

Hæ hæ,
við Nonni frændi vorum að tala um það að virknin á síðunni væri ekki nógu mikil og við þörfnuðumst nýrra mynda. Þú ert nú samt kannski ekki komin með netið, og við tökum tillit til þess en ef þú ert með netið þá er þetta enginn fyrirstaða.
Knús og kossar.
Sæll litli kúturinn minn, til hamingju með nýju tennurnar,nú er sko hægt að fara að bíta vel.Mikið var gaman að sjá þig og knúsa þig svolítið á ættarmótinu. Hafðu það gott ömmudraumur.
Vei vei vei til hamingju með að vera flutt í nýja húsið. Loksins loksins loksins.
Gaman væri nú að sjá nýjar myndir af herlegheitunum...
Kv. gengið úr Básbryggjunni + litla daman sem er alltaf veik þessa dagana ;(
Hæhæ SÆTI SÆTI strákur og til hamingju með fyrsta afmælisdaginn þinn um daginn. Ömurlegt að hafa ekki komist en svona er þetta, það er ekki hægt að vera á mörgum stöðum í einu:o( Við kíkjum á ykkur í nýja húsið við tækifæri.
Fullt af kossum og knúsi þangað til...:o*
Kv. Auður og Benjamín.
Elsku þið öll. Til hamingju með flutninginn og Sverrir Bjarki til hamingju með afmælið. Hlakka til að sjá ykkur í haust í Hundraðinu og fá kaffi í nýja eldhúsinu. Kærar kveðjur af Kársnesinu.
æjj elsku litla krútt! Elska að skoða myndirnar af þér, þú ert svo yndislega mikill kútur! ;* og það bara fer ekki framhjá neinum að þú tilheyrir fjölskyldunni minni, sverð þig aaalgjörlega í ættina :) Hvenær ætlaru eiginlega að segja gamla settinu þínu að koma með þig í heimsókn til mín??
Til Hamingju með afmælið :o)
Sjáumst á eftir
Sæll ljúfurinn minn, amma fór strax að sakna þín eiginlega áður en þú varst kominn upp í flugvélina, en bráðum kemur amma að leika og skemmta sér. Hafðu það gott.
Knús
Sæll kúturinn minn, amma þessi voða klaufi og kann ekki að opna myndirnar úr sumarbústaðnum. Ég varð voða kát þegar ég sá að eitthvað var komiðennnnnnnnnnn ekkert gekk. Jæja en bráðum fæ ég nú að sjá þig sjálfan og hlakka mikið til.
Knús og kossar,afi biður að heilsa þér. bless amma
Hæ krúttin mín! Ég saknaði ykkar alveg sérlega mikið áðan, fór nefnilega í sund hérna á Hólum. Var voða dugleg, synti 40 ferðir. Ætla mér að reyna að komast í a.m.k. 80 á sama tíma..
Pabbi minn sagði að þið væruð bara alveg að fara að flytja inn! Það eru nú góðar fréttir og ég get rétt ímyndað mér að þið (eða allavega þú) séuð farin að telja klukkustundirnar.. Hlakka til að hitta ykkur, vona að afmælið hans verði helgina eftir þann 12 svo ég komist í það! :) Knúúúús og klemmmm
Halló ,pjakkurinn minn, ferðu ekki bráðum að koma til ömmu.
Það er konin hreinn sandur í sandkassann og amma er búin að bæta við skóflum svo það er nóg til handa öllum.
Bið að heilsa og sendi þér kossa xxxxx amma
Hæ Abba frænka. Gaman að sjá þig nýta þér tæknina og kvitta í gestabók. Við vonum líka að við sjáumst í sumar.
Sæll Sverrir Bjarki
´´Eg var að skoða flottu myndirnar af þér og þínum.
.Þú ert mjög duglegur strákur.Vonandi fæ ég að sjá þig
í sumar .Bið að heilsa mömmu og pabba .
kveðja Abba frænka
Já það væri gaman að sjá ykkur mæðgin. Það er nefnilega líka svo langt síðan við kíktum í Hnífsdalinn. Við reynum kannski að plana ferð og þá er aldrei að vita nema maður skelli í eins og eins skúffu...
Hæ þið öll. Gaman að skoða myndirnar. Sverrir Bjarki algjört rúsínurassgat :) Erum alltaf á leiðinni í heimsókn í svetina, orðið ansi langt síðan við komum síðast.
Kveðja Olga og Isaac Logi.
Elsku Sverrir Bjarki.
Gaman að heyra aðeins í þér í símanum áðan, amma er alltaf að skoða síðuna þína
Kossar og knús, amma
Ætlaði bara að kvitta ;) Gaman að sjá myndir =)
Ég bara allveg að koma í sveitina:D Hlakka til að sjá ykkur;)
Hæhæ sæti frændi það er svo gaman að lesa um hvað er að gerast hjá ykkur:)Þú ert orðin svo duglegur,Við hlökkum til að sjá ykkur í sumar:)
Bestu kveðjur frá okkur
Æðislegar fréttir af Huldu og sætasta frændanum (sem verið er að klára að búa til). Við hlökkkum ekkert smá til að sjá hann og kynnast og leika við.... Okkur var nú sagt að Sverrir yrði svona 16 merkur en þá var nottla miðað við settan dag. En svona flottir strákar koma nú bara þegar þeim sýnist.
Hæ sætastur af öllum. Mikið er gaman að skoða baslið á þér. Þú ert held ég ennþá krúsilegri en í frænkuboðinu. Hulda frænka talar enn um þig af taumlausri aðdáun. Litli frændi, bumbubúinn hennar Huldu stefnir í a.m.k. 17 merkur segir sónar í dag. Fylgjan komin á réttan stað og allt í fína lagi. Dónaskapurinn í Huldu mömmu að segja að maður sé 13% þyngri núna 34 vikur heldur en "venjuleg börn" Við frændur erum sko ekkert venjulegri, við erum æðislegir. Ástarkveðja til mömmu og pabba frá Egilsstöðum.
kvitterí kvitt kvitt sæti strákur, takk fyrir alla helgina.
Kveðja Mín
Hey ég get sko alveg hlaupið þig uppi núna. Hvenær m´aég gista í þínu húsi
kv
Krista
Hæ sæti vinur,
segðu nú mömmu þinni að setja inn nýjar myndir! Það er fullt af nýjum hjá okkur.
Annars erum við að fara til úglanda en vonandi sjáum við nýjar myndir þegar við komum heim.
Sæl verið þið :) .. jæja þá styttist óðum að ég komi í heimsókn til ykkar :) .. Var svona að lesa viðburði ykkar.. af því ég nennti eiginlega ekki að halda áfram að lesa skólabækurnar.. enda kominn háttatími :) .. Ég vona að þið hafið það sem allra best..
prófalestrarkveðjur frá Noregi :)
Hæ hæ !
Gaman að skoða myndir af þér, orðinn svo stór og myndarlegur strákur :) hlökkum til að hitta þig...
kv. úr borginni
Sverrir viltu koma í sund í Reykjavík?
Mig langar nefnilega svo mikið að sjá hvað þú ert duglegur að kafa og synda, í flottu sundbuxunum. Sjálf var ég að fá nýjan geggjaðan sundbol sem mig langar sérlega mikið að sýna mömmu þinni! ;) ps. þú færð bara að senda sms með svari, úr mömmu þinnar síma í mömmu minnar síma!
VÁ!!! líst vel á húsið ykkar, á eftir að verða rosa flott hjá ykkur. Eins gott að bjóða okkur í heimsókn þegar þið eruð flutt inn...:o)
Og Sverrir, þú ert svo mikil dúlla að það hálfa væri nóg, algjört rassgat.:o)
Ykkar vinir Auður og Michael
Sæll kúturinn minn, ertu enn að basla eitthvað eða farinn að lúlla.
Við afi bíðum spennt eftir að hitta þig
kossa amma
Hæhæ
Við vorum að opna síðu fyrir súgfirsk börn og vonum að þið viljið vera með á síðunni :c) hér er slóðin http://sudureyri.barnaland.is/ endilega láttu þetta berast :c)
kv Jóhanna