Fæðinging
Ég fæddist þann 26. september 2009 klukkan 17:25.
Fæðingin fór fram heima á Reynimel í minnsta herbergi hússins eða inni á baðherbergi í baðinu.
Kristbjörg Magnúsdóttir ljósmóðir tók á móti mér og pabbi klippti á naflastrenginn.
Viðstödd fæðinguna voru pabbi, Sunna Rós stóra systir og amma Gunna.
Hárið mitt var dökk brúnt á litinn og augun dimmblá.
Þegar ég fæddist var ég 3170 grömm eða 12,5 mörk og 49 cm að lengd.
Fyrstu hríðir komu kl.15.
Sama dag og ég fæddist þá var haglél úti.
Skírnin
Skírnin fór fram þann 24. júní 2007 í Akureyrarkirkju.
Séra Sólveig Halla skírði.
Skírnarvottar voru Afi Gunni og Afi Svenni.
Á skírnardaginn var kalt en stillt veður.
Veislan var haldin í Hraungerði og lukkaðist mjög vel.
Íris merkir regnbogi og Rún leyndarmál eða vinkona.
Rún er í höfðuðið á ömmu Guðrúnu og langömmu Kristrúnu.
Jól
Veðrið á fyrstu jólunum mínum var fallegt. Það var frost og mjög stillt veður.
Ég klæddist rauðum kjól og hvítum sokkabuxum á aðfangadagskvöld.
Ég hafði engan áhuga á pökkunum en fylgdist með Sunnu Rós og foreldrum mínum opna pakkana.
Ég var hjá mömmu, pabba og Sunnu Rós á aðfangadagskvöld.
Ég sofanaði klukkan 02.00 á aðfangadagskvöld.
Helstu viðburðir fyrstu árin
Fyrsta baðið 5 daga
Fyrst í sturtu 11 daga
Fyrsta brosið 1. nóvember rúmlega mánaðargömul.
Hjalar 7 vikna
Fyrsta sinn til Akureyrar 26. nóvember, tveggja mánaða
Fyrst í flugvél 2. des
Byrjar í ungbarnasundi 7. janúar 2010
Velti sér af maga yfir á bak 12. febrúar
Veltir sér af baki yfir á maga 26. febrúar, fimm mánaða
Fyrstu veikindin 1. mars
Smakkaði graut fyrst 21. mars, fannst hann ekkert spes.
Hæð og þyngd
Við fæðingu var ég 49 cm og vó 3170 grömm.
Mánaðargömul var ég 3900 grömm.
Þriggja mánaða var ég 57 cm og 5220 grömm.
Fjögurra og hálfs mánaða var ég 61,7 cm og 6160 grömm.
Sex mánaða var ég 63,5 cm og 6440 grömm.