

Til hamingju með daginn í gær - 8 mánaða gaur !!! ekki langt í 1 árs afmælið !!! Þú ert sko flottur í rauðu - eða eins og frænka á Þingeyri sagði "flottur í öllu" þú ert bara draumur.
Bið að heilsa fólkinu þínu sem er ekki hjá mér.
Knús og kossar þín UHF Líney
hæ, hæ
gaman að sjá myndir, þú ert orðinn svo stóóór :) -
knús og kossar frá okkur
ps. Við vorum að spila Ólsen Ólsen og ég vann mömmu 15-7 - hún hefur nú ekki tapað svona stórt lengi :) Ha, ha, ha
Til lukku með daginn fallegi strákurinn minn - ég er bara enn að átta mig á því hvað ég geti sagt nógu fallegt til að lýsa þér, kemst bara ekki yfir það hvað þú ert mikill sjarmör, flottur í rauðu, flottur í öllu og flottur í hvaða athöfn sem er... vonandi er mamma búin að bóka flug svo við getum farið að hlakka meira til að hitta þig eftir að við hittum þig í Rvík :) XXX Sæta mús - þín Besta
Sælt veri fólkið.
Flottur strákur hér á ferð, enda við engu öðru að búast þegar gamla settið er eins og það er. Vonandi sjáumst við sem fyrst. Hlaupabólu vesen er búið að einkenna nýja árið hjá Emmu og Guðna, enda hlaupaár ; o )
Verðum í bandi,
knús
Sigrún
Til lukku 8 mánuðir, takk fyrir dansinn í gær elsku kútur. Knús og koss frá ammasín
Kvitt, kvitt fyrir innlitið!
Alltaf jafn gaman að skoða myndir af fjölskyldunni!
Þangað til næst....!
Hæhæ! Gleðilegt ár! Mikið er gaman að skoða myndirnar af Stefáni, hann er algjört bjútí! Verð svo að hrósa piparkökuhúsinu, geggjað hús og ekki að sjá að byrjendur hafi verið á ferðinni. Ég þarf að fara að manna mig upp í að búa til svona hús einhvern jólin :)
Hafið það sem best,
Valla og liðið
Sæti - takk fyrir knúsið í dag. Þú átt eftir að standa þig eins og hetja í pössuninni við efumst nú ekkert um það.
xxx yfir túnið
Sæll félagi ... nú er uppáhaldsfrænka að skrifa þér frá Köben (Front) og er þokkalega sátt - sængurnar eru æði - eigum eftir að sofa vel hér!
Þú ert aldeilis flottur á flegi-ferð um allt heima hjá þér. Ég verð að vera sammála Döggu hér að neðan ég verð að fara að hafa smá hitting - verðum að spá aðeins í það og hafa Kötlu Dagmar með!!! Væri ekki vitlaus hugmynd.
Sendi knús og kossa á línuna heima hjá þér.
Þín UHF Líney
Hæhæ kæra fjölskylda og gleðilegt nýtt ár. Takk kærlega fyrir jólakortið, þú ert nú meiri sjarmörinn Stefán Arnar... ekkert smá sæt mynd :) Hafið það sem allra best á nýja árinu.
Kveðja frá Köben
Hæ hæ sæti strákur.
Rosa gaman að skoða myndir af þér, þú ert algjör dúlla.
Skilaðu rosa góðri kveðju frá Húnavöllum.
Kveðja, Dísa og Halldór Smári
Gleðilegt nýtt ár. Er sko alveg sammála frænku þinni,hvernig er hægt að vera svona sætur ;)
Væri nú gaman að hitta þig við tækifæri, Líney frænka verður nú bara að fara að hafa eitthvað boð svo maður geti hitt þig og alla hina.
Bestu kveðjur til m+p
Dagga og co
Gleðilegt ár elsku fjölskylda og hafið það gott á nýju ári.
bestu kveðjur frá San Francisco
dí hvernig er hægt að vera svona sætur?!
knús - hlökkum til að sjá ykkur bráðum aftur út um gluggann! ;)
xxx
Sas + Íbb
Var sem sagt að fatta núna að áramótamyndirnar væru í jólin 2007 albúminu... skyldi ekkert í því hvar þær myndir væru... en fann auðvitað fullt af flottum myndum af súkkulaðisætum strák sem ég gæti einfaldlega borðað hann er svo sætur, sendum knús XXX
Gleðilegt nýtt ár frændi ... og mamman og pabbinn - Takk fyrir árið 2007. Þokka flottar myndirnar af þér draumurinn minn og ég hlakka svo til að fá að knúsa þig.
Bið að heilsa, þín UHF Líney !!!
sæll Stefán Arnar
GLEÐILEGT NÝTT ÁR & TAKK FYRIR ÞAÐ GAMLA!:o) Gaman að skoða myndirnar af þér. Greinilegt að þið fjölskyldan áttuð yndisleg jól & áramót saman. Vonandi hittumst við sem fyrst og leikum okkur saman
kær kveðja
Diljá Dís & Birkir Jakob
Gleðilegt ár!!
Ekkert smá mikið af flottum pökkum sem þú fékkst;) ekkert smá heppinn:) Greinilegt að þið hafið haft það gott um jólin.
kv. Helga
Sæll frændi. Gleðilegt ár, vonandi hittumst við oftar á nýju ári. :o) rosalega ertu flottur í jólasveina fötunum og duglegur að taka upp jólapakkana og það er rétt af þér að smakka á pökkunum til að a.t.h hvað sé í þeim og hvort þeir séu mjúkir eða harðir. :o) Bið að heilsa mömmu og pabba. Nýárskveðjur fjölsk. í Eyjabakka 12
Elsku fjölskylda!!
Gleðilegt nýtt ár og takk fyrir það gamla, vonum að nýja árið færi ykkur gleði, ást og hamingju ;-)
Knús
Hafrún, Yngvi og Hilmir
Hæ, hæ sæti strákur :)
Greinilegt að þið eruð búin að hafa það gott um jólin :o)
Segjum bara gleðileg jól og farsælt komandi nýtt ár !!!
Áramótaknús,
Hjördís, Baldur og Andri Freyr C",)
Sæll snúlli minn ... þú ert barasta mesa krútt sem ég hef séð.
Takk fyrir allt knúsið sem ég fékk á öðrum í jólum - frétti að þú hefðir sofnað strax og heim var komið.
Flottar jólamyndirnar af þér - gegjaður bíllinn þinn eða réttara sagt Tomma lestin þín.
Knús og kyss í kotið þitt.
Þín UHF Líney
Elsku kallinn vona að þú fyrirgefi ömmusín þetta með snjóboltann
kem við á leiðinni heim í dag ; )
Sætur ertu litla súkkulaðimús... krúttlegastur með snjóboltann, hver var prakkarinn? Flottur bíllinn þinn tökum undir það og mætum galvösk með látum til að prufa :) eins gott það sé sterkt í honum... knús í kaf þín BF Þórey ;)
sæti strákur - takk fyrir góðu stundina okkar áðan, hún var æði ;) svo opnaði ég nýja jólaalbúmið þitt og þú ert svo óendanlega krúttlegur á fyrstu myndinni að ég ætlaði bara ekki að tíma að fletta yfir á næstu mynd. En varð síðan að sjálfsögðu ekki svikinn því þú ert svo sætur að það sést á öllum myndum :) mamma þín og pabbi verða að fara rólega í sætu kartöflurnar annars verðuru bráðu of sætur ! Svo er tomma-bíllinn þinn sko geggjaður - ætlum að koma í heimsókn til að prófa - bara seinna, þegar við erum búin í sveitinni ;)
erðanú langloka!
love you
XXX
Svakalega ertu ordinn stór og sætur strákur. Eflaust hefur tú alveg séd um ad opna pakkana tína sjálfur. Vid hér í Dk óskum ykkur gledilegra jóla og svona innst inni vildi madur nú fá eitthvad af jólasnjónum ykkar.
Kvedja Oddný og co
Sæl og blessuð kæra fjölskylda
við sendum ykkur norskar jólakveðjur í ár - sitjum hér í fjallakofa - snjór í öllum hlíðum, vorum að koma af skíðum og erum að fara að undirbúa jólin. Hugsum til ykkar allra :)
sæll Stefán Arnar
Þú ert nú meira krúttið :o) æðislegar myndirnar af þér. Vá hvað þú ert orðinn duglegur farinn að standa upp við borð og alles :o)
Biðjum kærlega að heilsa ma&pa
knús
Halla, Diljá Dís og Birkir Jakob
Hæ Stefán! Takk fyrir heimsóknina. Við kláruðum allar kökurnar sem mamma bakaði handa okkur og þær voru rosalega góðar. Jólakortið með myndinni af þér í jólasveinabúningnum er komið upp á hillu inni í stofu, á besta stað.
Þú ert nú meira krúttið!!
æðisleg myndin af þér með jólasveinahúfuna :)..
biðjum voða vel að heilsa
Kveðja
Arndís og Baldur Þór