

Langamma Setta hvaddi þennan heim í dag og söknum við hennar ekkert smá mikið. Hún var lang lang besta amma sem til er og við erum svo ánægð að fá að hafa deilt æsku okkar með henni. Hún var hress og kát fram á síðasta dag og erum við þakklát fyrir það. Það eru engin orð sem ná að lýsa henni almennilega því hún var svo æðisleg og með hjarta úr gulli.
Myndirnar í mars albúminu sýna vel hvað hún var hress og kát og gat auðveldlega leikið við Óla Viðar í essinu sínu.
Skrifa athugasemd