Samúel Óli og Ragnar Ingi
 

Gestabók

Hulda Karen

hæhæ krúttarfjölskylda. Ég ákvað að fara að skoða allar þær myndir sem ég ætti eftir en tölvan eða síðan vill ekki leyfa mér það - get skoðað eina mynd í einu og svo þegar ég klikka á næstu eða myndarsýningu þá vill hún lykilorðið aftur .... er ekki að nenna þessu þannig að ég verð að kíkja við síðar, gaman samt að sjá þessar sem ég nennti að skoða og rosalega stækkar Sammi mikið..... fer að líða að fermingu hjá drengnum
hehe
knús og kossar þangað til næst Hulda Karen

Skrifaš žann 10. June 2007 21:37.

Lilja Ýr

Hæ,hæ Sammi okkar og fjölskylda!
Æðislega skemmtilegar myndirnar þínar eins og alltaf og humm, mamma þín er obboðslega dugleg að setja myndir inn jafnóðum.....sumir ættu að taka sér það til fyrirmyndar!
Annars var rosa gaman að fá ykkur í heimsókn um daginn (eins og sést á myndunum þínum!), verðum að vera duglegri með svona hittinga! Ætli röðin sé ekki komin að okkur að fara kíkja í sveitina....
Sjáumst alla vega á þriðjudaginn í sundinu,
kveðja Lilja Ýr og Halldóra Líf

Skrifaš žann 9. June 2007 00:13.

Anna Sig. og Elvar

Sæll og blessaður Sammi, við vildum bara kvitta fyrir innlitið og þakka fyrir okkur síðustu tvær heimsóknir. Voða notalegt að koma í heimsókn til þín og mömmu og tíminn líður alltaf hratt en við hittumst örugglega oftar á komandi misseri.. :)
Hafðu það gott stóri duglegi strákur!
Kær kveðja, þinn vinur Elvar og Anna mamma hans

Skrifaš žann 6. June 2007 23:32.

Ásdís og Tryggvi Hrafn

Hlökkum til að sjá ykkur um næstu helgi.
Kveðja úr blíðunni

Skrifaš žann 28. May 2007 08:26.

Ingibjörg Barða

Rosalega er drengurinn búinn að stækka! Ég verð að fara að koma í heimsókn og fá að sjá hann meðan hann er ennþá lítill dúlli,ýti bráðum á Óla og mömmu í smá bíltúr útí Voga :)
Kyssið og knúsið prinsinn extra lengi frá mér :)

Skrifaš žann 28. May 2007 01:41.

Herdís

Hæ hæ
Svakalega ertu nú orðin stór. Mamma þín bara orðin svaka skvísa með þetta flotta hár. Sjáumst vonandi næstu helgi á röltinu í Grindó.

kveðja Herdís, Jón Fannar og Lára

Skrifaš žann 26. May 2007 14:19.

Lilja Ýr

Hæ,hæ sæti snúður!
Nú er sko afi þinn heppinn að eiga svona fínan og góðan strák (nafna) því án efa hjálpar það honum að ná sér upp úr veikindunum.
Hlökkum til að hitta þig og þína í sundinu eftir helgina.
Baráttukveðjur til fjölskyldunnar frá okkur
Lilja Ýr og Halldóra Líf

Skrifaš žann 25. May 2007 00:51.

Erla frænka

hæhæ krúsilísu loksins setur mamma þín myndir inn á síðuna þína þú verður að fara að segja henni að vera duglegi :)
og skilaðu til mömu þinnar að nýja klippingin og litunin fari henni mjög vel:)
og ég skila samúðar kveðju til pabba þíns með Liverpool leikin:(

en allana bið bara kærlega að heylsa öllu kveðja frá okkur öllum á Hellissandi

Skrifaš žann 24. May 2007 12:52.

Siggi

Sæll og blessaður Sammi..
Takk fyrir síðast. Kosningavakan var þrælskemmtileg og þú og Aron Júlían fóruð á kostum. Reyndu svo að ala foreldrana vel upp. Ekki veitir nú af smá aga á hann pabba þinn:)

Bestu kveðjur úr þar þar næstu götu aðeins til vinstri.......

Skrifaš žann 22. May 2007 20:48.

Lilja Ýr

Halló sæti snúður og tásunartari ;)
Voða fínar myndirnar þínar og svo er hún mamma þín obboðslega dugleg að færa fréttir og skemmtilegheit inn í vefdagbókina þína :)
Það var nú bara yndislegt að sjá þig sjúga stóru tánna þína í sundinu um daginn :) Svo má ekki gleyma hvað þú ert duglegur kafari og líka alltaf svo ofsa góður við hana Halldóru Líf, alltaf að knúsa hana ;)
Hafðu það gott,
kveðja Lilja Ýr og Halldóra Líf

Skrifaš žann 17. May 2007 00:16.

Anna Guðrún (úr Grindó)

hæ hæ Sammi - maður er bara farin að kalla þig gælunafninu þótt maður hafi aldrei séð þig. Gaman að geta fylgst með þér og flottu foreldrum þínum á netinu. Þú ert sko orðinn stór og flottur strákur, sem þú hefur náttla alltaf verið. Jááá, Sammi afi þinn hefur verið að kaupa illgresiseitrið kannski þegar ég sá hann um daginn við Garðheima, hann var bara svo fljótur að labba inn og ég að fara út í bíl að ég náði ekki að heilsa, annars hefði ég sko farið á spjall við afa þinn enda mjöööööööög langt síðan ég sá hann og ömmu þína í Grindó. Gaman væri nú að geta séð þig einhvern daginn og að sjálfsögðu mömmu og pabba líka :-)

Skrifaš žann 16. May 2007 22:58.

Sunna frænka á Drangsnesi

Hæ hæ. Bara að kvitta fyrir innlitið, Gaman að sjá hvað þið eruð dugleg að setja inná síðuna. Og Sammi alltaf jafn sætur og dafnar vel. Knús af Drangsnesinu

Skrifaš žann 16. May 2007 11:29.

Sylvan Dagur og co.

Við vildum bara kasta smá kveðju á ykkur og kvitta fyrir innlitið :D

Skrifaš žann 13. May 2007 17:14.

Elín Guðmanns

Hæ hæ, bara að kvitta fyrir komuna. Langt síðan við kíktum hér inn og VÁ hvað þú ert búinn að stækka mikið - Þú er sko algjör sjarmör.
kveðja frá Ox,
Elín

Skrifaš žann 13. May 2007 14:43.

Frænka og frændi á Egilsstöðum

Jæja það er kominn maí hérna hjá okkur fyrir austan :) Við bíðum spennt eftir nýjum myndum. Við Tryggvi Hrafn komum í Grindí eftir tvær vikur eða sjómannadagshelgina og þá sjáum við þig nú örugglega.
Biðjum að heilsa í bili.
Ásdís og Tryggvi Hrafn

Skrifaš žann 13. May 2007 10:39.

Didda frænka á Akureyri

hæ litli frændi,
þú ert alveg gullfallegur drengur. Stelpurnar eiga eftir að falla fyrir þér hver af annarri með því að líta í fallegu augun þín :-)
Var í heimsókn hjá Erlu ömmu þinni og Ragga afa í gærkvöldi.
Það leynir sér ekki hvað þau eru mikið stolt af þér, alveg að springa.....;-). Ég spurði ömmu þína hvort hún ætti ekki nýlega mynd af þér og þá sýndi hún mér myndirnar af þér sem eru á síðunni þinni. Hún gaf mér lykilorðið þitt því mig langar að fylgjast með hvernig þér vegnar.
Vonandi er það í lagi.
Bið að heilsa mömmu og pabba, þau eiga náttúrulega fallegasta barnið í heiminum.
Kveðja,
Didda frænka.

Skrifaš žann 8. May 2007 16:01.

Harpa, Ingvar, Tristan og Snúlla Christiansen

Hæ hæ stóri gæi, á myndunum mætti ætla að þú fengir ekkert í svanginn hjá mömmu þinni,þ.e miðað við hvað þú ert óður í hnefann þinn enn ætli hún gefi þér ekki nóg, það hefði ég haldið. Verðum að fara að hittast.
Kveðja frá Bifröst

Skrifaš žann 3. May 2007 20:49.

Kristín frænka

Hæ, hæ bara að kvitta fyrir innlit, smá pása í gangi í ritgerðinni.

Skrifaš žann 29. April 2007 21:42.

Sigga og Hildur Freyja

halló sæti strákur
mikið rosalega ertu orðin stór og duglegur. bið að heilsa múttu þinni og segðu henni að við verðum að fara að hittast í einn göngutúr eða svo
kveðja
Sigga og Hildur Freyja

Skrifaš žann 27. April 2007 12:34.

Hildur og Brynjar Freyr

Elskulegu þið. Kíkjum reglulega á ykkur. Mikið dafnar hann Sammi vel! Bestu kveðjur frá Hólmavík, Hildur og Brynjar Freyr :o)

Skrifaš žann 25. April 2007 21:43.

Lilja ýr

Hæ,hæ Sammi!
Rosa varstu duglegur að fara í kaf í sundinu í gær, hafðir bara ekkert fyrir þessu, samt nýbúið að vera sprauta þig og allt saman :)
Rosa fínar myndirnar af þér með frændfólkinu þínu á Ísafirði. Vona að flugferðin til Akureyrar hafi gengið vel og þið mæðginin hafið það gott í höfuðstað Norðurlands, megi þið eiga betri reynslu þaðan en við, hehe ;)
Kveðja úr Firðinum
Lilja Ýr og Halldóra Líf

Skrifaš žann 25. April 2007 13:34.

Sólborg

Fjúddafjú hvað hann er orðinn sætur hann Sammi :) nú þarf ég sko að fara að kíkja í heimsókn til ykkar! og ég verð að hrósa þér fyrir að þessi síða er eitthvað svo mikil snilld, ég hlæ yfir því sem þú skrifar undir myndirnar og skemmti mér svo vel :) langaði bara að láta vita afþví, hehe!

Skrifaš žann 23. April 2007 11:28.

Lilja Ýr

Hæ,hæ sæti!
Gleðilegt sumar duglegi velti-strákur :) Hlökkum til að hitta þig í sundinu á þriðjudaginn, þá verður sko buslað,hehe:)
Kveðja Lilja Ýr og Halldóra Líf

Skrifaš žann 21. April 2007 01:07.

Eygló, Flóvent og Sigurjón

<img src="http://i33.photobucket.com/albums/d94/eadhikari/glsumar.gif">

Við erum 2x búin að mæta á mömmumorgna í Grindavík og hlakkað til að hitta ykkur en þá hafið þið bara verið vant við látin og ekki mætt:(

Við biðjum bara að heilsa
kv.
Eygló og co.

Skrifaš žann 20. April 2007 12:20.

Hulda Orra

Blessaður Sammi
Duglegur strákur að velta þér, haltu áfram að æfa þig.
kv. Hulda

Skrifaš žann 17. April 2007 01:42.

Ásdís og Tryggvi Hrafn

Takk fyrir síðast. Svakalega er nú flott myndin af okkur frændum.
Kveðja að austan

Skrifaš žann 12. April 2007 15:32.

MJS

....agalega sætur eins og alltaf krúttukarlinn minn :)

Skrifaš žann 10. April 2007 16:25.

Anna Sig.

Skemmtilegar nýjustu myndirnar úr bústaðnum, Sammi er aljört krútt.. kannski að við getum reynt að hittast með gaurana okkar á næstunni!
kv. Anna Sig og Elvar

Skrifaš žann 9. April 2007 20:03.

Hulda og Sylvan Dagur

Gleðilega páska!!!

Skrifaš žann 8. April 2007 14:36.

Sigga og Hildur Freyja

hæ hæ sæti strákur
Takk fyrir síðast, ofsalega gaman að sjá þig í sveitinni
Gleðilega páska
Kveðja
Sigga og Hildur Freyja

Skrifaš žann 8. April 2007 14:16.

1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 11 12 13 14 15 16