

halló litla vínberið okkar ;)
þú ert svo flottur lítill strákur - Margrét segir að þú fáir nýja bleiju og að súpa hjá mömmu þinni, svo ertu duglegur að sofa líka ;)
hlökkum til að knúsa þig aftur,
XXX
Ernir segir að þú eigir að heita Sigurður Þórarinn Gunnarsson en Valur segir að þú eigir að heita Aðalsteinn Gunnarsson - Veldu nú sæti frændi okkar. Hann er svo lítill og með litla fætur :) XXX við óðu fyrir vestan sem kíkjum oft á dag á ykkur!!!
Þú ert nú meiri sjarmörin :o) algjör dúlla. Æðislegar myndirnar af þér og þínum. Hlakka mikið til að koma í heimsókn við tækifæri og fá að hitta þig í eigin persónu ;o)
Skilaðu góðri kveðju til mömmu og pabba frá okkur
knús og kossar
Halla, Nonni, Diljá Dís og Birkir Jakob
Halló fallegi frændi minn, takk fyrir að leyfa mér að knúsa þig - strax farin að hlakka til að sjá þig eftir 5 daga :) XXX
Halló elsku litli frændi!
... við sem vorum búin að ákveða að hitta þig í dag og klukkan orðin meira en heimsóknartími ... og við að fara í burtu lengi lengi ... við eigum eftir að sakna þín og erum strax farin að hlakka til að hitta þig þegar við komum heim. Sendum risa knús og trilljón kossa til þín og líka mömmu og pabba. Hafði það gott og sjáumst síðar.
Knús og kyss Guðjón, Arnór, Líney og Atli
Hæ hæ og innilega til hamingju með gullmolann elsku foreldrar. Nú er maður loksins kominn í tölvusamband og svala forvitninni aftur og aftur og aftur að skoða yndislega ljónastrákinn ykkar. Ég hlakka til að koma í heimsókn og knúsa ykkur. Kveðja af sjúkrabílavaktinni á Selfossi;)
Eitt tölvuknús til þín flotti strákur!
Halló, halló :)
Var að skoða síðustu myndirnar, æi, hvað ég hlakka til í júlí -
hann er svo yndislegt -
kveðja frá stóru frændunum - - Sindri var að baka köku svo við erum búin að kveikja á kerti og ætlum að hafa Stefánskaffi í dag - stóri frændi í DK á afmæli -
knús og kossar á línuna
Elsku Halla og Gunnar. Til hamingju með litla drenginn ykkar . Gangi ykkur vel í uppeldinu Kveðka frá Blönduós . Kiddý
Innilega til hamingju með prinsin.. værum alveg til í lykilorðið..
knús Hönn og co
Halló litli gullmoli og takk fyrir að leyfa okkur að koma knúsa þig í gær. Það var æði...þú ert ÆÐI;). Hlakka til að sjá þig sem aftur sem fyrst.
Knús í krús frá mér til þín
Halló litli frændi ... þú ert alltaf jafn flottur - söknum þín og hlökkum til að hitta þig - FLJÓTT.
Knús og kossar frá okkur - Arnór, Guðjón og Líney
Takk fyrir lykilorðið Halla mín!
Mikið rosalega er drengurinn ykkar fallegur og mannalegur og kröftugur að sjá, hann er algjört æði!:)
Sjáumst vonandi fljótlega
Knús
Kristín
Elsku Halla og fjölskylda, innilega til hamingju með fallega prinsinn ykkar enn og aftur :o) Hann er algjör gullmoli ... ég held að ég sé farin að heyra ofheyrnir því það glymur í bjöllum alls staðar í kringum mig meðan ég skoða myndirnar :o) Manni langar bara í einn svona prins he he he af því minn er orðinn svo stór ;o)
Hafið það sem allra best ... kiss og knús kv HÓH og family C",)
Elsku Halla og Gunnar!
Innilegar hamingjuóskir með gullmolann ykkar, hann er yndislegur.
Væri til í að fá lykilorðið til að geta fylgst með ykkur.
Gangi ykkur sem allra best litla fjölskylda.
Hamingjuóskir til Margrétar ömmu, ekki slæmt að eiga svo frábæra ömmu!
Kossar og knús
Kristín Björg og co
Frábært að sjá myndirnar, frekar sætur kappinn. Lýst vel á að venja hann við rauða litinn. Hlökkum frekar mikið til að sjá ykkur eftir rúman mánuð.
Kveðja frá Kaliforníu
Ég kem við hér á hverjum degi til að kíkja á ykkur.
Alltaf jafn sætur hann "ljóni" litli :)
Knús og kossar
Hmm eitthvað skrítið, ég var alveg 100% viss um að ég hafi verið búin að skrifa hérna!
Allanvegana, Innilega til hamingju elsku tvö, hlakka til að fylgjast með svo þið verðið að vera dugleg að setja inn myndir og annað skemmtilegt!! Knús knús knús, Kristín frænka í Ameríku. Velkominn í heiminn svo elsku Bríet Kolbeinn!!
p.s. ofsalega fallegt nafn sem þið völduð!!
Heil og sæl
Rosa flottur kappi-alveg eins og foreldrarnir. Hlakka til að kíkja í heimsókn.
Kossar og knús
Sigrún Guðnad.
Hann er nú algjör gullmoli !!! Gaman að geta fylgst svona með frá norðurlandinu. Bestu kveðjur úr hvítasunnublíðviðrinu.
Gvud ég bara verd ad kvitta aftur í dag..haha!
Jiminn hvad hann er saetur! Algjört skott med mikid hár - svo mannalegur! Mér finnst ég nú sjá soldinn Gunnarssvip :)
Hlakka til ad hitta ykkur í júní :)
Kv. Ebban
Kíkt við á hverjum degi, gaman að geta fylgst með hvað er að gerast hjá litla prinsinum
stórt knús og kossar
frá langtíburtuastan :)
Flottar myndirnar og þú alltaf sami gullmolinn ekki laust við smá öfund þegar mar sér allt þetta fólk sem fær að taka í þig og við svona langt í burtu og enn lengra finnst okkur þessa dagana. 4 dagar og þá kemur mamma :) Kv. Valur Örn, Ernir Elí og co Þingeyri
Halló fallegastur.... nú verð ég bara að fara að koma og sjá þig! Get bara ekki beðið lengur:) Þú ert svo yndislegastur!!!
Koss og knús til mömmu og pabba...
Til hamingju med drenginn elsku Halla og Gunnar!! :)
Thad vaeri nú gaman ad fá lykilord sent í maili :)
Gangi ykkur vel krúslur - thad vaeri gaman ad kíkja vid á Kristnibrautinni thegar ég kem til Íslands í júní!!
Knús!
Halló litli frændi.
Flottur ertu í fyrsta baðinu þínu - þú veist hvernig á að hafa það gott ! Hlakka til að kíkja á þig ... e.t.v. á eftir.
Knús og kyss þín uppáhaldsfrænka .... Líney
Hæ hæ! Innilega til hamingju með litla krúttið! Við hlökkum til að sjá ykkur í hjúkkumömmuklúbb. Væri svo gaman að fá lykilorðið sent í e-mail. Rosa spennt að skoða myndir.
kær kveðja, Nína og Emma
Takk fyrir að koma og heimsækja okkur í gær litla ljós yndislegastur. Gott að heyra hvað þú svafst vel í nótt gott fyrir
mömmu og pabba sem eru svo þreytt því við sáum í gær að þau blunduðu bæði eftir matinn . Sjáumst á eftir kem og tek stöðuna hvað hefur breyst frá því í gær litli kútur elskum þig amma og afi í Hraunbæ
langflottastur ;) það er alveg ofsalega gott að knúsa þig litli frændi - nú bíðum við bara spennt eftir að þú verðir aaaðeins eldri svo allir geti fengið að halda á þér ! ;)
knús
Sirrý