Óli Viðar og Ragnar Guðberg
 

Hugo er frábær.

Ég og Svala vinkona fórum á frábærann fyrirlestur sem Hugo hélt í kvöld. Hann er mjög góður fyrirlesari og segir skemmtilega frá. Hann var að tala um uppeldi á börnum og hvað árangur við viljum sjá með börnin okkar í framtíðinni. Hann sagði að það væri svo mikilvægt að tala jákvætt um hlutina. Eins og að þú færð að fara í leikskólann í dag eins og við segjum á hverjum degi. Ekki segja þú þarft að fara í skólann heldur þú færð að fara. Hann talaði líka um að hrósa og hrósa fyrir það sem maður gerir ekki vanalega eins og þú ert yndislegur eða frábært að þú gekst frá þvottinum. Hann sagði að það væri gott að segja við börnin sín að maður elski þau. Því manni finnst svo yndislegt að fá það svo til baka. Við vitum öll hvað það er gott að fá knús og falleg orð frá foreldrum okkar, börnunum finnst það líka. Hugo talað um að við eigum að ala upp börnin þannig að þau líti upp til okkar og gangi í spor okkar í framtíðinni. Það er ekki gott að rétta þeim alltaf hlutina upp í hendurnar. Heldur að láta þau takast á við verkefnin. Gott dæmi um það er t.d. Láta þau klæða sig sjálf. Líka ef barn segir við kennarann, ég gleymdi bók heima. Þá á maður að segja og hvað get ég gert í því. Þá koma börnin oft með lausnina á fyrrabragði. Ég er spennt að prófa þetta á börnin sem ég kenni og líka hiklaust á Óla Viðar. Ég get haldið endalaust áfram með þetta en þetta er nóg í bili. Það er gott að vera á jákvæðum nótum og segja ég get ekki beðið eftir að fara að vinna á morgun. Heldu en að segja ég þarf að fara að vinna á morgun. 

Munið að vera jákvæð það skiptir öllu.

Góða nótt kæru vinir 

18. September 2008 - 22:50



Athugasemdir

Kveðja

Já Hugo er snillingur. Fór einu sinni á fyrirlestur með honum hjá Round Table. Kom inn á eitthvað svipað. Einnig að orð eins og alltaf og aldrei geta verið varasöm nema þau eigi bókstaflega við.
Vertu svo dugleg að setja inn myndir áfram:)
Kveðja frá sólríku Danmörku hehehe. Óli Pétur getur örugglega staðfest það:)
Sibbi

22. September 2008

Nafn


Texti