Telma Rós & Ástrós Halla
Telma Rós & Ástrós Halla
 
 
 

Gestabók

Langamma á Hlíf

Halló systur..
Það eru fínar myndirnar af ykkur, var að skoða þær
Ástrós Halla er búinn að stækka heilmikið !
en ég þekkti hana bara ekki með gleraugun
en bið að heilsa mömmu og pabba
bestu kveðjur : Amma á Hlíf að vestan.

Skrifaš žann 24. February 2008 14:00.

Hildur Björg og fjölskylda

Komið þið sæl.
Gaman að sjá ykkur í afmælinu mikla um síðustu helgi, þar var nú aldeilis margt um manninn.
Fínar myndirnar af ykkur Kínasystrum, þið eruð hver annarri flottari og fallegri. Og mikið ert þú Ástrós Halla dugleg að nota gleraugun þín, enda finnur þú væntanlega hvaða gagn þau gera. Þú ert flottust!!
Bestu kveðjur, Hildur Björg og fjölskylda.

Skrifaš žann 23. February 2008 08:53.

Tjarnarfjölskyldan

takk fyrir síðast, hér er bara talað um Heija og Jon og Agu og jeijei, við segjum bara takk fyrir hjálpina á afmælishátíðinni alltaf gott að eiga góða að, svo var nú ekki amaleg veislan á eftir, jæja vonandi sjáumst við fljótt aftur knús frá okkur öllum :)

Skrifaš žann 19. February 2008 13:24.

Birna Blöndal

Halló :)
Gaman að sjá ykkur aðeins þó stutt væri á afmælishátíðinni. Alltof lítill tími gafst til að spjalla...
Kveðjur frá Akureyri
Birna

Skrifaš žann 18. February 2008 18:34.

Erla Guðfinna

Gaman að sjá nýjar myndir;)

Skrifaš žann 17. February 2008 17:18.

Sigurbjörg, Axel og Anna Bíbí

Halló fallegu systur
Ekkert smá flottar myndirnar af ykkur og yndislegt að sjá hvað þið náið vel saman þó aldursmunurinn sé svolítill, ekki slæmt fyrir þá stuttu að eiga svona frábæra systur til að brasa með.
Náttúrulega hafið þið bara verið flottastar á öskudaginn, svo sætar og fínar. Vonandi er heilsan á þeirri stuttu að koma til, Anna Bíbí er núna fyrst að hætta að grípa allar pestar sem hafa gengið og farin að fá kvef ÁN hita eins og önnur börn. Trúi því að þetta byggi þær bara enn betur upp fyrir framtíðina.
Vonandi gengur líka betur með gleraugun, þarf að venjast þeim eins og öðru.
Bestu kveðjur til sætustu snúllanna í Höfninni, Anna Bíbí og mamman

Skrifaš žann 16. February 2008 11:48.

Björk

Hæ hæ sætu systur
Flottar myndir af ykkur í nýju peysunum.
Það var nú gaman að hitta ykkur systur á miðvikudaginn.
Biðjum að heilsa gamla settinu.
Kveðja úr firðinum
Björk og fjölskylda

Skrifaš žann 15. February 2008 21:41.

Jóna

Jæja sætu systur...ég slefaði við að horfa á myndirnar af ykkur gúffa þessum hrikalega flottu núðlum í ykkur. Nenniði að suða í mömmu ykkar um að gefa mér svona að borða...sérstaklega þar sem ég er svo rosalega slösuð:) Takk fyrir það:)

Skrifaš žann 13. February 2008 08:54.

Jóhanna Símonardóttir

hæhæ frænkur!
er að kíkja á síðuna ykkar og finnst rosalega gaman að skoða myndirnar af ykkur, Telma ekkert smá dugleg stóra systir greinilega, hafið það gott og núna verðum við nú að fara reyna hittast er það ekki?

kveðja af skaganum Jóhanna, Júlli og krakkarnir

Skrifaš žann 12. February 2008 22:47.

Vala og fjölskylda

Alltaf jafn gaman að skoða myndir af ykkur sætu systrum knús og kossar

Skrifaš žann 12. February 2008 19:54.

Klukkubergsbúar

Ekkert smá flottir búningar. Hafmeyjan sú flottasta sem við höfum séð ;)

Skrifaš žann 9. February 2008 12:54.

Jóna

Sælar sætu systur...Telma mín ég hef nú bara aldrei séð jafn flotta hafmeyju á ævinni, alveg geggjuð sko.

Skrifaš žann 8. February 2008 14:34.

Pálína

Flottar systur. Algjörar prinsessur í búningunum á öskudag. Hér var Laufey Mjallhvít og Kristín ljón. Sjáumst sem fyrst, Pálína

Skrifaš žann 7. February 2008 20:37.

Birna Blöndal

Æðislegar systurnar á öskudaginn. Svo glaðar og ánægðar :) Hér er búningaleikur enþá vinsæll...alltaf gaman að klæða sig upp á :)
Kærar kveðjur úr snjó og kulda á Akureyri
Birna

Skrifaš žann 7. February 2008 11:08.

Sigrún Þorgils

Halló sætu systur alltaf gaman að skoða myndirnar af ykkur.
Telma svakalega ert þú dugleg í skólanum,ég er mjög stolt af þér
og auðvitað hann Hallgrímur frændi þinn líka.
Haltu áfram að vera svona dugleg.Kveðja úr Norðurbyggðinni

Skrifaš žann 5. February 2008 15:07.

Dídí og gamla settið

hæ hó eigum eftir að sakna ykkar í dag en það er víst betra láta sér batna, biðjum að heilsa klukkubergsbúum.

Skrifaš žann 3. February 2008 09:54.

Birna Blöndal

Halló!
Flottust með gleraugun :) Hún verður örugglega fljót að finna hvað er gott að sjá vel :)
Kveðjur
Birna og co Akureyri

Skrifaš žann 31. January 2008 21:06.

Pálína

Til hamingju með gleraugun Ástrós Halla. Mér finnast þau bara sérlega flott. Ég var með gleraugu frá 2ja ára aldri og mamma var orðin sérfræðingur í að rétta þau því svona lítil börn fara jú ekkert sérstaklega vel með gleraugun sín. Ég verð nú að segja eins og er að gleraugin mín voru aldrei svona nett og flott heldur stór og groddalega og náðu niður í munnvik eins og tískan var á 8unda áratugnum.

Skrifaš žann 31. January 2008 13:32.

Anna Kristín

Vá hvað þú breytist stelpa með gleraugun :) Dugleg að hafa þau, ég á erfitt með að nota mín, þó á ég að teljast fullorðin en kannski er nýr heimur að opnast þér :)
Hafið það gott
Hafnarbergsfjölskyldan

Skrifaš žann 30. January 2008 12:00.

Dídí og gamla settið

Þú ert sko flottust með gleraugun, eða eins og daman orðaði það hér ,,Agú gejauju'' þegar hún sá myndirnar :) fljót að koma auga á breytinguna, hlökkum til að hitta ykkur sem fyrst.

Skrifaš žann 29. January 2008 10:47.

Brekadalsfjölskyldan

Hæ hæ sætu systur og takk fyrir komuna um helgina. Það var rosalega gaman að hafa ykkur.

Skrifaš žann 29. January 2008 09:41.

Vala og fj

Vá hvað þú ert flott með gleraugun þín og líka svona dugleg stelpa. Þú verður fljót að venjast þeim. Vonandi hittumst við sem fyrst kv Vala og Jón Hjörtur

Skrifaš žann 29. January 2008 01:57.

Hildur Björg og fjölskylda

Komið þið sæl.
Mikið rosalega ertu fín með gleraugun þín Ástrós Halla.
Við erum viss um að það verður ekkert mál að venja þig við þau, þú ert sko strax farin að finna muninn, ekki satt? Við þekkjum gleraugnamál nokkuð vel enda er Hildur Björg búin að vera með gleraugu frá því að hún var þriggja og hálfs. Það er sko flottast að vera með gleraugu, það er ekki spurning.
Hafið það alltaf sem best.
Kær kveðja, Hildur Björg, pabbi, Brói og mamma sem er sú eina í fjölskyldunni sem ekki er með gleraugu!!

Skrifaš žann 28. January 2008 22:05.

Dídí og gamla settið

sakna sakna, nú er hann að spá kólnandi í lok vikunnar vonandi getum við eitthvað hist þá, höfum verið á faraldsfæti innanbæjar þessa vikuna og fullt af fólki hefur rekið upp stór augu er við birtumst bara upp úr þurru. Maður verður að gera ýmislegt til að halda sönsum sko jæja vonandi sjáumst við í vikunni, hvað með þorrablót í annarri viku feb? Sjáumst allavega á föstudaginn fín spá allavega ennþá bara svolítið kalt.....

Skrifaš žann 28. January 2008 00:14.

Jana

Best að kvitta fyrir innlitið svona einu sinni:) Ég fylgist áhugasöm með ykkur og frábært að sjá hvað Ástrós Halla er að blómstra hjá ykkur. Bestu kveðjur til ykkar allra.
Jana

Skrifaš žann 26. January 2008 19:33.

Sólveig, Kalli, Elín Helena & Guðmunda Marta

Halló skralló fallega fjölskylda:-)
Vonandi gekk nú allt vel hjá augnlækninum! Eruð þið ekki að kafna í snjó í Höfninni?? Við erum nú mikið fyrir snjóinn en þetta fer nú að verða alveg gott:-)
Knús & kossar úr Kópavoginum
Sólveig & fjölsk

Skrifaš žann 25. January 2008 14:37.

Dí dí frænka

með hugmyndina erum við að tala um að taka myndir í afhendingarfötunum, þið lesið víst ekki hugsanir er það nokkuð :) heyrumst kannski á morgun þarf að forvitnast um föt í sendiráðið og svona almenn hnýsni.....sms

Skrifaš žann 16. January 2008 00:39.

Dí dí frænka

hei brilljant hugmynd, ætlum að prófa þetta á morgun ef daman mín er í stuði, hvernig er heilsan annars, hlökkum svo til að hitta ykkur um helgina, kveðjur frá fólki sem hundleiðist í öllum snjónum hefðum átt að verða veðurtepptar í höfninni :)

Skrifaš žann 16. January 2008 00:36.

guðrún karls

hæjj systur ... vorum að sýna langömmu á Hlíf myndirnar af ykkur systrunum biðum að heilsa !!

Langamma og Guðrún

Skrifaš žann 8. January 2008 14:46.

Laufey og Ásgerður Jing

Halló kæra fjölskylda!
Ekkert smá fallegar myndir á forsíðunni af systrunum. Sendi ykkur góðar nýárskveðjur og kvitta um leið í gestabókina. Kíki alltaf af og til á síðuna þó svo ég láti nú ekkert vita af því.
Kær kveðja
Laufey og Ásgerður Jing

Skrifaš žann 4. January 2008 22:38.

1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 11