Pétur Valur Thors
 

Velkominn á síðuna mína

Ég heiti Pétur Valur og er 2 ára
Ég fæddist þann 30. janúar 2008
Ég á eina stóra hálfsystur sem heitir Ásdís Helga sem býr hjá mömmu sinni

Ekki gleyma að kvitta í gestabókina því mér finnst svo gaman að
sjá hverjir hafa verið að skoða myndir af mér
.
.6
Nýjar myndir og ný færsla sett inn 10. febrúar
 


Þetta eru foreldrar mínir þau heita Emma og Valtýr


Vatnsberinn

Vatnsberabarnið fer fljótt sínar eigin leiðir hvort sem það er í fataburði, hugsun eða hegðun. Það er uppfinningasamt, frumlegt og fullorðinslegt og lærir snemma að tjá sig og skilja heim fullorðinna. Litli vatnsberinn vill sjá um sig sjálfur og fara sínu fram og er oft á tíðum mjög dramatískur. Ef honum leiðist gæti hann átt það til að stofna til vandræða bara til að fá spennu og drama inn í líf sitt. Besta uppeldisaðferðin er fólgin í umræðu og skynsamlegum fortölum. Vatnsberinn er þrjóskur og lítið þýðir að skipa honum fyrir eða beygja hann til hlýðni með skömmum. Best er að koma fram við barnið sem vitsmunalegan jafningja því vatnsberinn er hugarorkumerki og því skipa umræður og skynsamlegar fortölur fyrsta sæti. Vatnsberabörnin geta sýnt ást og væntumþykju á frekar ópersónulegan hátt. Þau eru yfirleitt vingjarnleg og yfirveguð en ekki mjög tilfinningasöm og oft illa við mikið kjass.

 



Heimsóknir í dag: 1
Heimsóknir frá upphafi: 6343