Alma Kristín og Aníta Ósk
 

Gullkorn

Hér verða skrifuð þau gullkort sem koma hjá Ölmu og Anítu.

{#emotions_dlg.tongue_out} Það var eitt gullkorn sem kom frá Ölmu Kristínu þegar Aníta varð 6 mánaða. Ég sagði við Ölmu. "Alma Kristín nú er Aníta Ósk orðin 6 mánaða, þá erum við búin að eiga hana í 6 mánuði". "já mamma" sagði Alma Kristín og var svo mjög hugsi í smá tíma. "Við skulum ekki selja hana, það er svo gaman að eiga svona fallega og góða stúlku". Nei það er á hreinu að við ætlum ekki að selja hana.

{#emotions_dlg.undecided} Gullkorn dagsins kom frá Ölmu Kristínu þegar hún var búin að gubba við sundlaugarbakkann þá sagðið hún við mömmu sína inni í klefa "pabbi var bara að plata mig í morgun"  "nú afhverju segirðu það segir mamma" "Hann lét mig fara í leikskólann en ég er enn veik" {#emotions_dlg.embarassed} .. Það var nefnilega smá barátta í morgun að koma henni í leikskólann því hún var heima í gær en mjög hress engu að síður og því alveg kominn tími til að fara í leikskólann í morgun. (21.10.09)

 "Góðan dag María mín, nú þarf að vakna" sagði ég einn morguninn við Maríu dúkkuna mína og strauk henni um bakið um leið, alveg eins og mamman gerir alltaf. (apríl ´08, 27 mánaða) 

 "Mamma, gilligilligó" segi ég á kvöldin þegar mamma á að syngja aftur bíum bíum bambaló sem mér finnst svo skemmtilegt lag,, sérstaklega þegar það er sungið dillidillidó. 

 "Punktur bolla gik" segi ég þegar einhver á að teikna fyrir mig Óla prik. 

 "Hvar er Erna mín" sagði ég eitt kvöldið við pabba þegar mamma var í skólanum.

 "Leggstu hérna ástin mín" sagði ég við Maríu dúkkuna mína þegar ég lagði hana í vögguna sína og svo söng ég fyrir hana Sofðu unga ástin mín.

 "Það eru boltar út um allt, Jesús". Sagði ég einn daginn. (mars´08, 2ja ára).

 " mamma hvar eru gestir ?" sagði ég morguninn eftir að við vorum með húsfund - gestirnir voru hér þegar ég fór að sofa þannig að hvað á maður að halda! (12.feb´08, 2ja ára) 

 "já fínt, já sæll ... " þetta söng ég þegar síminn hans pabba var að byrja að hringja hann er s.s með hringingu úr næturvaktinni þegar Pétur Jóhann syngur þetta  (11.feb´08, 2ja ára)

 " bless bless Lína" sagði ég þegar við vorum á leiðinni út af heimilinu og ég vinkaði í átt að stofunni. (8.feb´08, 2ja ára)

 2ja ára. "oh my god" hermdi ég eftir mömmu minni í bílnum. 

 23.mánaða (jan ´08) ég nota voðalega mikið stafinn g þegar ég tala hér eru nokkur orð sem mamma man eftir: gaglinn (naflinn), gókk (mjólk), gók (bók). Þegar ég segi hinu megin þá segi ég "himini" 

 23.mánaða (21.01´08) mamma segir við mig "nú þurfum við aldeilis að spýta í lófana" þegar við vorum að verða seinar til læknisins þá heyrist í mér "Alma Gittin skíta lófana !"

 23.mánaða (08.01´08) "Alma Gittin máta núna" sagði ég við mömmu mína þegar hún var í mátunarklefanum að máta kjól fyrir árshátíðina. Mamma var rétt komin úr kjólnum þegar ég tók hann og smeigði honum yfir hausinn og fannst ég voða fín.

  22.mánaða (20.des´07) nokkur skemmtileg orð:

"gokkili gikkili" (skoppa og skrítla), "óladeinar" (jólasveinar), "yakk" segi ég iðulega ef mér finnst eitthvað skítugt - ég greip þetta orð um leið og pabbi lét það út úr sér , "ilepool" (Liverpool)hrópa ég upp ég sé fótboltamenn í sjónvarpinu - pabbi frekar glaður .

 21.mánaða (24.nóv´07) sagði ég við mömmu mína "komdu med etta" þegar mig langaði í eitthvað sem hún var með.

  22. mánaða sá ég flugvél í sjónvarpinu og sagði við pabba minn "flugvel, Alma ditti og pabbi flugvel" já sagði pabbi við vorum í flugvél, þá hleyp ég fram næ í skóna mína og húfu og segi aftur "Alma dittin pabbi flugvel" og toga hann að hurðinni, frekar hissa að hann vilji ekki verða við þessari ósk minni !

 21.mánaða byrjaði ég að segja "obbodí" þegar eitthvað dettur í gólfið eða fer ekki eins og það á að fara.