

Það er búið að vera mikið að gera hjá mér undanfarið. Ég, mamma og pabbi erum búin að hafa það fínt en núna er pabbi farinn aftur út til Álaborgar og kemur aftur heim um jólin. Við getum ekki beðið eftir því. Það er alltaf svo mikið fjör hjá okkur þegar við erum öll heima og þá förum við líka víða.
Óli pabbi keypti handa mér frosk um daginn og ég er búinn að vera að skoða hann á hverjum degi síðan. Hann heitir Frikki froskur og er alltaf að hoppa en hann kemst ekki upp úr búrinu. En í gær þá kom sprunga í búrið sem er slæmt, mamma ætlar að kaupa nýtt. Á meðan eru þeir í stórum potti. Ég passa samt vel upp á það að mamma sjóði þá ekki. Einnig á ég tvo gullfiska sem heita Óliver og Ólavía. Það er gaman að eiga dýr. Óli pabbi er svo hrifin af dýrum að hann var búin að tala lengi um að kaupa frosk en hann var ekki til fyrr en núna um daginn.
Ég, mamma, amma og afi fórum í Blómaval í fyrradag og þá var búið að setja upp jóladót. Ég varð alveg heillaður af ljósleiðarlest o.fl. sem var til sölu þarna en mamma var ekki alveg tilbúinn að kaupa hana handa mér hún var svo dýr já 15.000- kr. Ég vildi síðan ekkert fara út úr búðinni þegar þau vildu fara. Ætlaði bara að gista þar. Mamma náði mér út fyrir rest en ég var ekkert sáttur. Mamma segir að ég sé jólabarn.
Núna er búið að snjóa hjá okkur mér til mikilar gleði. Ég er alltaf að spyrja mömmu hvort hægt sé að gera snjókarl á hverjum morgni síðan um daginn þegar það kom snjór. Já í dag var síðan hægt að gera snjókarl vei. Ég hjálpaði mömmu meira að segja að skaf bílinn í morgun, það var bara mikill snjór á bílnum. 
Ég er alltaf að bæta mig tónlistalega séð svo mamma og pabbi ákváður að kaupa handa mér alvöru trommu. Núna leyfir mamma mér að tromma á hverjum degi og það myndast mikill hávaði og góð stemning því ég syng með. Núna er í uppáhaldi hjá mér lagið um litina. Annars er ég alltaf að æfa mig og ég held bara að ég verði tónlistarmaður.
Mamma er oft að furða sig á því hvað ég hef gott minni. Já ég man glettilega vel marga hluti t.d. setningar upp úr skrípói, hvað ég var að leika með kvöldinu áður, hvar fólk býr, hvernig á að gera hitt og þetta.
Í leikskólanum finnst mér skemmtilegast að leika mér í salnum. Þar getur maður farið í kornís, sparkað bolta, klifrað, dansað, hoppað o.fl. Mamma og pabbi fóru með mig í Stubbaakademíuna síðustu helgi og ég er svo ánægður að fá að hitta krakkana þar. Það er svo gaman að fá að fara í svona flottar þrautir. Síðan eru Andrés, Svava og Inga öll svo frábær sem eru að kenna mér. Þetta er ekkert smá flott og gaman. Ég er dálítið lofthræddur en ég er að þjálfa mig bæði heima og í Akademíunni.
Við söknum Óla pabba og ég vildi auðvitað fara með honum í flugvélina og ég grenjaði á á eftir honum. Pabbi mundu að þú verður að vera duglegur að læra. Það eru bara tveir mánuðir þangað til þú kemur til okkar. Við elskum þig.
Mamma er svo hreikin af mér því ég er orðinn svo duglegur að tala og ég vill helst rífa símann af mömmu þegar hann hringir til að fá að spjalla við þann sem hringir.
Takk fyrir fallegu kveðjurnar í gestabókina mína
Óli Viðar brosmildi kveður að sinni
Skrifa athugasemd