginn. Nóg að gera í því! Biðjum að heilsa í bili - Kveðja frá Gautaborg
hva, sé á msn nafninu að þú ert komin með leikskólapláss, viltu vinsamlegast segja umheiminum meira frá þessu :S bíð spennt....