

Var bara að kíkja enn einu sinni...;o) það er svo gaman að fylgjast með ykkur...Stefán Arnar er bara æði með Adda sinn í vöggunni...;)
Knús á ykkur
Innilega til hamingju með prininn! Gangi ykkur vel í nýja hlutverkinu, sko sérstaklega Stefáni í stórabróður hlutverkinu;)
kv. Helga
Litli prinsinn er svo mannalegur og flottur, alveg yndislegur! Ekkert smá flottir strákar sem þið eigið:) Innilega til hamingju kæra fjölskylda
Bestu kveðjur úr Mosó
Elsku Halla, Gunnar og Stefán Örn, innilega til hamingju með fallega prinsinn ykkar, hlökkum til að sjá hann.
kærar kveðjur
Ég er varla komin heim frá því að sjá litla stúf að ég er komin inn á síðuna til að skoða hann aftur ... hann er alger draumur og stóri bróðir svo flottur. Arnór bíður eftir Stefáni og getur ekki beðið. Hafið það endalaust gott. Knús og kyss
Yndislegt að sjá myndir af litla manninum og ykkur öllum. Innilega til hamingju öll með þennan fallega, fallega dreng...;)
Risa knúsur til ykkar allra frá okkur.
Æðislegar myndir og þú lítur vel út eftir átökin Halla mín!!
Bestu kveðjur frá Lundinum
Yndislegar myndir :) af nýja prinsinum og fjölskyldunni hans:) Stefán Arnar minn -- til hamingju með að vera orðinn stóri bróðir. Hlakka til að koma og leika við þig og fá jafnframt að hitta litla bróður.
knús
Guðrún ömmufrænka :)
Elsku þið öll, innilega til hamingju með nýja fjölskyldumeðliminn. Frábært að sjá allar þessar myndir og þarna eru greinilega flottustu bræðurnir á ferð.
Hlökkum til að sjá ykkur og knúsa
Rúna, Jón Örn, Arent, Kristján og Thalía
Elsku Stefán Arnar flotti frændinn okkar, innilega til hamingju með titilinn stóri bróðir, sem við höfum fulla trúa á að þú tæklir með stæl. Auðvitað langar okkur mest núna að vera hjá þér, mömmu, pabba og litla stúf og knúsa ykkur í kaf en óskum þess bara enn heitar að þið njótið hverrar mínútu því við vitum að þær þjóta á þessari stundu :) Hlökkum til að heyrast - XXX
Vá hvað nýji prinsinn er sætur. Innilega til hamingju með prinsinn :) Vonandi gekk vel. Stefán Arnar er flottur stóri bróður. Kannski hittumst við í sumar á ættarmótinu.
En þangað til.....hilsen frá Aarhus-fjölskyldunni.
Elsku fjölskylda, hjartanlega til lukku með nýjasta meðliminn. Við getum sko ekki beðið eftir að sjá og snerta hann og knúsa ykkur hin í kaf :)
risaknús frá 51
XXX
Hæ elsku frændi.
Við Sædís Erla frænka þín vorum að skoða síðuna þín og sjáum hvað þú ert rosa flottur (orð SE).
Bæ bæ besti frændi.
Herdís og Sædís Erla í Mosó (í Rituhöfða 4.. SE vildi hafa þetta með :)
flottur eins og alltaf elsku frændi :*
Kossar og knús á stóra duglega frænda minn og þið sendið fingurkoss á frænda minn í kúlunni. Vona að þið hafið það sem alllra best. xxxxx
Hæ, hæ fallegi frændi minn. Það er naumast að þú ert orðinn stór og ekki skemmir fyrir hvað þú ert hryllilega sætur...;)..hlökkum rosalega til að hitta þig næsta sumar þegar þú verður orðinn STÓRI bróðir...:)...kannski getið þið Hólmar Hagalín brallað eitthvað saman. Knús á ykkur öll á Kristnibrautinni og Halla mín gangi þér rosa vel á lokasprettinum..hugsum til ykkar..:) kveðja Arna og co
Fallegi fallegi strákur - finnst eins og ég hafi sagt þetta oft áður... en þú ert bara svo fallegur. Gat ekki skrifað við myndirnar þínar e-ð rugl í kerfinu og ves en ég hugsaði marg og langaði að segja svo margt sem ég man auðvitað ekkert núna svo ég kem við síðar og segi það sem mig langar að segja þá :) Spaklega mælt!!! Knús til ykkar sæta fólk XXX
Hæ hæ kæra fjölskylda og takk fyrir kveðjuna á heimasíðunni okkar. Það er aldeilis að Stefán er orðin stór og myndarlegur strákur. Innilega til hamingju með litla bumbubúan ykkar, það verður gaman að fylgjast með :)
Kvitti kvitt fyrir innlitið.
Það er naumast að Stefán Arnar stækkar hratt og mikið. Alltaf svo flottur. Vonandi er heilsa mömmunnar á heimilinu góð!!
hæhæ
gaman að skoða myndir..
voða langt síðan að maður hefur kíkt hingað inn..
verð svo að kíkja á þig fljótlega
kv
arndís og strákarnir
sætilíusinn minn :*
Hæ, hæ
Það er svo langt síðan ég skoðaði síðuna þína frændi. það er svo flottar myndirnar af þér. Það er greinilega búið að vera gaman í sumar og nóg að skoða. :)
kveðja frá Nönu frænku
Hæ þið!!
Kvitti kvitt fyrir innlitið, Stefán Arnar er nú meiri sæti grallarinn.
Sjáumst:)
Hæ, hæ
varð bara aðeins að kvitta. Greinilega búið að vera gaman hjá ykkur í sumar :)
knús Hjördís og strákarnir C",)
Ekkert smá gaman að skoða myndirnar af þér litli grallari :) langt síðan að ég hef kíkt hingað inn á þig. Þið hafið átt yndislegt sumarfrí sé ég :) við verðum síðan að fara að hittast bráðlega...ég held að það sé barasta allt of stutt á milli hjá til okkar. Nú er Arndís komin líka í hverfið þannig að við getum farið að labba allar saman vonandi fljótlega
knús Halla
ohh man það núna elsku snúðurinn minn að ég gleymdi skírnardeginum þínum í ár... til hamingju með hann 27. júní betra er seint en aldrei - love you XXX
Takk fyrir daginn í gær ... sjáumst vonandi á morgun - knús og kyss grallaraspói!
sæti ! hlökkum til að sjá þig... á morgun! ;)
knúúús
Er náttúrulega búin að fletta nokkrum sinnum yfir myndirnar af þér elsku prins fallegur sjarmatröll - hef alltaf jafn gaman af og tek eftir einhverju meira og nýju - XXX
æ hvað það var nú gaman að skoða myndirnar ykkar og hvað hefði nú verið gaman að vera með ykkur og labba um skólann hennar mömmu þinnar og minn :) Gerum það saman að 5 árum liðnum :) Heyrumst sæta fjölskylda - Knús og kremjur XXX