
1 ÁRS AFMÆLISSTRÁKUR
Velkomin á síðuna hans Þorvarðar. Hann fæddist í Hreiðrinu þann 16.febrúar 2009 kl 22:02 og tók Tobba amma hans á móti honum. Hann vó 3850 grömm og var 51 cm á lengd.
Foreldrar hans heita Gunnar Þorvarðarson og Halla Katrín Kristjánsdóttir og þau eru að springa úr stolti yfir frumburðinum! Litla fjölskyldan býr í London og líkar vel. Endilega fylgist með okkar daglega lífi í vefdagbókinni, myndaalbúminu og svo koma stundum inn ný myndbönd....svo má ekki gleyma að kvitta í gestabókina!!
**NÝJAR MYNDIR OG FÆRSLA 18.FEBRÚAR**

Þorvarður er annað barnabarnið í móðurfjölskyldunni, en þar á hann Tobbu ömmu og Kristján afa, og fjórða barnabarnið í föðurfjölskyldunni, þar eru Þórlaug amma og Vaddi afi. Það eru auðvitað allir svakalega ánægðir með kappann, enda alveg hreint gullfallegt barn hérna á ferðinni :)

VATNSBERINN
20. janúar - 18. febrúar
Vatnsberabarnið fer fljótt sínar eigin leiðir hvort sem það er í fataburði, hugsun eða hegðun. Það er uppfinningasamt, frumlegt og fullorðinslegt og lærir snemma að tjá sig og skila heim fullorðinna. Litli vatnsberinn vill sjá um sig sjálfur og fara sínu fram og er oft á tíðum mjög dramatískur. Ef honum leiðist gæti hann átt það til að stofna til vandræða bara til að fá spennu og drama inn í líf sitt. Besta uppeldisaðferðin er fólgin í umræðu og skynsamlegum fortölum. Vatnsberinn er þrjóskur og lítið þýðir að skipa honum fyrir eða beygja hann til hlýðni með skömmum. Best er að koma fram við barnið sem vitsmunalegan jafningja því vatnsberinn er hugarorkumerki og því skipa umræður og skynsamlegar fortölur fyrsta sæti. Vatnsberabörnin geta sýnt ást og væntumþykju á frekar ópersónulegan hátt. Þau eru yfirleitt vingjarnleg og yfirveguð en ekki mjög tilfinningasöm og oft illa við mikið kjass.