
Ég fæddist á Landspítalanum 16. nóvember 2008 kl:08:56, ég vóg 3480gr eða 14 merkur og var 51cm. Tobba amma mín tók á móti mér, hún er besta ljósmóðirin! Foreldrar mínir eru Elísabet Ellertsdóttir og Trausti Salvar Kristjánsson. Þau eru ekkert smá stolt af mér:). Ég er fyrsta barnabarn báðum megin, þannig þið getið ímyndað ykkur dekrið í kringum mig : ) Ég bý á flottasta stað á landinu, þ.e. Mosfellsbæ. Ég er algjört augnayndi, njótið!!



