

En gaman að fá að fylgjast með ykkur fallegu bræður á flottu síðunni ykkar :) knúsiði hana mömmu ykkar frá mér og segið henni að fara að drífa sig í heimsókn hehe ;) þið eruð auðvitað velkomnir líka!!
flottar myndir :-)
Flottar myndirnar af fjölskyldunni, þið eruð sannarlega glæsileg fjölskylda.
Knús á ykkur.
En hvað þið eruð falleg fjölskylda. Við eigum von á einum gaur í nóvember, ættum kannski að fá námskeið hjá þér Inga, við kunnum ekkert á svona stráka :)
Rosalega ertu rík Inga Dóra mín :) Rosa flottir strákar sem þú átt.
Myndarlegir allir prinsarnir þínir og skemmtilegar myndir.
Inga mín, er myndavélin biluð??? Hvar eru myndirnar......
hæ strákar
flottar myndirnar af ykkur,vá hvað þið eruð orðnir stórir:) það er líka langt síðan ég sá ykkur.
bið að heilsa pabba og Ingu
kveðja Anton stóri bró:)
Hæ sætu bræður........
Vildi bara kvitta fyrir innlitið, þið eruð nú meiri krúttin!!!!! Mér finnst ykkur nú sárvanta eina litla skvísu í hópinn ;-)
Kv.Sigga Dísa og co ;-)
Á ekkert að fara að skella inn myndum??? Bíð spennt
Amma kvittar fyrir innlitið, bara kíkja hvort það væru komnar nýjar myndir. Knús á alla. Amma.
Til hamingju með fallega nafnið þitt Heiðar og með hann pabba þinn, afmælisbarn dagsins, knús á ykkur Pétur Hlíðar, mömmu og pabba. Kv. Ása amma og Pétur afi.
óska ykkur til hamingju með gæjann nr 2. Voða sætir frændur sem ég á.
ooohh.. æðislegt að skoða nýju myndirnar :) bið voða vel að heilsa knús knús
Halló sætu strákar:) Þið eruð sko bara flottastir.. Elsku Inga Dóra og fjölskylda innilega til hamingju með litla prinsinn.. Vonandi sjáumst við sem fyrst.. kveðja María, Jón Ari og Hildur Sif
Bíð spennt eftir fleirum myndum :) ég fer svo að senda pakka til ykkar.. á eftir að bæta smá við,, svo sendi ég hann ;) læt vita þegar pakkinn fer í póst. kær kveðja Guðrún & co í DK
Elsku Inga og fjölskylda innilegar hamingjuóskir með snáðann.
Hann er rosa flottur.
Kv. SG
Sæl kæra fjölskylda. Til hamingju með soninn/bróðurinn, hann er svaka sætur! Get varla skrifað fyrir klukknahljómi:) Hlakka til að koma í heimsókn og kíkja á ykkur, reyni að láta verða að því fyrr en síðar. Kv. frá Selfossi, Ásta Rún og co.
Amma alveg að rifna af monti yfir strákahópnum sínum, til hamingju öll, þið eruð flott. Kv. Amma, mamma og tengdó +afi.
Flottar nýju myndirnar :)
Elsku Pétur Hlíðar, til hamingju með litla bróður þinn, nú ert þú orðinn stóri bróðir. Sjáumst fljótlega. Þín amma.
Hæ elsku frændi !
Til hamnigju með litla bróður þinn. Ég get ekki beðið eftir að hitta ykkur á miðvikudaginn ;)
Halló sæta fjölskylda :)
Hvernig væri nú Pétur Hlíðar að þú uppfærðir nú vefdagbókina þina um leið og myndirnar?? :) Sýndu mömmu þinni og pabba hvað þú getur.... þú ert svo duglegur að fikta í öllu og ég er sko viss um að þú getur þetta með litlu tá(nánara tiltekið á hægri fæti) :) heheh..
Prófaðu bara....það væri sko snilld!!
Knús og kossar
ps.
......ef þú brýtur eitthvað..... plíííííss.. ekki láta þau vita að ég hafi bent þér á þetta! :)
Heyrðu drengur, hefur móðir þín ekki tekið neinar myndir nýlega og heldur ekki farið í myndirnar mínar. Það vantar tilfinnanlega nýjar myndir, sammála ömmu í Bdl. Kveðja.
Halló krúsídúlla ;** ég væri alveg til í að sjá fleiri myndir af þér :D
Gleðilegt nýtt ár og takk fyrir það gamla. Kveðjur. Ása amma og Pétur afi.
hææ sædasti.. jæja svo áramótin eru á morgun og þá koma, olla amma,siggi afi og Anna og María frænkur í heimsókn.. en hvað það á eftir að verða gaman að vera hjá ykkur um áramótin.. en var ekki gaman að sjá FLUGELDANA í gær?? en jæja best að kveðja í bili.. sakna ykkar og auðvita má ekki gleyma snata gamla hann verður líka að fá að vera með;) sjáumst á morgun;););).....
Heyrðu Pétur Hlíðar minn. Þar sem fáir kvitta nú í þessa gestabók nema amma Ása, þá langar mig óskaplega til að sjá nýlegar myndir af guttanum. Áramótakveðjur til allra. Sakna ykkar. Þín amma.
Elsku Haukur Ingi, Inga Dóra, Anton Freyr og Pétur Hlíðar.
Guð gefi ykkur gleðileg jól og heillaríkt komandi ár. Hjartans þakkir fyrir hið liðna. Kærar kveðjur. Mamma og Pétur.
Hæ hæ krúttið mitt, amma kvitta fyrir innlitið, eru ekki nýjar myndir á leiðinni hér inn, er alltaf að gá. Knús og 1000kossar til allra. Sakna ykkar . Þín amma.