

Hvernig er þetta? Gat lasna mamman ekki hent inn nokkurm myndum í vikunni - þarf að fara að uppfæra þetta hérna!!
Kvitti kvitt :) Takk fyrir pizzuna í gærkvöldi, nammi namm
Hæ hæ vildum barasta kvitta fyrir okkur
kv Rannveig,Arnar og Sævar
Hæ hæ! Alltaf gaman að lesa vefdagbókina. Þá erum við bara að verða nokkuð svipaðir Þorlákur,ég er búin að fá rör í eyrun og svo datt ég líka á augabrúnina og þurfti að sauma þrjú spor eins og hjá þér. Vonandi liður þér betur?
Langt síðan að við höfum séð nýjar myndir!
Biðjum að heilsa mömmu og pabba,
kveðjur frá London
Hlakka til að fá ykkur í pössun á morgun ;) Einar Örn er svaka spenntur að fá ykkur í pössun næstu nótt,ætlar sko að passa ykkur vel,ásamt froskunum :) Gott að hann á stórt herbergi,ekki satt???
Halló. Ja alltaf er eitthvað að frétta frá ykkur. Ég get nú látið mér detta í hug að þið eigið eftir að fara nokkrar ferðir á slysó ef börnin verða eins og föðurættin. Það þurfti of að fara með börnin hennar ömmu Ingibjargar og afa Begga upp á sjúkrahús til að sauma þau saman. En vonandi grær þetta nú allt vel. Er farin að þrá að sjá nýjar myndir af þessum krílum. Þegar ömmusystir er svona langt í burtu getur hún ekki séð hvað krílin breytast nema í tölvunni. Biðjið nú mömmu og pabba að setja nokkrar myndir af ykkur inn á síðuna svo ég geti séð ykkur. Bið að heilsa öllum.
Hæ bara að kíkka við. Hvernig er það með tvíbura er alltaf annar meiri hrakfallabálkur en hinn? Það er allavega okkar reynsla!!!Stelpurnar (og auðvitað mamma og pabbi)eru voða glaðar yfir því að mamma ykkar er að passa afa á sjúkrahúsinu. Takk fyrir það :-) Kveðja frá okkur öllum.
Hej,
hvað er ég að lesa .. akkuru er Þorlákur með sauma ??
Við bara höfum ekkert heyrt frá ykkur síðan um jólin .. ekki eins og Siggi segi okkur eitthvað .. nehhhhhh ..
Hvernig er svo á leikskólanum ?
Héðan er svo sem allt gott að frétta .. dagarnir líða bara .. ég fer í leikskólann og mamma að læra og Gísli í sínum skóla ..
Fórum á Fastelavns ball á sunnudaginn .. það var rosa gaman .. ég var Spiderman .. mamma búin að setja inn myndir af því inn á síðuna mína ..
En við sjáumst svo ekkert fyrr en í sumar :( .. mamma og bumbukríli koma til Íslands í maí .. en þá verð ég með pabba í Köben .. þannig að ég kem ekki með :S ..
Hlakka til að sjá ykkur .. fæ kannski að sjá myndir fljótlega ..
Med venlig hilsen frá Horsens ..
Vonandi svaf Þorlákur vel í nótt, þrátt fyrir saumana í augabrúninni!! Hlakka til að sjá ykkur í dag í bollukaffinu hjá mér ;)
Alltaf gaman að hittast systur saman, og sjaldan sem við náum því núorðið allar þrjár barnlausar (tel KÖ ekki með á miðvikudaginn :S ) Takk fyrir frábæra stund, megi þær verða fleiri, tihi. Kveðja Malla
Hæ hæ! Loksins komnar myndir inn á heimasíðuna okkar, nýjar og gamlar. Sjáumst - Þorgerður og Helga Margrét
Hæ öll, bara aðeins að kíkka við. Geinilega mikið að gera á stóru heimili. Kveðja frá okkur öllum.
Jæja nú verður Þorlákur rólegur og vær eftir þessa aðgerð. Gott að þetta tókst allt vel. Þið eruð bara báðir búnir að vera á sjúkrahúsi frændurnir Þorlákur og Andri Freyr. Bið að heilsa mömmu og pabba.
Frábært að þetta gekk þó svona vel :-) Hann er hörku nagli, hann Þorlákur frændi okkar, við vitum það sko :)
Þau eru nú ekkert lítið æðisleg ;)
Vildi bara skilja eftir kveðju!
kv. Soffia
Vá vá vá ég sem var farin að halda að það væri búið að loka á að mamma og pabbi settu eitthvað um ykkur á síðuna. Voða eru þið búin að fara í langt ferðalag. Mikið held ég að það hafi verið gaman. Vona að ég sjái ykkur fljótlega. Bið að heilsa mömmu og pabba og segið þeim að ég sé svo spennt að sjá nýjar myndir.
Gleðilegt ár! ...við fylgjumst alltaf aðeins með :)
kv.
Helga, Egill og Einar Dúi
Hæ "stóru" kríli. Hvernig er þetta með hann pabba ykkar er hann alveg hættur að taka myndir?? Ömmusystir er svo spennt að skoða af ykkur myndir að hún vill fá nýjar myndir næstum því daglega. Engar janúarmyndir komnar!!! Bið að heilsa í bæinn.
Við erum búin að týna lykilorðinu og getum því ekki skoðað neinar myndir ,,,, megum við skoða ??
Hæ hæ kæru vinir .... nú er ég byrjaður á sama leikskóla og þið á Álfatúni. Ég er samt á stubba-deildinni þannig að ég sé ykkur svo sjaldan, það væri samt gaman að hittast og leika saman, við fáum líka örugglega að leika saman úti þegar fer að vora, ætli við þekkjumst ekki þegar við hittumst ?? : ) kveðja Kári
P.s það varð einhvernveginn aldrei úr símtalinu hjá okkur mömmunum !!
Hæ smá klúður hjá okkur með að senda ykkur kveðju. En gleðilegt ár og sjáumst vonandi fljótlega. Sigurlaug, Ásmundur Ari og Arnþór Ingi tvíburakappar.
hæhæ
Ætlaði að far að skoða myndirnar en man ekki hvort ég hef fengið lykilorðið, vildu þið vera svo væn að senda mér það :)
Hæ hæ.
Bara að kvitta fyrir komuna. Æðislegar jólamyndirnar af ykkur :)
Kveðja
Sigga Lára
Til hamingju með hann pabba ykkar á laugardaginn, gott að þetta nám hans er búið því nú getið þið átt hann skuldlaust!!
Hæ hæ! Gleðilegt ár! Sætar desembermyndirnar...sem og náttúrlega allar hinar :o) Hafið það gott. Svanhildur og Ástþór Örn
Bara að kíkka við, gleðilegt ár öllsömul. Kveðja
gætiru sent mér lykilorðið...ef ég mætti fá það...
Sara
Gleðilegt ár stóru kríli. Það er bara orðið ALLT of langt síðan ég hef kíkt hingað inn. Þið eruð sko búin að stækka alveg heil ósköp!
Hafið það sem best og haldið áfram að stækka og dafna :-)
Bestu kveðjur úr Hafnarfirðinum - Þórey og Ágúst Axel
Gleðilegt ár litlu kríli. Vona að nýja árið verði jafn gott og liðið ár.
Barasta að kíkja inn, segja gleðileg jólin og áramótin, takk fyrir okkur og allt það :-)
Geggjaðar myndir, svooooo fín í jóladressunum :-) öllsömul ;-)
sjáumst fljótlega, en allavega heyrumst...
knúúúús, Íris og Anton Oddur