

Það var sko fjör núna um helgina hjá okkur. Við fórum upp í bústað með ömmu og afa. Það hefur ekki verið svona lítill snjór á svæðinu í mars áður og það kom okkur mikið á óvart. Afi var að reyna að finna stað fyrir nýja flotta pottinn og það tókst. Við getum þá farið í sund í sumar eins og Óli Viðar kallar pottinn. Aðal málið var að fara upp á loft í bústaðinum og að veiða með veiðistönginni. Hann lék sér með litlu bílana hans Ragnars og allar bílabrautirnar og bílahúsinn. Hann var ekki búinn að gleyma neinu,ótrúlegt hvað hann man.
Við fórum í heimsókn til Mæju og Pálma og síðan líka til Diddu og Guðmans. Það var ekkert smá gaman hjá þeim öllum. Óli Viðar fékk alla athygglina og lét sko taka eftir sér.
Við skrifum meira seinna
Skrifa athugasemd