

Sæl og blessuð öll.
Gleðilegt nýtt ár og takk fyrir það gamla.
Var að skoða nýju myndirnar mikið gaman að því. Ég er líka að koma inn myndum á okkar síðu alveg síðan í haust.
Hlakka til að sjá ykkur á nýju ári.
Kærar kveðjur.
Fríða
Frábært að sjá nýjar myndir :) Takk för :)
Vorum að skoða myndir, rosa fínar ;)
Jæja.... myndir?????
Bíddu.. á ekki að fara að setja inn nýjar myndir...
og takk fyrir síðast!
Kveðja,
Baldvin Snær og co
Takk takk... bíðum að sjálfsögðu spennt!
Og takk fyrir kveðjuna,
kveðja,
Baldvin Snær
Hæ,hæ.
Takk líka fyrir síðast. Vildi að við hefðum hist oftar í sumar, verður bara meira næst. Gaman að skoða allar þessar skemmtilegu myndir og sjá líka hvað þið hafið gert margt skemmtilegt hér á norðurlandinu. Takk fyrir slóðina á bloggið hennar Áslaugar, ég hef reyndar kíkt þar inn örfáum sinnum en ætla kannski að druslast til að skrifa einhver komment hjá henni næst :-)
Hafið það sem best og við biðjum að heilsa öllum.
Kv. Fríða og co
Hæ sætu snúðar og takk fyrir síðast. Þið hafið greinilega skemt ykkur í sumarfríinu og flottar myndir.
Kv. Eydís
Hæ hæ. Frábærar myndirnar úr sumarfríinu, þið greinilega haft það gott og farið víða. Ingibjörg og Þorlákur eru nú alveg sætust!
Hafið það gott. Bestu kveðjur, Svanhildur og co
HÆ! Á ekkert að bjóða manni í heimsókn? Ég er orðinn hrikalega stór og flottur...
Gaman að skoða myndirnar. Greinilegt að það var gaman hjá ykkur.
Pís,
Baldvin Snær
Kvitt kvitt fyrir innlitið og góða skemmtun yfir flottum myndum frá sumrinu. Þið eruð ekkert smá dugleg að klifra fjöll sætu krútt.
Knús af Skeljagrandanum
Halló elsku Kristín mín,var að skoða yndislegar myndir frá ykkar sumarfríi, mikið eru krakkarnir að verða stór og falleg.
Af okkur Sigurði er allt gott að frétta,vorum í Lundi í viku tíma og erum alveg veik að fara sem fyrst aftur, við sjáum hvað verður það er ekki hægt að setjast alveg að þó það væri eitthvað sem ömmu Auði líkaði best. Æ, elskan þú skilur hvað ég er að tala um.Bestu kveðjur til ykkar allra Sigurður biður að heilsa.
Bless í bili.
Auður
Flottar myndir!
Á enn eftir myndirnar frá Illugastöðum, vá, þvílíkt magn :) Takk kærlega fyrir að skemmta okkur með þessum fínu myndum. Vantar bara af og til nöfnin á fólkið og börnin, sem gamla frænka þekkir ekki. Margrét á ekki orð yfir því hvað Þorlákur hafi fullorðnast síðan í fyrra. Hann sé bara orðinn stór strákur. Ingibjörg aftur á móti ætlar að vera bara áfram prinsessa og mestamús :) Saknaðarkveðjur. Og hvenær komið þið svo til okkar!!! Mjög gott H&M í BS :) Hafið það gott. Ádda frænka.
Var að skoða nýju myndirnar, voða skemmtilegar. Sjáumst á sunnudag, ef ekki fyrr :)
Hæ. Var að skoða myndir úr sumarfríinu ykkar, flottar. Tókst þú þær Kristín? Það leynist í þér náttúrufræðingur, ótrúlega mikið af blómum og grænum grundum.
Nú náði ég að skoða allar myndirnar ;) Flottar!!! Sjáumst á laugardaginn, takk fyrir að fyrlgjast með stóra stráknum mínum í Garði :)
Takk fyrir að ýta á eftir mér :þ og takk fyrir að skrifa í gestabókina :o)
Myndirnar af okkur hjónunum í febrúaralbúminu eru teknar á 6 mánaða brúðkaupsafmælinu okkar.... Þóra var búin að óska mér svo oft til lukku með x mánaða brúðkaupsafmælin sem ég gleymdi alltaf þannig að við héldum upp á 6 mánuðina með því að sjóða hangikjet :D
Gott að JÆJAÐ mitt virkaði, tihi. Er búin að skoða fullt af myndum, er komin í apríl og þarf að halda áfram að skoða á morgun. Flott mynd af ykkur hjónunum í febrúar albúminu.
Nú er komið JÆJA á myndir á þessari síðu takk ;)
sammála síðasta ræðumanni... hehehe...
Halló halló.... hvar eru eiginlega albúmin fyrir árið 2008?????
Knús úr vesturbænum
Elsku Ingibjörg og Þorlákur til hamingju með afmælið. Vonum að dagurinn hafi verið góður. Bestu kveðjur til mömmu og pabba. Hlökkum til að hitta ykkur í sumar.
Kærar kveðjur.
Fríða og co
Innilega til hamingju með afmælið!! Leitt að Malla missti af afmælinu, en sendi heldur betur lið í staðinn fyrir sig :)
Innilega til hamingju með daginn og takk fyrir síðast, þetta var svakalega fín veisla hjá ykkur.
kv. Guðný frænka
Enn einu sinni - til hamingju með daginn! Og takk fyrir síðast.
Látið pabba og mömmu dekra við ykkur í dag...
Til hamingju með afmælið elsku Ingibjörg og Þorlákur!
Vonum að dagurinn verði skemmtilegur :o)
Bestu kveðjur, Svanhildur, Sigurður Ágúst, Ástþór Örn og Arnaldur Kári
Hummmm........ er mamman alveg að missa sig í facebook núna og gleymir alveg að sinna þessari síður???? hahahaha.....
takk fyrir síðast Kristín og sjáumst eftir helgina hjá Möllu.
Kv Dagný
Hæ,hæ fataði lykilorðið bæbæ
hæhæ uuu lykilorð hvað er það ?nenurðu að senda það? kv.