

Það er búin að vera fínn vetur hjá okkur. Ég er búinn að vera lítið lasinn og mjög hress. Ég er núna mjög duglegur að lesa bækur með mömmu og orðaforinn minn hefur aukist mjög mikið. Ég er mikið fyrir að vera úti og elsa snjóinn og rigninguna. Það er svo gaman að hoppa í pollana og búa til snjóbollta úr snjónum. Ég er mikið fyrir tölvuleiki og mamma er eigilega alveg hissa hvað ég kann mikið á þá. Hún skilur stundum bara ekkert hvernig ég kann þetta allt saman. Ég elska að horfa á Mikka mús og Rocket. Mamma segir að ég verði góður í ensku þar sem ég er þegar farinn að tileinka mér hana. Ég er farinn að telja á ensku og líka farinn að nota frasa þar sem við á. Við erum lukkuleg með að allt gangi vel hér hjá okkur og pabba gengur vel í náminu sínu. Núna erum við farinn að bíða eftir bæði páskafríi og sumrinu því þá getum við verið með pabba. Við ætlum að fara út í júní og vera í tæpan mánuð.
Ég þakka fyrir allar flottu kveðjurnar og sendi knús til ykkar.
Skrifa athugasemd