

Mamma mín er alltaf að spá í því hvað hún á að gefa mér að borða og tók saman uppskriftir sem hægt er að nota fyrir litla munna og jafnvel stóra líka.
Allt að 7 mánaða
HrísgrjónagrauturHýðisgrjón þvegin vel. Sjóðið ½ dl af hýðisgrjónum með 3 dl af vatni í 30-45 mín – vel mjúk. Stappa þá grjónunum við soðið – eftir aldri barnsins. Gott að setja sólblómaolíu. Einnig hægt að nota mjólk í stað vatns.
Hafragrautur2 msk. Haframjöl1 dl nýmjólk, stoðmjólk,þurrmjólk½ dl. vatnBlanda mjölinu í kaldan vökvann. Hrærið og sjóðið við vægan hita í 5-10 mín. Gott að bæta 1 msk af eplamauki eða rifnu fersku epli í grautinn.
Kartöflustappa (grænmetisstappa)1 lítil kartafla, soðin með hýði1 tsk olíaBlandið saman soðvatni, kartöflu og olíu. Maukið með gaffli eða töfrasprota. Sama má gera með t.d gulrætur, blómkál, brokkolí, sætar kartöflur, grasker ofl.
7 mánaða og eldri
Rúgbrauðsgrautur1 rúgbrauðsneið án skorpu1 ½ msk. Hrísmjöl eða maísmjöl1 dl nýmjólk eða stoðmjólk1 ½ dl. vatnMyljið brauðsneiðina og leggið í bleyti í vökvann. Hitið með hrísmjölinu og hrærið vel. Grauturinn þarf ekki að sjóða lengi. Bragðbæta má með sólberjasafa eða eplamauki.
Hrísgrjón með kjötiSjóða saman ½ - 1 dl af hrísgrjónum, 50-100 gr af kjöti eða innmat og um 3 dl af vatni. Sjóða vel svo hrísgrjónin verði mjúk og sjúgi í sig mest af vatninu. Stappið saman við soðið. Hægt að nota kartöflur í stað hrísgrjóna. (Lambalifur, lambanýru, magur lambakjöt, magur nautakjöt, svínakjöt. Einnig gott að nota maísgrjón í stað hrísgrjóna.
Lambakjötsréttur30 g lambakjöt, t.d framhryggsbiti1 lítil kartafla½ gulrót20 gr gulrófa1 dl vatnSteinselja eða dill (ekki nauðsynlegt)Þennan rétt er upplagt að útbúa í meira magni og frysta í litlum boxum. Sjóðið kjötið í 30 mín. Lengur ef það er ekki með beini eða ef um stóran skammt er að ræða. Þvoið, afhýðið og brytjið grænmetið og sjóðið með kjötinu síðustu 15 mín. þar til allt er orðið meyrt. Maukið allt saman í matvinnsluvél eða með töfrasprota. Þynnið maukið með soðvatninu eftir þörfum, kryddið með dilli og steinselju eftir smekk. Stór uppskrift 300 g beinlaust lambakjöt eða 500 g kjöt með beini, 8 kartöflur, 4 gulrætur, 1 rófa, vatn, steinselja eða dill(ekki nauðsynlegt).
Hrásalat
AvocadoStappa og hægt að bæta öðru grænmeti saman við t.d fínrifinni papriku, gúrku eða epli.
Maísgrautur Fyrst notað maísmjöl og síðan maísgrjón. Sjóða um ½ dl af maísmjöli eða grjónum í um 2-2 ½ dl af vatni. Láta suðuna koma upp og hræra í þar til grauturinn þykknar svolítið. Taka af plötunni og láta kólna í 10-15 mín.
Þurrkaðir ávextirAth.hvort ávextirnir hafi verið meðhöndlaðir með einhverjum brennisteinsefnum, lesa á pakkningar. Rúsínur og döðlur þarf ekki að bleyta upp. Apríkósur og sveskjur þarf oftast að leggja í bleyti í nokkra klst. í kalt vatn svo þeir verði hæfilega mjúkir. Hægt að geyma í glerkrukku inni í ísskáp. Gott getur verið að hakka svona ávexti saman í mauk og gera t.d álegg á brauð eða nota út á súrmjólk eða jógúrt. Einnig að gera ávaxtagrauta með því að þynna maukið út t.d með ávaxtasafa og setja mjólk eða rjóma útá eða hræra í sýrðan rjóma.
MjólkurdrykkirÞað er hægt að blanda ýmsu góðgæti saman við mjólk og búa til mjókurdrykki. T.d banana, epli, perur og ber t.d bláber. Einnig þurrkaða ávexti – betra að bleyta þá upp fyrst. Ávextir eru þá maukaðir og þeyttir saman við mjólkina eða setja saman í kvörn.
8 mánaða og eldri
Hrísgrjón með grænmeti eða kjötiSjóða um ½ - 1 dl af hrísgrjónum í um 1 ½ - 2 dl af vatni. Láta grjónin sjóða á lágum hita eftir að suða kemur upp svo vatnið gufi ekki ört upp. Þegar grjónin hafa soði í um 25 mín. Skerið t.d blómkál, brokkolí eða rósakál í litla bita og bætið útí og/eða kjötbitum. Sjóða þar til vel soðið. Einnig hægt að nota grænar baunir á þennan hátt (ath. Þær geta valdið ofnæmi). Ef meira vatn er notað er hægt að gera fína súpu.
Lambakjöt með maískorni og hrísgrjónum30 g lambakjöt2 msk soðin hrísgrjón2 msk maískorn, fryst eða ferskVatnSjóðið kjötið þar til meyrt. Látið maískornin þiðna og sjóðið í 5 mín. Maukið með soðnum hrísgrjónum og bætið við soði eftir þörfum.
Lambakjöt með blómkáli og kartöflum30 g lambakjöt1 lítil kartafla30 g blómkálVatnSjóðið kjötið. Afhýðið kartöfluna og skerið í bita og hreinsið blómkálið. Sjóðið með kjötinu þar til allt er orðið meyrt. Maukið með hluta soðvatnsins.
Kjúklingur með maískorni40 g kjúklingakjöt3 msk soðin hrísgrjón1 msk maískorn, frosin eða fersk½ gulrót VatnSkerið kjötið af kjúklingi sem hefur verið gegnum steiktur í ofni eða soðinn. Brytjið gulrótina og sjóðið með maískorninu. Maukið með soðnum hrísgrjónum og beinlausum kjúklingnum. Sé kjúklingur steiktur í ofni, er upplagt að taka frá smáflís handa ungbarninu.
Fiskur með kartöflum og grænmeti30 g ýsa eða annar fiskur½ gulrót, grein af brokkólí eða blómkáliSoðin kartaflaSmjör eða olíaSjóðið grænmetið í litlu vatni í 10 mín. Bætið fiskinum út í pottinn og sjóðið saman í 5 mín. Stappið fiskinn og grænmetið í soðinu með kartöflu og svolitlu smjöri, olíu eða sósu. Önnur aðferð; Smyrjið álpappír með svolitlu smjöri eða smjörlíki og vefjið um fiskinn og grænmmetið. Setjið álböggulinn í sjóðandi vatn og sjóðið í 10-15 mín. Gætið þess að soðið glatist ekki úr bögglinum og stappið soðinu með grænmetinu og soðinni kartöflu.
Hakkréttur1 tómatur, nýr eða úr dós2 msk. Rifin gulrót1-2 msk. Vatn20-30 g nautahakkBasilikum eða óreganó1 tsk olía1 soðin kartafla eða 60 g soðið pastaFjarlægið hýðið af tómatnum með því að setja hann í soðið vatn. Blandið saman í pott öllu nema olíu og kryddi og sjóðið í 5 mín. Bætið svo olíu og kryddi útií. Stappið kartöfluna eða skerið pastað í litla bita og blandið saman.
Sósa2 tsk. Hveiti1 dl grænmetis- eða kjötsoð eða mjólk1 tsk. Olía eða smjörHrærið saman hveiti og vökva í potti. Hitið að suðu og hrærið vel. Bætið fitunni útí. Barnið getur yfirleitt fengið sömu sósu og aðrir á heimilinu ef sósan er tekin frá fyrir það áður en hún er söltuð. Ekki nota pakkasósur.
GrænmetissúpurSjóða grænmeti í vatni þar til hæfilega mjúkt. Stappa þá saman við soðið eða setja í kvörn. Einnig hægt að setja mjólk útí.
Fiskur og hrognMagur fiskur eins og t.d þorskur eða ýsa henta vel. Bakið fiskinn í ofni eða sjóðið í litlu vatni. Notið safann og soðið og stappið saman við kartöflur eða hrísgrjón. Á sama hátt er hægt að matreiða hrogn. Þau er einnig hægt að nota sem álegg.
Eggjarauðukaka
Rjómaostur úr sýrðum rjómaÍ rjómaost er yfirleitt notað salt það er þá hægt að búa til rjómaost handa smábörnum. Allt sem þarf að gera er að hella sýrðum rjóma úr dós í pappírskaffipoka og láta vökvann renna úr rjómanum í um ½ sólahring. Eftir situr þéttur ostamassi sem geymist nokkra daga í kæliskáp. Hægt að nota á brauð eða í mat barnsins.
9 mánaða og eldri
Soðnar baunir með tómötumSaxa tómata sama við soðnar heitar baunir og hægt að bæta smátt skorni kjöti saman við.
10 mánaða og eldri
MúslíBlanda saman korni, þurrkuðum ávöxtum, fræjum ofl. Gott að saxa svo nýja ávexti úti. Nota t.d hveiti-, rúgflögur, hveitikím og –klíð, haframjöl eða einhverjar aðrar kornteg. Saxas hnetur og fræ og ávextina.
Fiskur í eggi1 lítið egg1dl mjólkSoðinn fiskbiti (25 g)Örlítið smjör eða olíaSetjið soðinn fiskbitann í smurt eldfast fat. Hrærið eggið með gaffli og blandið mjólkinni saman við. Hellið eggjamjólkinni yfir fiskinn og bakið í ofni við 175 gráður í 10 mín. eða þar til eggið hefur stífnað.
KotasælaHægt að gefa eintóma eða blandaða með ávöxtum eða grænmeti. Hægt að gefa með skeið – erfitt ofan á brauð.11 mánaða og eldri
Grænmeti Leyfa börnunum að naga í hrátt grænmeti.
Pasta og makkarónurGott að setja saman við kjöt eins og hrísgrjón og kartöflur. Ath að það er til heilhveitipasta. Soðin hýðishrísgrjónNú þarf ekki að mauksjóða grjónin. Hæfilegt er að gera ráð fyrir 1 dl. af hrísgrjónum á mann (í fjölskyldunni). Sjóðið hrísgrjónin í rétt rúmlega jafn mörgum dl af vatni og grjónin eru, td. 4 dl af grjónum í 4 ½ dl. af vatni. Skola grjónin vel í í sigti og vatni, setja þau í pott með vatninu. Láta suðu koma upp, lækka hitann og láta malla í 20 mín. Vatnið ætti að gufa upp á þeim tíma, slökkva undir pottinum og láta grjónin jafna sig í 5-10 mín. (ekki á plötunni).
Álegg á brauð;Grænmeti, Kotasæla, Rjómaostur, Fiskur og kjöt, Hrísgrjón (t.d blandað m.kjöti og sósu), Egg, Hunang, Hunangssmjör, Kæfa
Hungangssmjör150 gr.mjúkt ósaltað smjör1 dl hunangÞeyta smjörið svolítið og þeyta svo hunangið vandlega saman við. Þetta smjör er best mjúkt. Hægt að gera tvöfaldan skammt og frysta í litlum ílátum.Hægt að bæta við sítrónu eða appelsínusafa. Þá er safanum hellt í mjórri bunu og þeytt um leið.