

Velkomin
Ég er litli drengurinn þeirra Tótu og Palla og heiti Sveinn Pálsson. Ég kom í heiminn þann 24. júní klukkan 16:08 og var 12.5 merkur og 48.5 cm.
Ég á svo von á litlum bróður eða systur í nóvember á þessu ári svo mamma og pabbi eru rosalega dugleg að búa til systkini handa mér :)

Mamma mín heitir Þórunn Sighvatsdóttir og er hjúkrunarfræðingur. Hún er 30 ára og hefur unnið á Bruna- Lýta- og HNE deild landspítalans í 4 ár. Hún er einnig að klára Diplómanám í hjúkrun og mun líklega útskrifast um það leiti sem ég kem í heiminn.
Mamma kemur frá litlum bæ sem heitir Lyngás, þar býr hann afi minn Sighvatur ásamt konu sinni Laimu og frænda mínum Hödda. Þau eiga tvo hunda, Skottu og Jerry sem verður gaman að tætast í þegar ég verð eldri. Amma mín Bára er því miður dáin ásamt frænku minni henni Sif, en mamma er viss um að þær séu að halda verndarhendi yfir mér hjá honum Guði.
Pabbi minn heitir Páll Sveinsson og er fjármálafræðingur. Hann er líka 30 ára og vinnur hjá Íslandsbanka. Þar er hann deildarstjóri í Áhættustýringunni. Hann og mamma eru búin að vera afar lengi saman eða 13 ár enda ætla þau að fara að gifta sig bráðum (loksins segi ég nú bara
). Pabbi lærði fjármálafræðina í Skotlandi eða í Glasgow. Hann er besti pabbi sem hægt er að hugsa sér.
Pabbi kemur frá Gunnarsholti, en þar er Landgræðsla ríkisins til húsa. Afi minn hann Sveinn er nefnilega Landgræðslustjóri (í daglegu tali kallaður stjóri) og hefur verið frá árinu 1973 en áður var langafi minn og bróðir hans Landgræðslustjórar. Pabbi hefur því verið mikið í kringum landgræðslustörf og unnið öll möguleg störf hjá þessari virtu ríkisstofnun. Þau mamma kynntust einmitt þarna þegar hún fór að vinna hjá Landgræðslunni. Amma Oddný og afi Sveinn búa enn í Gunnarsholti og finnst hvergi betra að vera.

Sveinn er:
Litla krílið í bumbunni hennar mömmu er: