

Þá er komið að því, maður er orðinn risa stór! Alveg þriggja ára!! Blés meira að segja á öll 3 kertin á kökunni í morgun. Ég ætlaði reyndar að skella mér í tívolíið í Álaborg í dag eeen það breyttist aðeins þannig að ég komst í afmælisköku til ömmu í morgun. Fékk ofsalega flotta spyderman bíla frá mömmu og pabba og býð svo spenntur eftir einhverju smá meira frá þeim svona þegar þau hafa smá tíma. Mamma og pabbi voru reyndar búin að gefa mér hlaupahjól sem átti að vera afmælisgjöfin frá þeim. Ég fékk hana áður en við fórum út svo ég gæti notað það eitthvað.
Ég er alltaf mjög duglegur að leika mér með dótið mitt og hef tekið miklum framförum í að tala og tjá mig. Mér finnst æðislegt að leika við krakka og brosi allan hringinn þegar eitthver vill koma að leika við mig.
Mamma og pabbi vilja síðan endilega minna á myndböndin af mér og ísbjörnunum í Álaborg og síðan allra nýjustu myndunum sem voru bara að koma inn í dag
Afmælisknús Óli Viðar
Skrifa athugasemd