

Elsku kallinn minn, ég segi eins og amma, þetta var virkilega fínt hjá þér. Gaman að sjá þetta :) Þetta hefur pabbi ekki gert :)
Svaka var þetta vel spilað hjá þér elsku Óli Viðar minn.
Halló elsku pabbakall, ég hef ýtt eitthvað snemma á Enter í fyrri færslunni hahah :)
En núna er bara mánuður í að við sjáumst aftur elsku kallinn minn og pabbi getur hreinlega ekki beðið eftir að knúsa þig. Hlakka mikið til og við gerum margt skemmtilegt saman á meðan að ég verð heima seinni hluta júní :)
Halló elsku pabbakall. Mikið var gaman að sjá nýju myndirnar sem mamma setti inn. Sérstaklega gaman að sjá ykkur bræðurnar leika saman í snjónum og einnig með öll fínu páskaeggin.
Vertu áfram góður strákur og vonandi fer pabbi að komast heim. Er nánast óbærilegt að vera svona mikið frá þér elsku kallinn minn.
Halló elsku engillinn minn og innilega gleðilega páska og vonandi áttu frábæra helgi. Ég geri ráð fyrir því að þú farir upp í bústað með pabba og mömmu og afa og ömmu og bara öllum:) Við heyrumst um helgina krúttkallinn hans pabba :)
Halló kallinn minn. Pabbi saknar þín alla daga eins og alltaf reyndar. Vonandi fer ég að komast heim svo við getum leikið okkur saman eins og við gerðum um jólin. Það var svo gaman. Vertu nú góður stóri bróðir og alltaf að hlýða mömmu og pabba :)
Sæll elsku kallinn minn. Mikið var gaman að sjá myndirnar frá júnímánuði. Duglegur að hjálpa að byggja bústaðinn og einnig að slá grasið. Það þótti mér gaman að sjá. Hafðu það gott kallinn og núna eru minna en þrír mánuðir í að við hittumst:)
Hæ elsku kallinn minn. Vonandi er búið að vera gaman hjá þér í sumar og ekki síst um Verslunarmannahelgina. Reyndi að ná á þig en þú varst úti að leika með vinum þínum. Það er reyndar bara gott mál að þú varst úti að leika. Vonandi hefurðu verið góður strákur en líka verið duglegur að vera úti að leika. Hafðu það gott kallinn minn og segðu mömmu að setja inn myndir hahahah :)
Hæ hæ kallinn minn. Pabbi saknar þín mikið þessa dagana en vonandi gengur allt upp sem ég er að vinna að núna og þá kemst ég heim um miðjan október og verð þá heima í tæpa þrjá mánuði. Pabbi elskar þig og segir góða nótt á hverri nóttu. Mundu að vera góður strákur:)
Elsku kallinn minn, núna er pabbi alveg að fara að koma til þín í desember. Búinn að sakna þín alla daga í marga marga mánuði en núna fer biðinni loksins að ljúka. Hafðu það gott þangað til á fimmtudaginn þegar að ég get loksins faðmað þig fast:)
Flottar myndirnar af ykkur strákonum hennar ömmu.
Æðislegt að sjá nýja albúmið. Aftur innilegar hamingjuóskir með fallega prinsinn ykkar allra. Efast ekki um að pjakkurinn minn verði góður stóri bróðir. Gangi ykkur rosalega vel:)
Flottar nýju myndirnar af þér Óli Viðar og Rakel Köru í sveitinni hjá ömmu og afa.
Hæ hæ elsku kallinn minn. Vonandi hefurðu skemmt þér vel upp í bústað núna um Verslunarmannahelgina. Sakna þín mikið núna en sem betur fer held ég að tíminn fari að líða hraðar núna þegar að maður fer að vinna alla virka daga aftur. Hafðu það rosalega gott engillinn minn og mundu ef þú segir góða nótt pabbi að þá heyri ég það til Danmerkur:)
Hæ hæ elsku kallinn minn og innilega til hamingju með daginn í dag, veit að þetta verður skemmtilegur dagur hjá þér og færð örugglega mikið af skemmtilegum gjöfum. Þú manst hvað ég sagði við þig í símanum um daginn um að gjöfin mín kæmi til þín með skipi seinna í þessum mánuði en það verður þá bara meira gaman að fá hana:)
Njóttu dagsins vel engillinn minn:)
Saknaðarkveðja frá pabba í Danmörku.
Aldeilis stór dagur hjá þér í dag kallinn minn, búinn með fyrsta stigið af nokkkrum í skólagöngu. Það hefði verið gaman að geta verið viðstaddur þarna með þér. Ég kvaddi nú þær sem hafa annast þig í janúar sem leið þegar að ég sótti þig daginn áður en ég flaug aftur til Danmerkur. Það er gaman hvað þær hafa verið góðar við þig þessi ár sem þú hefur verið þarna og ég hef alltaf greint svo miklar framfarir hjá þér í hvert skipti sem ég kem heim því það líður svo langt á milli heimsókna. Þetta ár verður næstum því heilt ár og bara tilhugsunin um það færir fram tár hjá mér elsku engillinn minn. Hafðu það gott kallinn minn og vertu góður við alla því núna er mikið að fara gerast hjá þér í haust:)
Pabbi
GLEÐILEGT SUMAR ELSKU ÓLI VIÐAR MINN HLAKKA TIL AÐ FARA AÐ LEITA AÐ PÁSKAEGGJONUM Á MORGUNN.
Get ekki lýst því kallinn minn hvað ég sakna þín þessa dagana. Mjög erfitt að vera úti núna frá þér og eiga svona mikið eftir af árinu. Sem betur fer á ég mikið til af myndböndum af þér þar sem ég get heyrt hláturinn þinn og talið til að umbera dagana. Heyrumst fljótlega engillinn minn.
Vá fínar myndirnar af þér með vinum þínum .Hlakka til að fá þig aftur í milluna þegar mamma þín fer út .
Flottar nýu myndirnar mikið ertu duglegur að dansa og syngja í leikskólanum.
Gaman að sjá myndirnar úr sveitinni :D Takk fyrir okkur !
Fínar myndir af ykkur á Þingvöllum í dag.
Þú verður að leyfa Rakel að prófa apa skiltið næst þegar við förum upp í bústað :D
Fínar myndir af þér Andra og Rakel Köru í sumarbústaðinum hjá ömmu og afa.
Hæ kallinn minn, mikið var gaman að tala við þig í gær í gegnum Skype og fá svona óbeint að leika við þig með nýja flotta kallinn þinn sem pabbi og mamma gáfu þér. Rosalega hefurðu fengið flotta veislu og marga pakka í tilefni dagsins. Vonandi fæ ég smá frí í ágúst til að koma og heimsækja þig í nokkra daga.
Hafðu það gott elsku kallinn minn:)
Pabbi
Elsku Óli Viðar til hamingju með 5 ára afmælid hafðu það gott í dag og takk fyrir þessa fínu veislu í gær.
Takk fyrir að taka myndir í veislunni. Ég þarf að fá þær hjá þér við næsta tækifæri. Við vorum að fatta það að okkur vantar fleiri myndir úr veislunni :)
Var að sýna Auði myndirnar af lillunni okkar og svo kíktum við á þetta listaflotta albúm sem Óli Viðar tók sjálfur. Flottar myndir hjá gæjanum
kveðja Raggi og Auður.
Fínar myndir sem þú hefur tekið elsku Óli minn amma og afi eru búinn að hlæja mikið.