Alma Kristín og Aníta Ósk
 


Við höfum ekki sett inn nýjar myndir lengi en skrifum reglulega færslur í dagbókina ef þið viljið kíkja. Laughing

 

Við heitum Alma Kristín og Aníta Ósk og erum yndislegar systur sem mamma og pabbi sjá ekki sólina fyrir. Alma Kristín kom í heiminn 30. janúar 2006 kl. 02:11 og Aníta Ósk kom í heiminn 07. júlí 2009 kl. 18:29

Hér ætlum við að setja inn myndir og skrifa í dagbókina hvað er að gerast hjá okkur. Endilega kvittið í gestabókina fyrir heimsóknina, okkur finnst svo gaman að sjá hverjir eru að kíkja á okkur

Alma Kristín yndisfríð,

svo langþráð komst í heiminn.

Alla tíð svo ljúf og blíð,

angurvær og dreymin.

Helga frænka mín orti þetta til Ölmu Kristínar.

 


Sem kemur manni í heiminn með mikilli fyrirhöfn fæðir mann og klæðir og veitir alla þá hlýju og ástúð sem lítið barn þarf á að halda.
Mamma er alltaf til staðar með útrétta hjálparhönd þegar á þarf að halda.
Þerrar tárin þegar það er leiðinlegt og gleðst með manni þegar það er gaman að vera til.

Mamma er besta kona í heimi.


 
Sem verður svo montinn þegar maður fæðist að það mætti halda það hafi ekki fæðst barn áður en það tekur hann bara nokkra daga að komast niður á jörðina aftur.
Honum finnst skrítið að lítið barn skuli ekki getað sofið alla nóttina og kúkað í klósett eins og annað fólk.
Samt veit hann allt !!
Svo þegar maður verður aðeins eldri og þá er hægt að fara að leika við mann og kenna manni ýmislegt þá finnst honum rosa gaman.
Pabbi er alltaf til staðar með styrka hönd þegar á þarf að halda.

Pabbi er besti maður í heimi.

 Kæru vinir, ef ykkur langar að kíkja á okkur og vitið ekki lykilorðið þá endilega sendið mömmu eða pabba email og þau senda ykkur lykilorðið til baka. Mamma: erna34@gmail.com , pabbi: sigurjon@gardarsson.com

Kveðja Alma Kristín og Aníta Ósk




 



Heimsóknir í dag: 4
Heimsóknir frá upphafi: 16918