

Gaman að sjá nýju myndirnar, bestu jólakveðjur úr Kópavogi :)
Hæ stóri strákur
Takk fyrir að leyfa mér að sjá myndirnar af þér. Vá hvað þú ert stór og myndarlegur drengur. Maður getur ekki annað en brosað þegar þú brosir á myndunum. Þú kemur manni bara í gott skap. Bið að heilsa mömmu.
Kv. Kristín
Hæ hæ litli prinsin minn
Núna er mamma að fara að koma heim til þín á morgun. En því miður verður Óli Pétur að halda áfram að læra hér úti í Álaborg. Vá hvað ég er orðin spennt að hitta þig og knúsa. Ég er búinn að kaupa fullt af jólagjöfum handa þér. Það er alltaf svo gaman að kaupa eitthvað fallegt fyrir þig því þú ert svo mikill engill. Það er búið að vera yndislegt að vera hér en það vantar bara þig litli prins.
Við förum bara saman út um Hvítasunnuna. Þá getum við sínt þér dýragarðinn og tivolíið. Það verður sko æðislegt. Ég vona að þú sért stilltur hjá ömmu og afa eins og ég hef heyrt.
Kv. Mamma og Óli Pétur pabbi
Hæ, við erum komin á klakann og verðum endilega að hittast.
Sendu mér mail og við finnum tíma sem henntar okkur.
Kveðja Ásdís, Sarah og Nathan
Hæ litli stóri kall.
Mikið rosalega var gaman að hitta þig og mömmu um helgina. Ég vildi að við hefðum náð að gera ennþá meira saman en því miður getur maður ekki gert allt á svona stuttum tíma. Ég vona að þú náir sem allra fyrst að jafna þig almennilega á þessum veikindum svo þú komist nú almennilega út og í leikskólann
Hæ Óli Viðar leiðinlegt að þú skulir vera lasinn .Þetta er nú meiri pestin en þú verður bara að vera duglegur og láta þér batna fljótt .Gaman að sjá allarflottu myndirnar af þér bið að heilsa öllum og láttu þér batna fljótt bless bless Maja Hafnarfirði
hæhæ lilli frændi !!!! ég kíki reglulega hingað á síðuna hjá þér og hef aldrei skrifað neitt svo núna ætla ég að skrifa smá til þín.. flott síða hjá þér og mjög gaman að skoða myndirnar sem mamma,amma,afi og óli pétur taka af þér... þú ert algjör dúllu strákur og hafðu það bara gott sæti strákur
hæ hæ
gaman að lesa sögurnar af þér. Við þurfum að fá lykilorð aftur hjá mömmu þinni til að skoða myndirnar af þér.
kveðja Sólveig og co
Hæ Hæ Stóri Strákur !
Flottar myndirnar úr sveitinni hans Afa og Húsafelli !
Heppin voruði að fá smá snjó !
:*
Hæ, Gugga og Óli Viðar.
Við erum á leiðinni til Íslands um miðjan október verðum að reyna að hittast.
kveðja Ásdís, Sarah og Nathan
Hæ Óli Viðar gaman að heyra hvað þér gengur vel á leikskólanum þú ert orðin svo stór og myndarlegur ég bið að heilsa ykkur öllum bless bless Maja
Hæ hæ, litli kall.
Það er alltaf jafn gaman að heyra mömmu þína segja hvað þú ert duglegur á leikskólanum og þægur og góður við mömmu og alla í kringum þig.
Ég sakna þess rosaleg að geta ekki verið hjá þér og mömmu þessa dagana en það hjálpar mér mikið að heyra hvað þið hafið alltaf nóg að gera og hvað það er alltaf gaman hjá ykkur.
Ég ætla að reyna að vera eins duglegur og þið hérna í útlandinu og hafa nóg að gera og njóta þess að vera til. Hlakka rosalega til að sjá mömmu núna í október og ég tala nú ekki um að ná að komast heim til Íslands yfir jólin og gera eitthvað skemmtilegt með þér og mömmu.
kveðja
Óli Pétur pabbi
hæhæ Óli Viðar, rosalega ertu orðinn stór og sætur strákur! dafnar greinilega vel.
Kveðja Rebekka
Til hamingju með afmælið um daginn.
Kveðja Ásdís, Sarah og Nathan
Til hamingju með afmælið í gær Óli Viðar! ;) Vonandi förum við að hittast bráðlega. Kv.Svala Rún og mamma.
Til hamingju með tveggja 'ara afmælið elsku litli engillin minn .Amma og afi.
Hæ frændi
það var ótrúlega gaman að hitta þig í veiðileysu!
það hefði samt verið skemmtilegra ef við hefðum haft meiri tíma með ykkur. Við skemmtum okkur nú samt konunglega þó þið væruð farin og vorum farin að kalla ömmu þína og afa ömmu og afa. Afi þinn gerði bál fyrir okkur, veiddi fisk, Rúnari Inga til mikillar gleði. Svo veiddum við hornsýli og gerðum rosalega stíflu með mömmu og pabba, Rebbi kom og kíkti á okkur og við skoðuðum þrastarungana vel og vandlega.
En næsta sumar ætlum við sko að vera ALLAN TÍMANN okkur fannst svo gaman og mömmu leið svo vel þarna.
kveðja María Elísabet og Rúnar Ingi
Halló elsku kallinn minn. Jæja það er nú gott að þið eruð loksins flutt í fínu íbúðina ykkar. Pabbi líka fluttur en þú ert nú búinn að koma hingað eina helgi. Svo kaupi ég eitthvað fallegt handa þér í Danmörku þegar að ég fer þangað í næstu viku.
Reyni að finna eitthvað með Tomma togvagni handa þér því þú ert svo hrifinn af honum hjá mér:)
Enda er ekki leiðinlegt að eiga strák sem hefur gaman að lestum.
Vertu svo góður hjá mömmu og Óla Pétri elsku sæti kallinn minn:)
hæ hæ
rosalega hefur verið gaman hjá ykkur úti í útlöndum.
gaman að sjá allar myndirnar af ykkur.
kveðja Solla og co
Hæ hæ, - Rosalega ertu orðinn stór og flottur strákur. Það hefur sko greinilega verið svakaleg gaman á Flórída.
kær kveðja úr Englandi,
Elín og Embla Sif
Hæ, Óli Viðar og Guðbjörg!
Það hefur verið gaman í Flórida, alltaf á ströndinni og í búðum.
Kveðja úr Texas
Ásdís, Sarah og Nathan
Hæ hæ litli prinsinn minn
Ég er sko farinn að sakna þín. Ég vona að þú sért stiltur hjá ömmu, afa og pabba þínum. Ég er búinn að kaupa ýmislegt handa þér hér í Köben. Núna væri sko gott að knúsa þig litli engill. Hafðu það sem allra allra best krúttið mitt.
Hlakka mikið til að sjá þig elsku litli prakkari.
knús knús frá mér til þín.
hæ hæ
mamma kemst nú ekkert að skoða myndirnar af þér.
við biðjum bara að heilsa.
kveðja frændi og frænkur í firðinum
Hæ, hæ,
alltaf skemmtilegar myndir af þér Óli, flott klipping Gugga.
Kveðja, Gréta.
hæhæ sæti
aðeins að kikja á þig.
kveðja
Pétur Heimir og Guðný Hildur
Hæ, Óli og Gugga, gamn að skoða myndirnar ykkar og þú ert orðin rosalega stór.
Sé að þú hafir haft gaman í snjónum en Nathan hefur ekki fengið að leika sér í snjónum enn og hver veit hvenær það verður.
Kveðja úr Texas
Ásdís, Sarah og Nathan
Hæ hæ Ég er voða löt að kvitta fyrir mig. En mömmu þinni fannst það ekki alveg nógu gott. Alltaf gaman að skoða myndir af þér, þú er orðinn svo stór núna. Segðu pabba þínum að hann eigi að koma með þig einhvern tímann í heimsókn til okkar. Auðvitað má mamma þín það líka, það fyndist mér náttulega bara gaman. Sjáumst!
Kv.
Heiðbjört
Hæ hæ Óli Viðar .
Ég var að kíkja á síðuna þína þú ert orðin svo stór og myndarlegur strákur bið að heilsa mömmu þinni bless bless Maja Hafnafirði
Takk fyrir að leyfa okkur að skoða síðuna þína Óli stóri! Það fer vonandi að líða að hitting ! :)