Óttar og litli bróðir Péturssynir
Óttar og litli bróðir Péturssynir
 
 
 

Óttar og Ægir sem var skírður þann 18. október. 



Við erum bræðurnir Óttar og Ægir Péturssynir og eigum heima á Selfossi, bestu götu í heimi, því hér búa margir góðir vinir og ættingjar.  Mamma okkar heitir Urður Skúladóttir og pabbi Pétur Aðalsteinsson.  Ég, Óttar, fæddist á Landspítalanum, eftir víst síður skemmtilega ferð yfir heiðina, þann 4. desember 2004.  Ég var 4205g og 54,5 cm þegar ég fæddist, semsagt stór og sterkur strákur.  Ég byrjaði að brjótast í heiminn á settum degi, 3. des, sem er nú dagurinn sem mamma varð 25 ára, en fæddist svo kvöldið eftir.   

Ægir fæddist loksins þann 10 ágúst, líka eftir síður skemmtilega ferð yfir heiðina.  Ég var 4430g og 56 cm þegar ég fæddist, líka stór og sterkur strákur, enda kominn heila 9 daga framyfir áætlaðan fæðingardag ;).  Greinilega gott að vera í mömmubumbu



svona er stóri bróðir sofandi demantur