



!!!!!!!!!!!!!
Nýjar myndir Feb og mars 2010
!!!!!!!!!!!!!
Munið endilega eftir að kvitta í gestabókina
Við heitum Alma Kristín og Aníta Ósk og erum yndislegar systur sem mamma og pabbi sjá ekki sólina fyrir. Alma Kristín kom í heiminn 30. janúar 2006 kl. 02:11 og Aníta Ósk kom í heiminn 07. júlí 2009 kl. 18:29
Hér ætlum við að setja inn myndir og skrifa í dagbókina hvað er að gerast hjá okkur. Endilega kvittið í gestabókina fyrir heimsóknina, okkur finnst svo gaman að sjá hverjir eru að kíkja á okkur 

Alma Kristín yndisfríð,
svo langþráð komst í heiminn.
Alla tíð svo ljúf og blíð,
angurvær og dreymin.
Helga frænka mín orti þetta til Ölmu Kristínar.
Þessi texti er lag með Sálinni, Undir þínum áhrifum, mamma hugsar alltaf um stelpurnar sínar þegar hún heyrir þetta lag, þetta er því lagið okkar mömmu 
Ég er ofurseldur þér og uni vel.
Það er annað finnst mér allt mitt hugarþel.
Sem ég horfi á þig sofa finn ég að
það er brotið nú í lífi mínu blað.
Ég hef beðið nokkuð lengi eftir þér,
svo ég segi það hreint alveg eins og er.
Og ég hugsa alla daga til þín heitt.
Alveg ótrúlegt hve allt er orðið breytt.
Það er varla nokkur heppnari en ég.
Þessi tilfinning er ævintýraleg.
Ég er undir þínum áhrifum í dag.
og verð áfram, enginn vafi er um það.
Þú ert náttúrunnar undurfagra smíð,
verður hörpu minnar strengur alla tíð.
Það er ekki nokkur sem að brosir eins og þú.
Og ég lofa gjafir lífsins fyrr og nú.
Ég er undir þínum áhrifum í dag.
og verð áfram, enginn vafi er um það.
Þú hefur löngu sigrað mig.
Takmarkalaust ég trúi á þig.
Mitt allt er þitt og verður
ókomin ár.
Ég mun elska þig allt fram á hinstu stund.
Uns ég held um síð á feðra minna fund.
En að líkum hef ég tímann fyrir mér
og ég hlakka til að eyða honum með þér.
Það er varla nokkur heppnari en ég.
Þessi tilfinning er ævintýraleg.
Ég er undir þínum áhrifum í dag.
og verð áfram, enginn vafi er um það.
Ég er undir þínum áhrifum í dag.
og verð alltaf, enginn vafi er um það.
----------------------------------


Sem kemur manni í heiminn með mikilli fyrirhöfn fæðir mann og klæðir og veitir alla þá hlýju og ástúð sem lítið barn þarf á að halda.
Mamma er alltaf til staðar með útrétta hjálparhönd þegar á þarf að halda.
Þerrar tárin þegar það er leiðinlegt og gleðst með manni þegar það er gaman að vera til.
Mamma er besta kona í heimi.
Kveðja Alma Kristín og Aníta Ósk
Sem verður svo montinn þegar maður fæðist að það mætti halda það hafi ekki fæðst barn áður en það tekur hann bara nokkra daga að komast niður á jörðina aftur.
Honum finnst skrítið að lítið barn skuli ekki getað sofið alla nóttina og kúkað í klósett eins og annað fólk.
Samt veit hann allt !!
Svo þegar maður verður aðeins eldri og þá er hægt að fara að leika við mann og kenna manni ýmislegt þá finnst honum rosa gaman.
Pabbi er alltaf til staðar með styrka hönd þegar á þarf að halda.
Pabbi er besti maður í heimi.
