

Halló sætastur, þú ert alveg yndislegur, sérstaklega myndin þar sem þú ert að fylgjast með úr fjarlægð, verulega yfirvegaður ungur maður. Gaman að því hversu mammsið þitt er dugleg að setja inn myndir, rukkaður mömmu hans Breka frænda um myndir! Sjáumst vonandi sem fyrst kútur, þín eldmóða
Elsku ljúfur, amma getur varla beðið þangað til þú kemur.
Hlakka til, hlakka til, hlakka til
Knús og kossar
Hæ dúlli,
Hvenær ætlaru að koma aftur í heimsókn til okkar Önju, eða eigum við að kíkja á þig ? Það væri gaman. Nýárskveðjur til ykkar familíunnar..sjáumst vonandi bráðlega.
Já og pikkaðu í mömmu og segði henni að mér finnst æðislega gaman að búa til og breyta svona barnasíðum þannig ef hana langar í nýtt look á síðuna þína þá þarf hún bara að kalla/hringja/senda e-mail/hóa eða hvað sem er í mig
xoxo
Heibbs, bara að láta vita um nokkrar nýjar myndir á síðunni, ekki margar en... hehe flottur jólastrákur.
Gleðilegt nýtt ár og takk fyrir þau gömlu.
Knús og kossar,
Sigga & co.
Elsku Sverrir Bjarki minn þú ert lang flottasti sjóari sem ég hef séð :) Takk Svala mín fyrir að vera svona dugleg að skrifa og setja inn myndir alltaf gaman að sjá hvað þið eruð að bardúsa. Gleðilegt ár og takk fyirr það gamla, bið að heilsa pabba þínum og mömmu þinni. Hlakka til að hitta þig og gefa þér ÍSSSSSSSSSSSSSS. Bestu kveðjur Elín Hanna frænka
Gleðilegt nýtt ár!!
STÓRT Knús til ykkar allra
Kveðja úr Ásgarði
Gleðilegt nýtt ár frændi og mig langaði bara að segja þér að ég er enn þannig að það þarf að ýta við mér ef fólk vill ná sambandi við mig á tv-time, þetta er kostur ekki galli.
Elsku Sverrir Bjarki, gleðilegt ár og takk innilega fyrir gamla árið.
Vonandi verðurðu hress á nýju ári og ekkert lasinn meira.Kannske ertu búinn að taka allar pestir sem fylgja með leikskólanum.
Knús og kossar amma og afi í Bakkaselinu
Elsku kallinn minn, gott að heyra að þú ert orðin frískur.
Nú er lag fullt af snjó og skemmtilegheitum, þegar þú ferð út á snjóþotunni.
Knús og kossa frá ömmu
Sælar elskurnar mínar. Við óskum ykkur gleðilegra jóla og farsældar á nýju ári...hlökkum til að vera dugleg að heimsækja ykkur á því nýja...:o)
Kv. fjölskyldan Hlíðarvegi 42.
Elsku kallinn minn, hvernig er þetta eru engar fréttir af þér sem rata á þessar síður. Amma bíður og vonar
Knús frá ömmu
Sæll Sverrir minn.
Afi þinn vissi alveg af hverju bókin var á hvolfi, þú ert auðvitað að sýna mömmu þinni bókina og svoleiðis.
Knús pjakkurinn minn amma
Sæll elskan, mikið er flott húsið ykkar og hlylegt og jólalegt,flott hjá ykkur. Gott að heyra að þú er orðin frískur.
knús og kossar amma.
Hæ pjakkur
Rosalega er jólalegt og kósí húsið ykkar svona flott skreytt. Gott að þú ert búinn að ná heilsu og kominn á fullt í glassúrneyslu aftur
HæHæ flotti frændi rosalega er orðið jólalegt og fínt hjá ykkur:)Gott að þér er batnað:) Hafið það gott um jólin bestu kveðjur héðan.
Hæ Hæ Sverri Bjarki mikið er ég fegin að þér er batnað. Ég er ekki hissa á að þú segir "Fint" þegar þú sérð ljósin í gluggunum. Þetta er æði hjá ykkur, mamma þín og kannski pabbi líka hafa staðið sig vel og skapað skemmtilega stemmingu. Hlýjar kveðjur frá mér og Berglindi og takk fyrir símtalið í gær :)
Æjji takk fyrir glaðninginn og takk fyrir batni - kveðjurnar. Mikið finnst mér húsið ykkar GEGGJAÐ - það er svo jólalegt að sjá það með þessum fínu ljósum og allt. Svo rak ég augun í flottar innréttingar og flottar gardínur í eldhúsi, sem og margt annað :) Maður ætti kannski að gera sér ferð í sveitina næsta sumar og kíkja á slotið.
Jæja ætla að halda áfram að læra.
Knús á ykkur.
Sigga P & co.
Já satt segirðu, hvað segirðu um að gleðja mig :)
Það var mikið að ég fann ykkur. Nú hef ég mikið að gera að skoða myndir af þér sæti Sverrir Bjarki. Vonandi förum við að hittast vegna þess að við Ólafur Orri erum búin að sakna ykkar.
Veikinda kveðja frá okkur á Ísó
Hæ duglegasti bóndi. Þetta er smá væl póstur frá mér... ertu bráðum að koma með mömmu þinni suður ? Langar svoooooo að hitta ykkur, þessar sögur eru fínar en langar að sjá ykkur, heyra í ykkur, faðmast og kyssast..... aðalega SB :) viðurkenni það. Hvernig er hátíðaplanið hjá ykkur ? Kveðja Enín Nannana ( Kristu Guðrúnar útgáfa af Elín Hanna )
Hæ hæ :)
Flottur strákur .
kveðja munda inga
skaga mær...........................
Sæll kúturinn minn, amma var bara að kíkja og vona að það væru
kannske nýjar muyndir af þér. Reyni seinna.Hafðu það gott ljúfurinn minn.
Knús amma
Kvitt kvitt, alltaf hressandi að skoða gamlar myndir og rifja upp góðar minningar :) ég gerði það í dag.
Knús knús til ykkar
Olla &co
Elsku hjartans kúturinn hennar frænki sín. Alveg ertu dásamlegur. Það er ægilega gaman að geta farið og skoðað myndir af þér og séð hvað þú ert að bralla, það er greinilega ýmislegt, hörkulærdómur og svo veislur þess á milli, knús og kram, eldmóða á Egilsstöðum
Mér finnst nú bara hjónasvipur með þeim Sverri og Önju, bæði svona stóreygð og ljóshærð! Gaman að vera komin í nálægð við þig kútur, hlakka til að sjá þig næst.
halló halló :-) alltaf jafn gaman að kíkja hérna inn og sjá hvað er að frétta af ykkur. Viðurkenni alveg að ég kíki ekki reglulega lengur því það er bara svo mikið að gera í skólanum núna :) en ég reyni að fylgjast með og vera "up to date" :o) Hafið það sem allra best, knúsýsakn :-)
Hæ sæti strákur. Gaman að skoða myndir af þér. Þú ert ótrúlega flottur. Ég var einstaklega ánægð með að sjá þig með dönskubækurnar. Bliv ved med det ;)
Hilsen, Dagbjört (vinkona Hildar móðu)
Hæ var bara að sgoða myndi sætaur frædi mín
Hæ sæti strákur og takk fyrir síðast. Við verðum nú að hittast aftur bráðlega fyrst okkur kom svona vel saman:) Hlakka til að kíkja í sveitina til þín..ég nefnilega eeeelska dýr og sérstaklega hunda og ketti:)
Knús til mömmu..þín vinkona Anja
MEIJA!!