Ég heiti Regína Hansen Guðbjörnsdóttir
og er dagforeldri í Mosfellsbæ
er staðsett að Víðiteigi 24
s: 587-1131 og 699-2776,
Hætti að starfa sem dagforeldri
30. júní 2015
Hlýja – Traust – Vellíðan
Hugmyndafræðin:
Líkams- og hreyfiþroski, tilfiningaþroska, vitsmunaþroski og félagsþroski.
Efla málvitund og málskilning með: Lestur bóka , samræður , söngur, vísur og þulur sem verða tvinnaðar inní leiki og skapandi starf með börnunum, notað verður tákn með tali í daglegum athöfnum.
Áherslur og markmið:
Að barnið læri að umgangast önnur börn í leik og læri í gegnum leikinn.
Efla færni í sjálfshjálp td. Mata sig sjálft og klæða sig í og úr.
Efla málvitund barnsins með því að auka orðaforða og skilning með söng, lestur bóka, vísur, þulur og í almennum leik.
Styrkja og efla hreyfiþroska, grófhreyfingar með gönguferðum, leikjum úti ( róla, renna, klifra, hlaupa, moka í fötu) , inni leikjum (dansa, hreyfileikjum ), fínhreyfingar með að lita, púsla, mála, pinna og þræða perlur.
Miðað við aldur barnsins hverju sinni.
Aðalþemað verður barnið sjálft og fjölskyldan.