

Velkomin á heimasíðuna okkar!
Við erum yndislegu systkinin Arnar Geir og Lára Bryndís






Arnar Geir kom í heiminn þann 26. júlí 2008. Væntanlegur fæðingardagur var 25. júlí svo hann var sem betur fer ekki að láta bíða of lengi eftir sér :) Prinsinn fæddist á Hreiðrinu kl. 15:39 og var rúmar 16 merkur (4070 g) og 55 cm. Til að byrja með fannst okkur hann vera rauðhærður en svo varð liturinn meira eins og dökk-skol... og svo varð hann aftur rauður :)
Arnar Geir var skírður 14. september 2008, á afmælidegi múttunnar. Hann var voðalega góður í kirkjunni, greinilega mjög sáttur við nafnið sitt.
Lára Bryndís fæddist þann 14. september 2011, daginn fyrir settan dag - mjög ákveðin að gefa mömmu sinni stóra og veglega afmælisgjöf. Hún fæddist í baði á Hreiðrinu kl. 17:13 og var 16 merkur (4020 g) og 52 cm með mikinn dökkan lubba. Lára Bryndís var skírð á mánaðarafmæli sínu, þann 14. október og hélt amma Bylgja á henni undir skírn.

LJÓNIÐ
23. júlí - 22. ágúst
Konungurinn í frumskóginum er mættur og vill einmitt vera meðhöndlaður í samræmi við tign sína. Litla ljónið þarfnast athygli (við erum að tala um að vera alltaf miðdepill athyglinnar!) og vill láta taka eftir sér og láta dást að sér. Það getur verið mikil vinna að eiga börn í ljónsmerkinu. Börnin eru oft hávaðasöm og mjög opin í tjáningu. Ef barnið er ánægt er það yndislegasta og fallegasta barn í heimi en ef það er óánægt öskrar það og lætur öllum illum látum. Heimilislífið kemur til með að snúast mikið í kringum kraftmikinn ljónsungann sem getur verið mjög stjórnsamur og frekur. Það þýðir ekki að segja ljóninu að læðast meðfram veggjum því slíkt er andstætt eðli þess og er ekki til annars en að brjóta það niður. Vingjarnleg ákveðni er það sem dugar best. Ljónið er merki stjórnunar og foreldrar þurfa að virða þörf þess fyrir persónulegt sjálfstæði og því er gott að fela því snemma ábyrgð. Mikilvægt er að kenna því að taka tillit til annarra. Það þarf að taka tillit til þess í uppeldi að ljónið er einstakt og veita því athygli, hvatningu og ekki síst að hrósa því þegar það hefur gert eitthvað jákvætt.