

Hæ Sammi krútt og foreldrar! Bara að kvitta fyrir mig.Gaman að fá að fylgjast með Samma stækka og nú eru nýjar myndir frá janúar, alltaf gaman að sjá nýjar myndir:) til lukku með nýja steisjónbílinn! kv.Hanna frænka.
Halló Sammalingur,
leiðinlegt að hitta þig ekki á Sogaveginum í dag... vonumst til að knús þig þeim mun meira næst :) Knús og kveðjur
Hellú sæti strákur, mikið ertu myndalegur og flottur. gaman að sjá hvað þú braggast vel og hvað þú ert búin að fá flottann vagn. Nú verðum við fjólskyldan að koma að kíkja á þig, það gengur ekki að við séum ekki búin að fá að hnúsa þig.
En þangað til, bestur kveðjur frá Bifröst
já þú ert ægilega mikið krútt. Gaman að skoða nýju myndirnar af þér:)
Hæ,hæ Sammi!
Bara að láta vita að við séum að fylgjast með ;)
Kveðja Lilja Ýr og Litla Prinsessan
Gleðilegt árið, bíð spennt eftir janúar myndum.
Hæ hæ Bara að kvitta fyrir innlitið og segja gleðilegt ár.
Kveðja af Drangsnesinu
ohhh hvað þú ert sætur Sammi minn!! Hlakka endalaust til að sjá þig :) Bið að heilsa mömmu og pabba
Hæ hæ:) má til með að kvitta fyrir heimsókn minni á síðuna þína. Þarf nú að fara að gera mér ferð í Vogana að kíkja á ykkur! Þangað til næst, kv. Þóra
Kæri litli Sammi Velkominn í heiminn kveðja Kalla
hæ sæti frændi þú hefur bara stækkað helling síðan ég sá þig síðast já og Gleðilega hátíð litla fjölskylda þótt hún sé eilla búinn er svo sein í öllu hehe.
en biddu mömmu þína eða pabba að leyfa mér að fylgjast þér hvenar þú verður skírður langar að koma og sjá ykkur :)
kveðja frá Akranesi Erla Laufey, Elli og Nítró (voffin okkar)
<img src="http://i33.photobucket.com/albums/d94/eadhikari/ramt1.jpg">
Hæ,hæ Sammi og fjölskylda!
Við óskum ykkur gleðilegs nýs árs og takk fyrir þetta gamla sem er senn að verða búið, sérstakar þakkir fyrir dagana á spítalanum, ekki amalegt að kynnast svona flottum strák strax á fæðingardeildinni ;)
Ótrúlega ertu orðin stór og flottur, þú virkar bara fullorðinn á myndinni þar sem þú situr í kerrunni þinni :) Og verð að minnast á hvað myndin af mömmu þinni með nálina í enninu er mögnuð, hehe (mamma mín er sammála, þetta þrælvirkar!).
Sjáumst á nýja árinu,
kveðja Litla Prinsessan í Hafnarfirði og Lilja Ýr mamma
Gleðileg jól öllsömul, pilturinn stækkar og stækkar, dafnar greinilega vel. Bestu kveðjur frá öllum í Eskihlíðinni.
Gleðileg jól sæta fjölskylda :)
Gaman að sjá hvað Sammi dafnar vel, hann er algjört æði, ég hlakka alltaf miklu meira til að fá minn í fangið eftir að ég skoða myndirnar af honum!
Jólakveðja, Anna Sig.
ps. það hlýtur að fara að birtast bumbumynd hjá mér, enda komin sléttar 30 vikur í dag!
hæhæ,ég kíki reglulega á litla kút,held hann sé barasta fallegasta barn sem ég hef séð :) knúsið hann vel og lengi frá mér :)
kæra fjölskylda, mikið rosaleg er hann Sammi fljótur að stækka. Gullfallegur drengur. Hafið það gott yfir hátíðarnar og gleðileg jól
kv Sigga og Hildur Freyja
Hæ hæ Sammi - ég óska þér og mömmu og pabba og Samma afa og Bubbu ömmu og Maríu móðursystur þinni gleðilegra jóla og farsældar í framtíðinni - þú ert sko rosa flottur strákur :-)
Innilegar hamingjuóskir með Samma litla.
Jólakveðjur,
Helga Helgadóttir.
hlakka til að sjá þig á aðfangadag elsku krúttið mitt :) Risa knús og kveðja
Sæll og blessaður litli stúfur og velkomin í heiminn :o) Þú ert ekkert smááááá mikið krútt. Kveðja Valgerður.
Elsku litla sæta dúlla, frænka sendir þér stórt, stórt jólaknús. Verð að fara að koma suður og sjá þig. Kærar kveðjur frá Ísafirði.
Gaman að skoða myndirnar, hann er svo sætur.!! Hafið það gott elskurnar, og gleðileg jól.
Fallegar myndir--enda fallegt fólk! Kærar kveðjur K&Í
15.12.2006 kl 18.30
Hæ hæ. Flottar myndir. 'Eg er alltaf að skoða síðuna ykkar. Hlakka til að hitta ykkur. Kveðja Rósa
...María frænka er nú að verða ansi óþolinmóð að fá að sjá fleiri myndir, fyrst ég næ ekkert að knúsa krúttið :)
knús og kveðja
sæl og til hamingju með Samma litla (stóra) hann er ekkert smákríli heldur stór strákur.
þær eru flottar myndirnar af ykkur öllum.
kveðja SJM
hæ hæ mikið rosalega ertu mikið krútt. Gaman að skoða nýju myndirnar... hlakka til að sjá fleiri
knús Hulda Karen
Alltaf mannast pilturinn meira og meira. Flottar myndir, sérstaklega þessi síðasta í bláa gallanum. Hann virðist hafa stækkað svo mikið síðan ég sá hann síðast.
Gott að hann skuli sofa svona vel.
Kveðja
Bergþóra
Flottar nýju myndirnar, svo er bara að taka myndir í matarboðinu í kvöld og setja inn fyrir frænku af því að hún gat ekki verið með ykkur í kvöld.
Kveðja Ásdís